Skagablaðið - 14.02.1991, Blaðsíða 5
4
Skagablaðið
Skagablaðið
5
Vart verður annað sagt en hús-
næðismál ríkisstofnana á Akranesi séu
ófullnægjandi. Þar er nánast sama hvert
litið er. Þrátt fyrir umkvartanir forsvars-
manna þessara stofnana hefur ekkert
breyst til batnaðar í mörg ár.
Sívaxandi kröfur almennings um
aukna þjónustu af hálfu ríkisins gera
það að verkum að stöðugt verður erfið-
ara að reka ríkissjóð. Gildir þá einu þótt
stöðugt sé reynt að finna upp nýja
skatta og álögur. Hallinn á ríkissjóði
eykst með ári hverju.
Erfiðleikar ríkisins speglast ákaflega
vel í ástandi húsnæðismála ríkisstofn-
ana hér á Akranesi. Bæjarfógetaem-
bættið býr við mikil þrengsl á efstu hæð
Landsbankahússins. Héraðsdómara-
embættið hefur aðstöðu á sama stað og
er hún jafnvel enn bágbornari.
Skattstofan er í leiguhúsnæði á efstu
hæð Búnaðarbankahússins. Þar eru
þrengsl kannski ekki eins mikil og hjá
fógeta en húsnæðið engu að síður
þröngt. Fleiri ríkisstofnanir búa við
þröngan og úreltan húsakost, t.d. bæði
sjúkrasamlagið og vinnueftirlitið svo
dæmi séu nefnd.
Aðstaða lögreglunnar er þó sennilega
sú allra lakasta. Þar er húsnæðið fyrir
löngu úr sér gengið og þrengslin með
ólíkindum. Eins og staða mála er nú
bendir ekkert til annars en lögreglan
verði á götunni þann 1. apríl nk. Leigu-
samningur hennar að Kirkjubraut 8
rennur þá út.
Sex vikur eru þar til lögreglan á að
rýma bækistöðvar sínar. Enn hefur ekki
verið hafist handa við innréttingu nýrrar
lögreglustöðvar að Þjóðbraut 13, sem
ríkið keypti þó fyrir hartnær þremur
árum. Má teljast kraftaverk ef hægt
verður að koma því húsnæði í viðun-
andi horf fyrir tilskilinn tíma.
Slæmt ástand í húsnæðismálum ríkis-
ins er ekki ný bóla. Enn eitt dæmið um
bága aðstöðu var bifreiðaeftirlitið á með-
an það varog hét. Stofnun Bifreiðaskoð-
unar íslands, þess mjög svo umdeilda
fyrirtækis, leysti hins vegar þann vanda.
Segjast verður starfsmönnum framan
greindra stofnana til hróss, að þolgæði
þeirra virðist með eindæmum þótt lang-
lundargeðið hljóti óneitanlega að fara
að orka tvímælis þegar ekkert breytist til
batnaðar á húsnæðissviðinu svo ára-
tugum skiptir.
Auðvitað eiga opinberir starfsmenn
skattstofu, lögreglu, bæjarfógeta, sjúkra-
samlags, vinnueftirlits og fleiri sem svip-
að er ástatt fyrir að taka sig saman og
krefjast úrbóta. Eina eðlilega lausnin er
bygging þjónustumiðstöðvar ríkisstofn-
ana, þar sem bæjarbúar geta sinnt erind-
um sínum á einum og sama staðnum.
Til þessa hefur hið opinbera skellt
skollaeyrum við öllum umkvörtunum.
Kannski að ráðamenn leggðu við eyrun
ef víðtæk samstaða næðist á meðal
ríkisstarfsmanna á Akranesi um kröfur
um úrbætur?
Sigurður Sverrisson
Gumar Ólafsson, nýráðinn framkvæmdastjóri Bióhallarinnar, i samtali við Skagabtaðið:
„Með ákveðnar hugmyndir um hvemig
má auka aðsóknina að Bíóhöllinni“
Gunnar Ólafsson á sviði Bíóhallarinnar með tóman salinn að baki. Hann segist hafa ákveðnar hugmyndir
um hvernig glœða megi aðsóknina.
