Skagablaðið - 27.11.1985, Blaðsíða 1
- potturinn 2,75 milljónir og aldrei stæni og alger metsala hér á Akranesi, 34.000 raðir
„Þetta var hreint glæsilegt, það er það eina sem maður kváðust þeir heldur ekki gefa upp — það væri atvinnu- næsthæsti sem greiddur hefur verið út í sögu getrauna.
getur sagt eftir svona vinning," sagði einn þeirra fjögurra leyndarmál. Gífurleg aukning hefur verið í sölu seðla um allt landið
Skagamanna, sem voru svo heppnir að vinna eina milljón Þegar fjórmenningarnir tilkynntu að þeir væru með 12 undanfarnar vikur og má þakka það í senn stóraukinni
í getraununum um helgina. „Við vorum fjórir saman um rétta snemma á mánudagsmorgun til getrauna voru þeir kynningarherferð sem og stóru vinningunum sem verka
lítið kerfi og það gekk alveg upp. Við höfðum aldrei þeir einu sem voru með 12 rétta. Höfðu því rúmar 2 ákaflega hvetjandi.
tippað saman áður en sjálfur hef ég gert talsvert af því að milljónir í höndunum en það stóð ekki lengi. Nokkru Sala getraunaseðia hér á Akranesi gekk með ólíkindum
tippa og nokkrum sinnum unnið smáupphæðir. Aldrei síðar fannst annar seðill með 12 rétta en fleiri komu ekki vel í síðustu viku. Alls seldust 34.000 raðir og er það
neitt í líkingu við þetta,“ hélt hann áfram en óskaði í leitirnar. nær helmingi meira en mest hafði selst áður. Þessu má
eindregið nafnleyndar sem og félagar hans þrír. Kerfið Þessi vinningur, rúm milljón á eina röð, er hinn þakka mjög öflugu sölukerfi körfuknattleiksráðs.
„Held aö þetta eigi ekki
viðrökai styijasf
- segir Svanur Geirdal, yfiiiögregluþjónn, um
ásakanir í garö lögreglu fyrir seinagang
í rútuóhappinu sl. fimmtudag
„Jú, vissulega hef ég heyrt
ýmsar sögur um þetta mál en ég
held að þær eigi bara ekki við rök
að styðjast," sagði Svanur Geir-
dal, yfirlögregluþjónn, er Skaga-
blaðið hafði samband við hann til
þess að bera undir hann hvort rétt
væri að enginn hefði verið við á
lögreglustöðinni snemma að
morgni síðasta fimmtudags er þar
var barið upp á í kjölfar rútuvelt-
unnar við Berjadalsá. Sögur hafa
gengið um bæinn að lögreglan
hafi ekki komið til dyra er þar var
barið upp á og heldur ekki svarað
í síma.
„Samkvæmt frásögn bílstjórans
varð óhappið kl. 7.15 að morgni
fimmtudagsins," sagði Svanur.
„Nákvæmlega 10 mínútum síðar
bókar lögreglan hjá sér útkall
vegna þessa máls. Boðin komu
símleiðis frá sjúkrahúsinu eftir að
barið hafði verið uppá á lögreglu-
stöðinni en ekki svarað."
Kratamir
hætta við
Alþýðuflokkurinn hefur nú
endanlega ákveðið að vera
ekki með í sameiginlegu próf-
kjöri stjórnmálaflokkanna.
Að sögn Böðvars Björgvins-
sonar, flokksfélagsformanns,
strandaði þátttaka Alþýðu-
flokksins á ýmsum hindrun-
um, m.a. tímsetningu.
— Hvað kom til að ekki var
farið til dyra?
„Sennilega hefur lögreglumað-
urinn á vaktinni ekki heyrt bankið
því millihurð á milli útihurðar og
varðstofu var lokuð. Hefðu þeir,
sem bönkuðu hins vegar farið
bakdyramegin hefðu þeir séð ljós
í glugga þar og getað bankað á
hann. Ég held að þarna hafi
kannski tapast 2-3 mínútur í
mesta lagi.“
— Nú er sagt að ekki hafi náðst
samband við lögreglustöðina sím-
leiðis frá sjúkrahúsinu?
