Skagablaðið - 20.11.1985, Side 11
fatið og á hendurnar eru ullarvett-
lingar eða skíðalúffur bestar.
Fylgihlutir
Þá er það bakpokinn, eins dags
poki nægir flestum. I honum er
nesti og brúsi með heitu kaffi, tei
eða kakó. Að auki er gott að hafa
súkkulaði sem neyðarfæði. Góð
regla er að hafa með sér skyndi-
hjálparpoka eða eitthvað í þá átt.
Einnig er nauðsynlegt að hafa
kort og áttavita, vasaljós, hníf,
álpoka eða stóran plastpoka og
að sjálfsögðu neyðarskot. Flauta
er einn af þeim hlutum sem gott
er að hafa meðferðis.
Af fatnaði er gott að hafa
léttan, vatnsheldan regngalla,
aukapar af ullarsokkum, a.m.k.
eitt föðurland, góða geysu og
vettlinga. Athugið að það er létt-
ara að ganga með lítinn bakpoka
en staulast áfram blautur og
kaldur.
Fyrirhyggja
Pegar lagt er af stað er nauðsyn-
legt að gera sér grein fyrir göngu-
stefnu og væntanlegu landslagi
það getur komið sér vel síðar. Oft
er hægt að nota ár og læki, gil,
girðingar, rafmagnslínur og slóða
sem leiðara eftir að skyggni
versnar. Ef þú sérð að skyggni fer
versnandi þá skaltu taka stefnu
með áttavitanum og reyna að
halda henni. Ef þú villist í roki og
rigningu og myrkur að skella á er
ráðlegast að reyna að finna skjól,
klæðast eins vel og hægt er, hreyfa
sig til hita og umfram allt halda
ró sinni. Ef þú hefur nóg af
skotum skjóttu þá upp í loftið á
hálfa og heila tímanum. Einnig er
gott að skjóta upp neyðarskotum,
2-3 með stuttu millibili. f byl og
skafrenningi á það sama við að
mestu leyti, nema þá er best að
grafa sig í fönn. Ef menn verða
fyrir slysi eða eru svo þrekaðir að
þeir komist ekki til byggða hjálp-
arlaust skal reyna að merkja stað-
inn með SOS, hægt væri að nota
steina, snjótraðk, rjúpnablóð eða
hvað sem tiltækt er.
Að lokum: fyrirhyggja og að-
gæsla ræður úrslitum á fjöllum.
Góða ferð og góða heimkomu.
Chick'kbiq
HVAÐ ER I HADEGISMATINN?
— ERTU í TÍMAHRARI?
Pá eru Chick-King kjúklingabitar, franskar kartöflur
og Ijúffengt hrásalat lausnin.
Rennið við hjá okkur og grípið hádegismatinn með ykkur heim í
handhægum umbúðum.
Núna stendur sá tími yfir sem
rjúpurnar teldu vafalítið að mætti
missa sig en rjúpnaskyttur telja
að sama skapi ómissandi.
Við höfum grafið upp ýmsar
ráðleggingar til þeirra sem hyggj-
ast halda til óbyggða til rjúpna-
veiða.
'4
Ferðaáætlun
Gerið ferðaáætlun þ.e. hvert
skal halda, hve margir eru saman,
áætlaðan komutíma að bíl og eins
hvenær komið verði heim aftur.
Látið aðra vita um ferðaáætlun-
ina, bíl og búnað. Eins ef talstöð
er í bílnum þá látið vita hvaða rás
verður notuð. Gott ráð er að
skilja lykla eftir hjá bílnum þann-
ig að allir ferðafélagarnir geti
gengið að þeim ef menn eru ekki
samferða til bílsins.
Fylgist vel með veðurspá áður
en lagt er af stað, ef veðurhorfur
eru ótryggar er ráðlegast að fresta
ferðinni.
Ekki gallabuxur
Nauðsynlegt er að klæða sig
vel, ull eða kappklæðnaður innst.
Athugið að tvær þynnri ullarpeys-
ur eru betri en ein þykk, buxur úr
ull eða flannel eru bestar. Alls
ekki gallabuxur. Vindheldur an-
orakkur eða létt úlpa hafa reynst
best í þurru veðri einnig er gott
að hafa léttar vindheldar buxur.
Pað er mikilvægt að varast að
svitna mikið, en það gerist oft
þegar menn Ieggja á brattann
nýstignir úr heitum bílnum og eru
of mikið klæddir.
Skór þurfa að vera þannig að
hægt sé að nota tvenna ullarsokka
í þeim, haldi vel við ökklann og
hafi grófan sóla. Mörgum hættir
til að fá sér of stífa skó, sem henta
vel við klifur, en eru ekki fyrir
langar göngur. Ef snjór er á jörðu
er mjög gott að hafa legghlífar
eða háa sokka sem ekki festir snjó
á. í krapi og bleytu eru stígvél
nauðsynleg þó þau séu verri til að
ganga á.
Lambhúshetta er besta höfuð-
Dóróthea
Maanúsdóttir
Torfi
Geirmundsson
Yfir 80 tegundir af hárkollum fyrir kvenfólk og mjög gott úrval af
toppum og hárkollum fyrir karlmenn. Fyrsta flokks vara á góðu verði.
UMBOÐSMENN: Jón Hjartarson, hárskeri, sími 2675, Akranesi.
Rakarastofa Sigvalda, Kaupangi, Akureyri. Sími 21898
UPPLÝSINGASÍMI 17144
Laugavegi 24 - 2. hæð
4-*
| Heilræði handa skotvei6imönnum:
Fvrirhyggja og
aogæsla er ur-
slitavaldurinn
u