„Með því að ráða mig til Bíó-
hallarinnar er ég að koma aftur á
minn gamla vinnustað,“ sagði
Gunnar Ólafsson, nýráðinn fram-
kvæmdastjóri Bíóhallarinnar, í
samtali við Skagablaðið þegar við
litum inn hjá honum í síðustu viku
og spjölluðum við hann. Á meðan
samtalinu stóð skemmti Steve
Martin um 20 ungum bíógestum
í gamanmyndinni „My Blue
Heaven.“ „Ég var búinn að starfa
hérna í sex ár hjá honum Jóhanni
Jóhannssyni og aflaði mér á þeim
tíma sýningarréttinda, þannig að
ég þekki mig vel hér.“
Gunnar sagði að til þess að ná
sýningarréttindum þyrfti að
hafa að baki 500 sýningartíma og
sækja síðan lokanámskeið sem
fram fer í Reykjavík. Það leið
aðeins eitt og háíft ár frá þvi að
Gunnar hætti þar til hann sneri
aftur í Bíóhöllina.
Ákveðnar hugmyndir
„Ég er mjög ánægður með það
að vera kominn hingað aftur og
er nú þegar kominn með ákveðn-
ar hugmyndir um það hvernig
hægt er að auka aðsóknina að
Bíóhöllinni — fá fólk til þess að
koma aftur í bíó. Þessi áform
verða kynnt nánar síðar.
Bíósókn Skagamanna hefur
dregist mjög saman og þykir það
bara góð aðsókn þegar að um 60
til 70 manns koma í bíó á einu
kvöldi. Þarna er átaks þörf, því
eins og flestir vita er það ekki
sambærilegt að fara í bíó og sjá
kvikmynd á breiðtjaldi og með
fullum hljóðstyrk í fullkomnu
hljómflutningskerfi eða horfa á
sömu mynd af sjónvarpsskjá."
Gunnar sagði, að auk þess að
sjá um hinn almenna daglega
rekstur á Bíóhöllinni stjórnaði
hann sýningarvélunum aðra
hverja viku á móti Jóhanni Jó-
hannssyni, sem væri einnig kom-
inn aftur til starfa hjá Bíóhöll-
inni. Auk Jóhanns starfa þrjár
aðrar manneskjur í Bíóhöllinni,
við miða- og sælgætissölu og svo
við þrif. Á hverju sýningarkvöldi
eru tvær manneskjur á staðnum,
nema á fimmtudagskvöldum og
sunnudagskvöldum þá eru þær
þrjár enda eru þetta vinsælustu
bíókvöldin.
Heldur betur er að lifna yfir fæðingardeildinni á Sjúkrahúsi
Akraness eftir afskaplega rólegan janúarmánuð. Þessi börn
hafa heilsað upp á hana veröld síðustu dagana.
31. janúar: stúlka, 3470 g að þyngd og 52 sm á lengd. Foreldrar:
Anna Dóra Markúsdóttir og Jón Bjarni Þorvarðarson, Arnar-
kletti 16, Borgarnesi.
3. febrúar: stúlka, 3250 g að þyngd og 50 sm á lengd. Foreldrar:
Áslaug Jóna Skúladóttir og Sigurður Jónasson, Vesturgötu 97,
Akranesi.
3. febrúar: stúlka, 4480 g að þyngd og 58 sm á lengd. Foreldrar:
Brynja K. Jósefsdóttir og Rúnar Óskarsson, Einigrund 2, Akra-
nesi.
4. febrúar: stúlka, 4270 g að þyngd og 53 sm á lengd. Foreldrar:
Arndís Magnúsdóttir og Þröstur Pálmason, Borgarholtsbraut 78,
Kópavogi.
7. febrúar: stúlka, 3245 g að þyngd og 51 sm á lengd. Foreldrar:
Sigríður Magnúsdóttir og Jón Örn Pálsson, Andakílsárvirkjun.
7. febrúar: drengur, 3920 g að þyngd og 55 sm á lengd. Foreldrar:
Sólborg Ingjaldsdóttir og Éinar G. Hreinsson, Jörundarholti 174,
Akranesi.
8. febrúar: stúlka, 3140 g að þyngd og 51 sm á lengd. Foreldrar:
Daðey S. Einarsdóttir og Arnar Smári Ragnarsson, Jörundarholti
116, Ákranesi.
8. febrúar: drengur, 4280 g að þyngd og 55 sm á lengd. Foreldrar:
Olil Amble og Gísli Gíslason, Stangarholti, Borgarhreppi.
8. febrúar: stúlka, 3315 g að þyngd og 51 sm á lengd. Foreldrar:
Berglind Guðmundsdóttir og Þráinn Þórarinsson, Merkigerði 4,
Akranesi.