„Það get ég ekki dæmt um en
svo mikið er víst að Jónína Hall-
dórsdóttir, hjúkrunarkona, náði
sambandi við stöðina kl. 7.25. Til
þess að fá línu út úr símakerfi
sjúkrahússins þarf fyrst að hringja
í 0 og menn leiða að því getum að
það gæti hafa gleymst í fyrri
tilraununum til að hringja. Þó vil
ég ekkert um það fullyrða.
— Hvenær er lögreglan þá
komin í startholurnar?
„Mér telst til að það sé rétt fyrir
klukkan 7.30. Þá var haft sam-
band við lögreglumann á Skarðs-
braut. Hann þurfti að byrja á því
að koma hingað niður á stöð og
sækja sjúkrabílinn, fara svo og
sækja félaga sinn, aka þaðan í
ofboði heim til Reynis Þorsteins-
sonar, læknis, þaðan upp á sjúkra-
hús til að sækja búnað og svo
uppeftir. Þangað er lögreglan
mætt kl. 7.35 og ég get ekki
ímyndað mér að hægt sé að fram-
kvæma þetta á skemmri tíma,“
sagði Svanur.
Verðir laganna taka á móti Skarphéðni á sunnudaginn. Netin á
bryggjunni tilheyra honum ekki.
Fékk
króna
sekt
Skarphéðinn Árnason, trillusjó-
maður, var á mánudag dæmdur til
þess að greiða 62 þúsund krónur
í sekt eftir að hafa verið gómaður
að ólöglegum veiðum hér skammt
fyrir utan. Afli var gerður upp-
tækur en veiðarfæri hins vegar
ekki. Vegna plássleysis verður
frekara spjall við Skarphéðinn að
bíða næsta blaðs.
Samþykkt að láta gera úttekt á
virkni boðveitu almannavamanna
Á fundi bæjarstjórnar síðdegis
í gær varð nokkur umræða um
almannavarnir hér á Akranesi og
virkni þeirra í kjölfar óhappsins,
sem Grundartangarútan lenti í sl.
fimmtudag. Sýndist sitt hverjum
og voru sumir þeirrar skoðunar
að einhvers staðar hefði eitthvað
ekki verið eins og það átti að vera.
Samþykkt var tillaga, sem mið-
ar að því að gerð verði ítarleg
úttekt á virkni boðveitukerfis al-
mannavarna hér á Akranesi til
þess að samræma megi betur hina
ýmsu þætti þessarar mikilvægu
starfsemi. Þá var ennfremur sam-
þykkt að beina því til bæjarfógeta
að hann hlutist til um að lögreglu-
stöðin verði opin á tímabilinu frá
kl. 5 til 8 á morgnana svo sagan
frá fyrri viku endurtakist ekki.
Jim Bamm næsti þjálf-
ari hjá Skagamönnum?
„Við eruin með nokkra þjálfara í sigtinu og einn þeirra er Jim
Barron,“ sagði Haraldur Sturlaugsson, formaður knattspyrnuráðs
er Skagablaðið spurði hann hvað liði þjálfaraleit ráðsins.
Haraldur bætti því við að engin ákvörðun hel'ði enn verið tekin
urn ráðningu þjálfara en mönnum litist ckki illa á þennan Barron.
Hann hefði hlotið góð meðmæli, nt.a. frá Ron Atkinson, fram-
kvæmdastjóra Manchester Unitcd.
Barron var kunnur markvörður hér á árum áður og lék lengi með
bæði Nottingham Forest og Oxford. Einnig nokkra leiki með
Úlfunum og Chelsea. Hann hefur undanfarið verið þjálfari í
Saudi-Arabíu cn kemur heim tii Bretlands um rniðjan desember.
Skýrist þá væntanlega hvort hann verður áfram inn í myndinni.