Skagablaðið - 20.11.1985, Blaðsíða 12
Vinnuslys um borö í
Höfrungi á Raufarhöfn
Það vinnuslys varð um fyrri
helgi um boð í Höfrungi að einn
skipverja féll niður í lestina, þegar
verið var að landa á Raufarhöfn,
og ökklabrotnaði.
Mesta mildi mun hafa verið að
skipverjinn hlaut ekki meiri
meiðsl en raun bar vitni en það
mun hafa haft sitt að segja að
lítilræði af loðnu var enn eftir á
botni lestarinnar þegar hann
missti fótanna og datt.
Höfðavík í sölutúr
Togarinn Höfðavík er nú þessa
stundina á leið til Bretlands með
140 tonn af fiski, sem ætlunin
mun að seljaþar í landi á morgun.
Vonandi er að gott verð fáist fyrir
aflann en íslensk skip hafa verið
heppin með verð undanfarið í
Bretlandi, m.a. vegna lélegra
gæfta þarlendra báta.
Símalaust á sunnudag
Þegar veðurhamurinn var hvað
verstur hér á sunnudag vildi það
óhapp til að öryggi sló út og
skilaði sér ekki inn aftur. Af þeim
sökum varð símstöðin rafmagns-
laus og þar með fór allt síma-
samband úr skorðum um tíma.
Samband komst aftur á áður en
mjög langt um leið en símaleysi
er bagalegt í óveðri sem þessu
þegar brýnt getur verið að koma
áríðandi skilaboðum á framfæri
MnversKir smmngar
Um 200 manns komu til að sjá kínverska badminton-sýningarfólkið sem var hér síðastliðið
fimmtudagskvöld. Þetta lið kemur hingað frá Kína og fer héðan til Svíþjóðar og Hollands áður en það
fer til Kína aftur.
Þessi hópur er um það bil að ná sæti í Kínverska landsliðinu og aðeins spurning um tíma hvenær það
gerist. Spilarar frá badmintonfélaginu hérna spiluðu á móti þeim Kínversku og stóðu sig vel, en ekki
er sanngjarnt að bera saman þessa tvo hópa því Kínverjarnir væru ekki að koma hingað til að sýna ef
svo væri heldur væri okkar fólk þá að sýna einhversstaðar úti í heimi.
Stjórn Badmintonfélags Akraness bað Skagablaðið að koma á framfæri þakklæti til bæjarstjórnar
fyrir dyggilegan stuðning og einnig til forráðamanna og starfsfólks íþróttahússins fyrir gott samstarf við
heimsókn Kínverjanna.
Margt býr í þokunni hjá Skagaleikf lokknum;
Fátt var við frumsýiv
ingu vegna óveðursins
Skagaleikflokkurinn frumsýndi
Margt býr í þokunni á síðasta
föstudagskvöld. Um 90 manns
mættu og er ekki að efa að
óveðrið hefur haft mikil áhrif á
hve fáir komu. Þeir sem sáu
frumsýninguna skemmtu sér vel
og að sýningu lokinni voru starfs-
menn bakatil, leikarar og leik-
stjóri hylltir og blómvendir af-
hentir.
Þegar frumsýningunni var lokið
og leikarar búnir að hreinsa farð-
ann framan úr sér, var haldið upp
í Golfskála og þar var öllum
aðstandendum leiksins ásamt
gestum boðið upp á mat.
Áður en maginn var mettaður
flutti formaðurinn, Ásgerður
ísfeld, smátölu og óskaði hópnum
til hamingju með sýninguna og
þakkaði leikstjóranum Sigurgeir
Scheving fyrir vel unnið starf og
færði honum gjöf frá Skagaleik-
flokknum. Þá kom einnig fram,
að óveðrið hefði komið í veg fyrir
að margir gesta sem ætluðu að
koma, t.d. úr Reykjavík, komust
ekki.
Sigurgeir þakkaði fyrir sig og
einnig fyrir ánægjulega samvinnu
með Skagaleikflokknum. Sér-
Landsleikur við Dani
hér heima í desember?
Heyrst hefur að talsverðir möguleikar séu á því að landsleikur
við Dani verði hér í íþróttahúsinu þann 28. desember. Danir koma
hingað til lands á milli jóla og nýárs og leika hér 3 landsleiki.
Ekki mun endanlega gengið frá þessum málum en líkurnar á því
að samningar takist við HSÍ eru sagðar góðar. Ef af leiknum verður
eru nákvæmlega fjögur ár frá sögulegum landsleik við Danina hér
á Skaganum. Það var 1981 að erkifjendurnir voru rótburstaðir,
31:19. Hvort sagan endurtekur sig er svo annað mál.
staklega þakkaði hann ungu fé-
lögunum fyrir þeirra þátt í að
koma verkinu upp, svo og öllum
öðrum sem áttu þátt í að gera
þetta að veruleika.