9. febrúar: drengur, 4015 g að þyngd og 52 sm á lengd. Foreldrar:
Ásgerður G. Asgeirsdóttir og Pálmi Jóhannsson, Geitabergi,
Hvalfjarðarströnd.
10. febrúar: drengur, 3730 g að þyngd og 54 sm á lengd. Foreldr-
ar: Hólmfríður Guðmundsdóttir og Sævar Sigurðsson, Garða-
braut 45, Akranesi.
11. febrúar: drengur, 2445 g að þyngd og 47 sm á lengd. Foreldr-
ar: Helle Larsen og Júlíus Árni Rafnsson, Kveldúlfsgötu 26,
Borgarnesi.
Þau settu Akranesmetin. F.v.: Berglind, Karl og Rakel.
Áimamsmótfö í sundi um helgina:
Fjðgur Akranesmet
voru sett á mótinu
Fjögur Akranesmet féllu á Ár-
mannsmótinu í sundi, sem fram
fór í Reykjavík um helgina.
Fimmtán sundmenn frá Akra-
nesi, þar af 6 12 ára og yngri,
kepptu á mótinu. Nokkrir þeirra
náðu lágmörkunum fyrir Innan-
hússmeistaramótið, sem fram fer
innan skamms.
erglind Fróðadóttir setti tvö
Akranesmetanna sem féllu.
Hún keppir í flokki meyja. Hún
synti 50 m skriðsundið á 33,03
sek. og 100 m skriðsundið á
1:12,90 mín. Rakel Karlsdóttir,
sem einnig keppir í meyjaflokki,
setti Akranesmet í 200 m fjór-
sundi, synti á 2:58,92 mín. Þá
setti Karl K. Karlsson sveinamet
í 50 m skriðsundi, synti á 32,09
sek.
Einn þeirra sundmanna sem
náði lágmörkunum fyrir IMÍ var
Hallur Þór Sigurðsson. Hann
náði mjög góðum árangri í 400
og 1500 m skriðsundi. Árangur
hans í síðarnefndu greininni er sá
besti á meðal sundmanna lands-
ins fæddir 1976.
„Krakkarnir stóðu sig flestir
mjög vel og ég vil einnig nefna
Benedikt Jón Sigmundsson,
Margréti Guðbjartsdóttur og
Dagnýju Hauksdóttur,“ sagði
Steve Cryer, þjálfari. „Framfar-
irnar voru 54%, þ.e. bæting í 34
greinum af 63. Ég er ánægður
með krakkana.“
Viðhald orðið brýnt
Á síðasta ári varð mikil um-
ræða í bæjarstjórn um fjárhags-
vanda Bíóhallarinnar og þá sér-
staklega um viðhald hússins sem
var orðið mjög brýnt.
„í áætlun fyrir viðhald á Bíó-
höllina er gert ráð fyrir að um 21
milljón króna þurfi til verksins. f
ár er gert ráð fyrir um 2 milljón-
um á fjárhagsáætlun bæjarins til
viðhalds," sagði Gunnar „Það
sem brýnast er að gera í ár er við-
gerð á húsinu að utan til þess að
forða því frá skemmdum. Húsið
er sprungið og illa farið og verð-
ur farið í það verk strax í vor.
Einnig er orðið mjög aðkallandi
að bæta hreinlætisaðstöðuna. En
það er samt margt sem búið er að
gera fyrir húsið nú þegar. Það er
búið að skipta um gluggapósta og
gler á framhliðinni. Þá er búið að
bæta aðstöðuna fyrir Skagaleik-
flokkinn, sem hann hefur undir
leiksviðinu og ýmislegt fleira.“
Daglegt samband
Að endingu langaði okkur að
forvitnast um það hjá Gunnari
hvernig það gengur fyrir sig að fá
kvikmynd til sýninga í Bíóhöll-
inni.
„Það gengur þannig fyrir sig að
ég hef samband nánast á hverj-
um einasta degi við kvikmynda-
húsin í Reykjavík og spyrst fyrir
um ákveðnar myndir, sem ég
reyni að fá til sýninga hverju
sinni. Ef þær myndir, sem ég hef
mestan áhuga að ná í, eru ekki
fáanlegar þá reyni ég að fá þær
myndir sem ég tel að standi þeim
næst í vinsældum. Þeir sjá síðan
um að senda mér myndirnar
hingað uppeftir með Akraborg-
inni.
