Skagablaðið - 12.10.1989, Blaðsíða 2
2
Skagablaðið
Til söiu Fiat 127, árg. ’84.
Bíll í toppstandi. Uppl. í síma
12212 eftir kl. 17.
Til sölu Commodore 64 K
tölva meö segulbandi og
kennslu-og forritabók. Uppl.
í síma 11741.
Til sölu ónotaður Quickshop
II Turbo stýripinni. Verð kr.
1500,- Uppl. í síma 11900 á
milli kl. 19 og 20.
Óska eftir að kaupa vel með
farna barnakerru. Uppl. í
síma 11738.
Til sölu Silver Reed skólarit-
vél. Selstódýrt. Uppl. í síma
11745.
Þann 23. sept. var úlpa tekin
af þvottaplaninu hjá Skelj-
ungi. Úlpan er blá mittisúlpa
með brúnum loðfóðruðum
kraga. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 11232.
Til sölu barnabað, barna-
vagn og strauborð. Á sama
stað óskast hvítur ísskápur.
Æskileg stærð 138 x 58 sm.
Uppl. í síma 12294.
Tapast hefur grábröndótt lít-
il læða frá Vogabraut 16. Er
með brúna ól um hálsinn.
Uppl. í síma 11868.
Til sölu 2 leðurstólar og
tveggja manna svefnsófi.
Uppl. í síma 11462 eftir kl.
17.
Til sölu Kenwood-magnari.
Verð kr. 7000,-. Einnig 200
mm Canon linsa, verð ca. kr.
6000,- Uppl. í síma 71375
eða 11889.
Óska eftir að kaupa notað
barnarúm. Uppl. í síma
11752.
Til sölu Emmaljunga barna-
vagn, leikgrind og göngu-
grind. Allt nýlegt og vel með
farið. Uppl. í sima 11575.
Fjögurra herbergja íbúð til
leigu. Laus nú þegar. Uppl. í
síma 11561.
Blómlegt starl Kiwanisklúbbsins Þyríls:
Viðar Magnússon forseti
Stjórnarskipti fóru fram í Kiw-
anisklúbbnum Þyrli þann 29.
september s.l. og hófst þar með
tuttugasta starfsár hans. Þann
26. janúar næstkomandi eru tutt-
ugu ár liðin frá því að klúbburinn
varð „fullgildur“ og uppfyllti þær
kröfur sem gilda svo að svona
þjónustuklúbbur geti hafið starf-
semi. Vígsludagur var 2. maí
1970.
Stjórnarskipti voru í höndum
Hinriks Haraldssonar,
svæðisstjóra Eddusvæðis, og
naut hann aðstoðar Sigurðar
Bjarnasonar, Kjörsvæðisstjóra. í
Eddusvæðinu eru 7 klúbbar, 3 í
Reykjavík og fjórir á Vestur-
landi.
Stjórn Kiwanisklúbbsins Þyrils
sarfsárið 1989 - 1990 er þannig
skipuð: Forseti Viðar Magnús-
son, kjörforseti Logi Guðjóns-
son, ritari Jón Pálmi Pálsson, erl.
ritari Bjarni Vésteinsson, féhirð-
ir Ólafur I. Jónsson, gjaldkeri
Smári Guðnason, fyrrv. forseti
Willy Blumenstein, meðstjórn-
endur Guðni Tryggvason, Daði
Halldórsson og Vilhjálmur Guð-
Hinrik Haraldsson óskar Viðari velfarnaðar í starfi.
mundsson, endurskoðendur
Ármann Ármannsson og Bjarni
Knútsson.
Samkvæmt skýrslum frá 31.
maí sl. er Þyrill næstfjölmennasti
klúbbur á landinu, en félagar eru
nú 52 í Þyrli og klúbbarnir í ís-
lenska umdæminu eru 42. Kiw-
anisfélagar á Eddusvæðinu eru
nú 228 og fjöldi Kiwanismanna á
landinu 1271. Þyrill heldur fundi
kl. 19.30 á mánudögum í félags-
heimili sínu að Vesturgötu 48,
Akranesi.
Bibba og Halldór tilkynna
Akurnesingum og nærsveitamönnum
Qríniðjan býður nú starfahópum, félagasamtökum og stórfjölskyldum afslátt á
gamanleikinn vinsæla „Brávallagatan— Arnarnesið" í Islensku Óperunni. Sýningar
hefjast 15. september.
Motið þetta einstæða tækifæri til að sjá vinsælustu leiksýningu höfuðborgarinnar.
Hafið samband tímanlega ísíma 91-11123. MISSIÐ EKKI AF ÞEIM.
QRÍHIÐJAH
PC\T öluan
KIRKJUBflfllfT 2. S: 93-13088
Allt fyrir tölvuna
Tölvupappír, sér prentun, hugbúnaður,
ljósritunarvélar, ljósritunarþjónusta,
skrifstofuhúsgögn.
ATVINNA - ATVINNA
Sérsteypan sf. á Akranesi óskar eftir starfsmanni.
Verksvið: Rannsóknarstarf og framleiðslueftirlit.
Umsóknir sem tilgreina menntun og fyrri störf sendist bréflega fyrir
1. nóvember 1989 til Sérsteypunnar sf., Kalmansvöllum 3, 300 Akranesi.
ÍSLENSKA JÁRNBLENDIFELAGIÐ HF.
SEMENTSVERKSMIÐJA RIKISINS
vikunnar
— Tekur þú mark á verð-
könnunum - notar þú þœr
til viðmiðunar þegar þú
verslar?
Kolbrún Kjartansdóttir: —
Nei, ég versla alltaf í Einars-
búð þar sem vöruverð er lægst
Berglind Guðmundsdóttir:
— Já, ég nota þær til viðmið-
unar.
Elísa Björk Jakobsdóttir: —
Já en nota þær ekki til við-
miðunar í innkaupum.
Hrönn Ásgeirsdóttir: - Já, en
nota þær þó ekki til viðmið-
unar við innkaup.
Ritstjóri og ábm.: Sigurður Sverrisson ■ Ljósmyndari: Árni S: Árnason ■ Auglýsingar og dreifing:
Árni S. Árnason ■ Innheimta: Ellen Blumenstein ■ Setning, umbrot, filmuvinna og prentun: Prent-
verk Akraness hf. ■ Útlit: Skagablaðið ■ Ritstjórnarskrifstofa er að Skólabraut 21,2. hæð, og er
opin alla virka daga frá kl. 10-17 ■ Símar: 12261 og 11397 ■ Póstfang: Pósthólf 170, 300 Akranes