Skagablaðið


Skagablaðið - 27.05.1987, Blaðsíða 10

Skagablaðið - 27.05.1987, Blaðsíða 10
Bílnum stolio úrbð- skúmum Það er ekki á hverjum degi sem menn verða fyrir því óláni, að bflum þeirra er stol- ið frá þeim hér á Akranesi. Enn sjaldgæfara er — ef þá ekki alfarið einstakt — að bfl sé stolið úr bflskúr. Bifreiða- eigandi á efri Skaga lenti þó í þessu um helgina. Það mun hafa verið ein- hverntíma á bilinu frá kl. 1 til kl. 7 aðfaranótt sunnudags, að bílnum var stolið. Þannig vildi til, að dóttir bíleigand- ans var á honum á laugar- dagskvöld og kom heim upp úr miðnætti. Til þess að gera langa sögu stutta skildi hún lyklana að bifreiðinni eftir í hanskahólfinu þar sem faðir hennar átti að mæta snemma í vinnu morguninn eftir. Þegar hann ætlaði á bílnum í vinn- una var hann hins vegar á bak og burt. Að sögn lögreglunnar hér á Akranesi, sem hefur málið til meðferðar, virðist sem a.m.k. þrír aðilar hafi séð til þjófsins á leið hans út úr bænum. Síðast sást til hans undir Þyrli á leið suður. Síð- ast í gær hafði bíllinn ekki fundist. Bifreiðin, sem um ræðir er af gerðinni Taunus, árgerð 1982 silfurgrá að lit. Eru það eindregin tilmæli lögreglunn- ar svo og að sjálfsögðu eig- andans að allir þeir, sem hugsanlega hafa séð til ferða bílsins, láti vita hið fyrsta. Fjöimenni við fyrstu útskrift frá Fjölbrautaskóla Vesturiands Hafdís B. Hjálmarsdóttir verðlaunuð fyrir bestan árangur á lokaprófi Fyrsta útskrift Fjölbrautaskóla Vesturlands fór fram í skólanum á laugardag að viðstöddu fjöl- menni. Verðlaun fyrir bestan árangur á lokaprófi fékk Hafdís B. Hjálmarsdóttir, sem lauk stúd- entsprófi á samfélagssviði. Rotary- klúbbur Akraness gaf verðlaunin. Fleiri verðlaun voru veitt á laugardag. Helgi Grétar Sigurðs- son fékk verðlaun úr minningar- sjóði Þorvaldar Þorvaldssonar, Bjarnheiður Hallsdóttir úr minn- ingarsjóði Elínar írisar Jónsdótt- ur og listaverðlaun NFFA fékk Anna Snæbjörnsdóttir. Eftirfarandi nemendur út- skrifuðust frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á laugardag. Tæknisvið Guðm. Jóhannsson ID Jón S. Kristjánss. ID Björn Guðmundss. IE Jose A. Rodrigues IE/TT StefánG.Árm. IE Kristj. Sigurðsson IH LárusGuttormss. IL ÁrniP. Baldurss. IQ Guðm. Óskarss. IQ Kristbj. Svansson IQ PállJónsson IQ Einar JesGuðm. IR Gylfi Þór Bragason IR Kristj. Theodórss. IR HafliðiGuðjónss. TB Gerður Rafnsd. TT Sigurlína Júlíusd. TT AndrésÓ. Kjerúlf VM/TT BjörnH. Kristj. VM JakobHalldórss. VM Alfreð Ö. Lilliend. VR ÁsgrímurHalld. VR Heilbrigðissvið HrönnReynisd. H2 Raungreinasvið Garðar Jóhanness. EÐ Stúdent HelgiSigurðss. EÐ Stúdent JónGuðmundss. NA Stúdent KristjánKristinss. NA Stúdent Sigrún Víglundsd. NA Stúdent Sveinn Andrésson NA Stúdent BjarniÁrmannss. TR Stúdent StefánÞorvaldss. TR Stúdent Samfélagssvið BáraBjörnsdóttir FE Stúdent Einn stærsti vinnustaður býður Vinnuskóíinn upp á þá ' ijónustu í ár að hreinsa rusl frá íjarins, Vinnuskólinn, er um i safnað saman óg sett í poka. sinna vébanda, Verður ruslið hrcinsað gegn ■“ u-----mjög vægU gjaldi. Er ekki að efa að margir munu nota sér þessa þjónustu og spara sér þannig Að sögn Elfss Þórs Sigurðs- burð og spor upp á öskuhauga sonar, Æskulýðsfulltrúa og yfir- bæjarins. manns Vinnuskólans, verður starfsemi skólans með hefð bundnu sniði í ár. Hins vegar Un innan bæjarmarkanna og nú sem fyrr mun skólinn annast umhirðu fjölmargra lóða ein- staklinga og fyrirtækja. í fyrra voru reikningar fyrir þjónustuna scndir út að hausti en nú verður sá háttur hafður á. að reikningar verða sendir út í byrjun hvers mánaðar. Gefst viðkomandi þá kostur á að gera athugasemdir viö upphæð og verklýsingu í 5 daga eftir útsendingu reiknings. Berist engar athugasemdir er lit- iö svo á að viðkomandi sé sam- þykkur verði og lýsingu á þeirri þjónustu sem innt var af hendi. Elís Þór sagði afkastagetu skólans mjög míkla og væri í raun alltaf vöntun ;í verkefnutn. Vildi hann að endingu koma þeim tilmælum á framfæri til ein- staklinga og fyrirtækja, að þau hefðu samband viö Vinnuskót- ann sem fyrst ef þau þyrftu að láta annast einhver verkefni fyrir sig í sumar. EinarS. Guðm. SigurlínaDavíðsd. Birna Sveinsdóttir Egill Ólafsson Bjarnh. Hallsd. Eyrúnl. Þórólfsd. HafdísB. Hjálm. Helgi Steindal Rannv. Steinþórs SalvörL. Brandsd. FE Stúdent FE Stúdent 14 Stúdent 14 Stúdent MA Stúdent MA Stúdent MA Stúdent MA Stúdent MA Stúdent U4 Stúdent Viðskiptasvið Erla Ólafsdóttir V2 SigurðurH. SævarsV2 Þorbj. Magnúsd. V2 AndrésH. Hallgr. V4 Stúdent JóhannaJóhannsd.V4 Stúdent KatrínGuðlaugsd. V4 Stúdent Pálína Pálsdóttir V4 Stúdent ÁsdísH. Bragad. T4 Stúdent NíelsB. Finsen T4 Stúdent StefánGuðjónssonT4 Stúdent ÞóraHalldórsd. T4 Stúdent Agætt hjá togurum ■ tregt hjá þeim minni Fremur rólegt hefur verið yfir lífinu við höfn- ina síðustu daga en togar- arnir hafa þó komið einn af öðrum með ágætan afla. Höfðavíkin kom með 180-190 tonn í byrjun síð- ustu viku og um miðj a vik- una landaði Krossvíkin 140 tonnum. Skipaskagi kom inn með 30 tonn á sunnudag og daginn eftir kom Haraldur Böðvars- son með 150-160 tonn. Af rækjunni er það að frétta að Bjarni Ólafsson kom með 55 tonn á fimmtudag og á mánudag kom Höfrungur með 60 tonn. Fremur tregt hefur ver- ið hjá smábátum, einkum þó á handfærin. Netabát- arnir hafa verið að fá upp í tvö tonn af róðri og línu- bátar allt upp í hálft þriðja tonn.

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.