Leiga á kvikmyndum er mjög
breytileg. Það fer algerlega eftir
vinsældum myndarinnar. Eftir
því sem hún er vinsælli því dýrari
er hún og hjá sumum aðilum
borgum við prósentur af inn-
komu. Þetta fyrirkomulag á sér-
staklega við hjá Bíóhöllinni og
Bíóborginni í Reykjavík. Yfir-
leitt fáum við myndirnar mjög
fljótt hingað uppeftir eftir að
hætt er að sýna þær í höfuðborg-
inni. Sem dæmi má nefna mynd-
ina, sem við erum að sýna núna,
„My Blue Heaven“. Hún kemur
beint úr Reykjavík. Ég tel hins-
vegar að tilkoma litlu sýningar-
salanna hjá kvikmyndahúsunum
í Reykjavík hafi slæm áhrif á
kvikmyndahúsin á landsbyggð-
inni. Eftir að kvikmyndahúsin
fyrir sunnan eru búin að sýna
myndina í sínum aðalsal færa
þau hana í litlu salina og þar get-
ur hún gengið mánuðum saman
þar til hún loks losnar til sýninga
utan Reykjavíkur. Þá hefur
myndin í sumum tilfellum misst
marks.“
Engu gleymt
Gísli Gíslason, bæjar-
stjórí, sýndi í leik Skaga-
manna og Skalla á föstudag
að hann hefur litlu gleymt.
Hann skoraði 6 stig í leikn
um, þar af eina þriggja
stiga körfu í síðari hálfleikn-
um á mikilvægu augnabliki.
KristjánSv.
sölukóngur
Umboð Samvinnuferða/
Landsýnar hér á Akranesi
reyndist söluhæsta umboð
ferðaskrifstofunnar úti á
landi. Umboðsmaður er
hinni góðkunni og síhressi
Kristján Sveinsson.
Mikil samkepni ríkir á
milli umboðanna úti á
landi og hefur Akranesum-
boðið oftast verið í toppbar-
áttunni ásamt umboðunum í
Keflavík, Vestmannaeyjum
og í Hafnarfirði. Svo var einn
ig í fyrra en eftir 70% sölu-
aukningu á milli árana 1989
og 1990 stóð Akranesumboð-
ið uppi í fyrsta sætinu.
Sveit Sjóvá/
Almennra efst
Sveit Sjóvá/Almennra er í
efsta sæti Akranesmótsins í
sveitakeppni í bridge þegar
fímm umferðum er lokið af
níu.
Tryggingarfélagssveitin er
með 106 stig, fimmtán
stigum meira en sveit Hreins
Björnssonar, sem er með 92
stig. Sveit Þórðar Elíassonar
er í 3. sæti með 83 stig.
Vestur-
landsmótí
tvímenningi
Vesturlandsmótið í tví-
menningi verður haldið í
Borgarnesi þann 2. mars nk.
Spilaður verður Baró-
meter tvímenningur.
Þátttökutilkynningar þurfa
að hafa borist fyrir 26. fe-
bruar í síma 11080 (heima-
sími) eða 12994 (vinnusími).
Glæsilegt einbýlishús
Glæsilegt gamalt einbýlishús er til sölu. Húsið er nýupp-
gert.
Upplýsingar í síma 11660.
YKKAR HAGUR —
OKKAR METNAÐUR
Höfum opið mánudaga - fimmtudaga frá kl. 9.00 -18.30. Föstu-
daga frá kl. 9.00 - 19.30. Laugardaga frá kl. 11.00 - 17.00.
GERIÐ VERÐSAMANBURÐ!
H0RNIÐ
Vesturgötu 48 — Sími 13116
Heimilislegt í hádeginu
MÁhUDAQUR
Mautapottréttur m/hrísgrjónum og salatí kr. 670,-
ÞRIÐJUDAGUR
5teiKtar kjötbollur m/kartöflum og grænmeti kr. 450,-
MIÐVIKUDAGUR
Ofnbakaður fiskur m/grænmeti kr. 530,-
FIMMTUDAGUR
5vínagulla5Ch m/rjómasoðnu spaghetti kr. 620,-
FÖ5TUDAGUR
Qrillaðar lambasneiðar m/maís og rauðkáli kr. 570,-
Pantanir í síma 13093 frá kl. 10 -
23.30. Ekki er nauðsynlegt að panta en
það hentugra sé þess kostur.
Te & kaffistofan
V/esturgötu 52 — Sími 13093
PRENTVERK
AKRANESS HF.