Skagablaðið


Skagablaðið - 27.05.1987, Blaðsíða 1

Skagablaðið - 27.05.1987, Blaðsíða 1
Verður Akranes loksins ai ferðamannabæ? Skagaferðir leigja heima- vist Fjölbrautaskólans sem sumarhótel fram til 1990 Skagaferðir og Skagaveitingar annars vegar og Fjölbrautarskóli Vesturlands hins vegar undirrituðu á mánudagskvöld samning um leigu heimavistar skólans frá og með 5. júní í ár og til sumarloka árið 1990. Leigutími hvers árs, að þessu undanskildu, er frá 1. júní til 25. ágúst. I samningum skuldbinda leigutakar sig til að greiða skólanum 20% af brúttótekjum vegna sölu gistingar og veitinga að drádregnum söluskatti árin 1988- 1990 - þó aldrei lægri upphæð en kr. 700.000 á sumri. Upphæð þessi er bundin lánskjaravísitölu. I ár greiða Skagaferðir hins vegar 15% af brúttótekjum vegna sölu gistingar og veitinga. Þessi samningur er tímamóta- markandi fyrir báða aðila. Með honum hefur Fjölbrautaskóli Vesturlands tryggt sér vel á þriðju milljón króna í tekjur á núgild- andi verðlagi næstu 4 sumur og Skagaferðir hafa jafnframt stigið mikilvægt skref sitt til uppbygg- ingar ferðaþjónustu á Akranesi til þessa. Annað stórt skref í sögu hlutafélagsins var stigið fyrr á þessu ári er Inga Ósk Jónsdóttir var ráðin framkvæmdastjóri Skagaferða með það að markmiði að gera starfið að heilsársstarfi. í samningum á milli skólans og Skagaferða, sem er fjölþættur, er m.a. gert ráð fyrir því að skólinn fái afnot að allt að 10 herbergjum frá 10. júní til 15. ágúst árhverten leigutaka er þó heimilt að nýta þau herbergi hafi ekki verið til- kynnt um væntanleg afnot af þeim með tveggja mánaða fyrirvara. Óhætt er að fullyrða að þessi samningur gerbreyti allri aðstöðu Skagaferða til sölu á gistingu og veitingum í bænum. Með tilkomu hans getur hlutafélagið nú óhikað unnið að því af fullum krafti að skipuleggja ferðir hópa til Akra- ness með gistingu í huga enda aðstaðan í heimavist FV sérlega glæsileg. Hlutaðeigandi aðilar skála í kampavíni fyrir undirritun samningsins á mánudagskvöld. Ingimundur bæjarstjóri í Garðabæ Ingimundur Sigurpálsson, sem gegnt hefur starfi bæjar- stjóra hér á Akranesi frá því 1982 var í gær ráðinn bæjar- stjóri í Garðabæ. Tekur hann við af Jóni Gauta Jónssyni, sem verið hefur í starfinu frá 1978. Hver tekur við starfi Ingi- mundar hér á Akranesi er enn ekkert vitað en Skagablaðið hefur heyrt að Gísla Gísla- syni, bæjarritara, kunni að verða boðið starfið. Ingimundur sagði í stuttu spjalli við Skagablaðið í gær, að ekki væri endanlega ákveðið hvenær hann tæki við starfinu í Garðabænum en ljóst væri þó að það yrði fljót- lega. Sigursveit Inga Steinars við spilaborðið. Sveit Inga Steinars varð bikarmeistari Sveit Inga Steinars Gunnlaugssonar tryggði sér um helgina sigur í bikarkeppni sveita hjá Bridgefélagi Akraness með því að leggja sveit Harðar Pálssonar að velli. Sveit Harðar hafði titilinn að verja. Sveit Inga Steinars skipuðu auk hans þeir Einar Guðmundsson, Ólafur Grétar Ólafsson og Guðjón Guðmundsson. Akranesmeistari í sveitakeppni varð hins vegar sveit Alfreðs Viktorssonar. Sveitin tók snemma forystu í mótinu og hélt henni allt til loka. Alfreð og menn hans, þeir Eiríkur Jónsson, Karl Alfreðsson, Bjarni Guðmundsson og Guðmundur Bjarnason, hlutu 182 stig. Sveit Inga Steinars varð í 2. sæti með 165 stig, þá kom sveit Harðar Pálssonbar með 162 stig, í 4. sæti varð sveit Árna Bragasonar með 160 stig og 5. sætið skipaði sveit Halldórs Hall- grímssonar. Árleg hreinsunarvika hefst á mánudaginn Hin árlega hreinsunarvika, sem sameinað hefur bæjarbúa í átaki til fegrunar bæjarins, hefst á mánu- daginn og stendur út næstu viku. Á þeim tíma munu starfsmenn bæjarins og Vinnuskólans leggja bæjarbúum lið við að fjarlægja rusl frá lóðum svo fremi því hafi verið safnað saman og það sett í poka. Síðustu ár má segja að hreins- unarvika hafi snúist upp í eina allsherj ar andlitslyftingu á bænum enda hefur verið haft á því orð að Akranes verði fegurri bær með hverju árinu. Þrátt fyrir miklar framfarir á þessu sviði eru þó enn ákveðin svæði í bænum, sem stinga í augun. Þeir, sem vilja fá aðstoð við að losna við rusl og annað sem þarf á haugana að lokinni tiltekt í garð- inum og snyrtingu á nánasta umhverfi, þurfa ekki annað en að hafa samband við hlutaðeigandi aðila (sjá nánar auglýsingu um hreinsunarvikuna á bls. 9 í blað- inu í dag) og verður það þá sótt. Skagablaðið skorar á bæjarbúa að taka nú saman höndum rétt eina ferðina enn og gera ærlegt átak í fegrun bæjarins.

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.