Skagablaðið - 27.11.1985, Síða 5
rB H ® □ IS B1B EIQ] H ffl En
Sigurborgin búin
með síldarkvótann
■ Haraldur Böðvarsson kom
á þriðjudag í síðustu viku inn til
löndunar. Landaði hann 115
lestum af fiski og voru af því um
70 tonn af þorski. Hitt var að
mestu leyti karfi.
■ Sigurborgin kom hingað
inn á laugardag með 150 lestir af
síld, sem fékkst fyrir austan
land. Mun Sigurborgin nú búin
að fiska upp í kvóta sinn. Síldin
var söltuð hjá HB & Co.
■ Þann sama dag kom Bjarni
Ólafsson með um 800 lestir af
loðnu og er þetta í annað skiptið
á þessari vertíð sem hann landar
hjá SFA. Það óhapp henti í
síðustu veiðiferð Bjarna Ólafs-
sonar, að bátur sigldi inn í nót
hans og olli á henni umtalsverð-
um skemmdum. Taka varð nót-
ina í hús hjá Nótastöðinni þar
sem hún var til viðgerðar í 3
daga.
■ Krossvíkin kom inn til
löndunar á mánudagsmorgun.
Afli hennar í þessari veiðiför var
um 150 lestir og var það að
meirihluta þorskur.
■ Skírnir hélt til veiða með
ýsunet á fimmtudag í síðustu
viku. Á sunnudag var hann bú-
inn að draga þrisvar sinnum og
fiska um 20 lestir af ýsu, sem fæst
hér rétt fram af Skagamm.
■ Víkingur landaði á sunnu-
dag 1300 lestum af loðnu hjá
SFA.
■ Skipaskagi hélt á föstudag
í síðustu viku til veiða á ný eftir
um hálfsmánaðar stopp vegna
bilunar í spilbúnaði eins og við
gátum um í síðasta blaði.
■ Norska tankskipið Sol-
straum lestaði 1300 lestir af
loðnulýsi hér á miðvikudag og
mun það vera stærri hluti þess
lýsis, sem framleiddur hefur ver-
ið hér á þessari vertíð.
■ Jökulfellið kom á mánudag
að bryggju hér til þess að lesta
frosinn fisk frá Haferninum. Hér
mun skipið hafa tekið 3000 kassa
af frosnum flökum.
■ Á föstudag í síðustu viku
héldu nokkrir smábátaeigendur
héðan til Reykjavíkur og lokuðu
höfninni þar í samvinnu við
smábátaeigendur annars staðar
frá í hálfan annan tíma. Til-
gangurinn var að mótmæla þeim
veiðitakmörkunum sem þessir
bátar verða að sæta. Eftir því
sem best er vitað var þessi för
ekki farin í nafni hins nýstofnaða
félags smábátaeigenda hér á
Sakga heldur tóku nokkrir sig
saman og eingöngu þeir, sem
hafa sitt aðalstarf af þessari smá-
bátaútgerð.
Eftir þessar mótmælaaðgerðir
í Reykjavíkurhöfn héldu þrír af
bátunum út á miðin og lögðu net
sín þar í trássi við öll boð og
bönn. Þegartrillukarlarnirkomu
að landi á laugardaginn beið
þeirra á bryggjunni maður frá
ráðuneytinu og voru þessir bátar
og afli [jeirra skráðir niður. Tveir
af þessum bátum komu með net
sín að landi eftir þessa einu lögn
en einn þeirra félaga lét eitthvað
af þeim liggja fram á sunnudag
og ætti flestum að vera kunnug
endalok þeirrar veiðiferðar.
Kaffisala og tísku- og snyrtisýning kvenfélagsins:
180 mams mættu á sunnudagmn
Mikill fjöldi manns naut góðra
veitinga og glæsilegrar hár-
greiðslu-, snyrti- og tískusýningar
í Safnaðarheimilinu á síðasta
sunnudag.
Gífurleg vinna liggur að baki
sýninga sem þessum. Sem dæmi
má nefna að byrjað var að greiða
og snyrta á hárgreiðslustofunni
Salon eldsnemma á sunnudags-
morgun því allt þurfti að vera
tilbúið klukkan 16 um daginn. Þá
þurfti að velja föt og máta þau en
ÍA og Amarflug/Adidas:
Nýr tveggja
ára samningur
ÍA hefur endurnýjað samning
sinn við Arnarflug og Adidas og
gilda hinir nýju samningar til
tveggja ára. Þessir nýju samning-
ar eru á allan hátt sambærilegir
við fyrri samninga IA við þessa
tvo aðila og eiga vafalítið eftir að
reynast vel í hinum þunga rekstri
knattspyrnuráðs.
fjölmargar verslanir tóku þátt í að horfðu á sýninguna, þær verslanir
sýna föt. Þótti sýningin takast sem sýndu gáfu peninga til söfn-
mjög vel. Alls komu fram 18 unarinnar og Einar Ólafsson
einstaklingar á sýningunni. greiddi helming tilkostnaðar við
Alls komu 180 manns í kaffi og kaffisöluna.
AKRANESKAUPSTAÐUR
Þann 1. desember næstkomandi er
síðasti gjalddagi álagningar útsvars-
og aðstöðugjalda fyrir árið 1985.
Dráttarvextir verða reiknaðir að
kvöldi 16. desember.
Þá eru þeir örfáu, sem enn skulda
álögð fasteignagjöld vegna ársins
1985 hvattir til að gera skil nú þegar
svo ekki komi til nauðungaruppboðs
vegna vanskila.
Innheimta Akraneskaupstaðar
5