Skagablaðið - 27.11.1985, Qupperneq 9
M Y X 2 SPEKINGAR SPÁ
Jón Karl Einarsson Margrét Vilhjálmsdóttir
Sigurinn hjá Jóni Karli yfir Friðrikku varð öllu auðveldari en við
áttum von á um síðustu helgi. Jón Karl nældi sér í 7 rétta en Friðrikka
fékk aðeins 3. Vera hennar varð því fremur stutt í sæti sigurvegarans,
aðeins eitt skipti.
I innganginum að „tippinu“ síðast varð sú meinlega prentvilia, að
Jón Karl var sagður hafa tapað aðeins einu sinni á lífsleiðinni. Þar átti
að standa „tippað" — ekki tapað. Vildi Jón Karl endilega að þetta
yrði leiðrétt því þótt hann væri sigursæll væri hann ekki svo illsigrandi.
Frammistaða hans um síðustu helgi undirstrikaði þó rækilega, að
honum verður ekki velt úr sessi svo auðveldlega.
Eins og vænta mátti tilnefndi Friðrikka fulltrúa kvenþjóðarinnar í
sinn stað. Heitir nýi áskorandinn Margrét Vilhjálmsdóttir og heldur
að sjálfsögðu með Liverpool. Það gerir Jón Karl líka og því er ljóst
að hér fer fólk sem veit hvað það vill. „Come on you reds.“ (Syngist
á ensku á miklum styrk).
Spár spekinganna fara hér á eftir:
Aston Villa - Tottenham
Ipswich - Sheffield Wednesday
Luton - Manch. City
Manch. United- Watford
Newcastle - Leicester
QPR - Coventry
Southampton - Everton
Bradford - Portsmouth
Fulham-Oldham
Grimsby - Blackburn
Leeds-Norwich
Stoke - Sunderland
Basar
á Höfða
Næstkomandi laugardag verð-
ur basar á Höfða en það er
árlegur viðburður. Margir hafa
beðið eftir að basarinn verði því
margir góðir munir fást þar á
góðu verði. Allir munirnir sem
eru til sölu eru unnir af heimilis-
mönnum og eru hinir eigulegustu.
í undanfarin skipti hafa mun-
irnir selst á mjög skömmum tíma
og færri fengið en vildu. Er þetta
kjörið tækifæri til að kaupa ódýra
en eigulega jólagjöf eða bara til
eignar. Svo spillir heldur ekki að
málstaðurinn er afburða góður.
Hringdu Gísli
Nafn Gísla Arnars Baldursson-
ar, Jörundarholti 137 kom upp
þegar við drógum úr réttum inn-
sendum lausnum við gátunni, sem
lögð var fyrir lesendur fyrir hálf-
um mánuði. Meinleg villa komst
í gátuna, vindlingategundirnar
urðu óvart 6 í stað 5, en það kom
ekki í veg fyrir að nokkrir leystu
gátuna. Norðmaðurinn drakk
vatnið og Japaninn átti sebrahest-
inn. Gísli er beðinn að hafa
samband við ritstjórn Skagablaðs-
ins við fyrstu hentugleika.
Jón Karl
X
2
1
1
1
1
2
2
X
1
X
X
Margrét
2
2
2
1
2
1
X
2
1
X
. 1
2
Tic Tac
fær stór-
gó&adóma
Þótt lítið hafi heyrst af högum
hennar undanfarna mánuði er
hljómsveitin Tic Tac enn í fullu
fjöri að sögn Bjarna Jónssonar,
söngvara hennar.
Staðfesting á lífskrafti strák-
anna fékkst í síðustu viku er
hljómsveitin efndi til tónleika í
Reykjavík. Fékk hún mjög góða
dóma fyrir flutning sinn og þótti
sýna ótvíræða hæfileika.
Hvað varðar plötuútgáfu strák-
anna í Tic Tac er það að segja, að
til stóð að þeir héldu í hljóðver í
haust en ekkert varð af því þá
vegna þess að hljóðverið hafði
ekki orðið sér úti um allan þann
tækjabúnað er til stóð að nota við
upptökurnar. Vonir standa þó til
að hægt verði að hefjast handa
upp úr áramótum.
Jólapappírs-
sala skátanna
Hin árlega jólapappírssala
skátanna verður mánudaginn 2.
des. n.k.
Þá munu skátar ganga í hús og
bjóða til sölu fallegan og vandað-
an jólapappír eins og þeir hafa
gert undanfarin ár. Bæjarbúar
eru hvattir tii að taka vel á móti
sölubörnum og stuðla með því að
ölfugu skátastarfi á ári æskunnar.
FYRIR
JÓLin
líjötúrvalið aldrei
meira en einmitt
núna. Munið glæsi-
iega kjötborðið
okkar.
Versl.
Einars Ólafssonar
Skagabraut 9-11, S. 2015
IIHI AKRANESKAUPSTAÐUR
Spilakvöld
Við viljum minna eldri bæjarbúa á
spilakvöldið sem verður haldið á
Höfða fimmtudagskvöldið 28. nóv.
kl. 20.
Félagsmálaráð
A siöustu 12 mámiðum
43 02%
■'-fA"/mniN
p m / Sparifé þitt er vel tryggt á Hávaxta-
I fj I reikningi Samvinnubankans, því
0 _ ^ Hávaxtareikningur er verðtryggður með
vaxtareiknmgur rz,„ »e,
SAMVINNUBANKINN
ÚTIBÚIÐ AKRANESI, KIRKJUBRAUT 28, SÍMI 2700
9