Skagablaðið - 14.02.1991, Side 10
Nemendur 10. bekkjar Brekkubæjarskóia stunduðu nám f 36 kfukkub'ma samfleytb
Settu nýtt fslandsmet
Nýtt íslandsmet leit dagsins Ijós klukkan átta síðast-
liðið laugardagsvöld. Vettvangurinn var Brekkubæjar-
skóli þar sem sigri hrósandi nemendur 10. bekkjar
fögnuðu nýju íslandsmeti í námsmaraþoni. Þau höfðu
þá stundað nám í 36 stundir samfleytt og bætt fyrra met
um þrjár stundir.
og frá. Þau hefðu öll mætt eld-
hress í skólann og verið búinað
ná úr sér allri þreytunni.
„Námsmaraþonið var haldið
til þess að fjármagna skólaferða-
lag okkar í vor. En þá er hug-
myndin að dvelja nokkra daga í
Húsafelli að afloknum sam-
ræmdu prófunum. Við söfnuðum
á bilinu 160 til 180 þúsund
krónum, sem er alveg frábært.
Vil ég því nota tækifærið og
þakka öllum þeim sem styrktu
okkur, bæði einstaklingum og
fyrirtækjum hér í bæ,“ sagði Erla
Osp að lokum.
Þessir nemendur litu ekki upp úr
bókunum.
Skagablaðið ræddi við þær
Hrönn Ríkharðsdóttur,
kennara, og Erlu Ösp Lárusdótt-
ur, sem er í fjáröflunarnefnd 10.
bekkinga, að maraþonkennsl-
unni lokinni.
„Þetta var erfitt en skemmti-
legt og við vorum öll einhuga um
að slá metið hvað sem það kost-
aði,“ sagði Erla Ösp í samtali við
Skagablaðið. „Hugmyndin að
þessu námsmaraþoni kom fram
síðastliðið haust og átti það upp-
haflega að fara fram í desember
en var frestað þar til nú.“
Erla Ösp sagði að það hefði
verið mikil vinna að undirbúa
maraþonið og hefði mestur tím-
inn farið í skipulagningu og að
sjálfsögðu í fjáröflun. Fjórar
hefðu verið kosnar í fjáröflunar-
nefnd. Auk hennar væru í nefnd-
inni Erla Lind Jónsdóttir, Þór-
unn María Örnólfsdóttir og Vai-
borg Ragnarsdóttir.
„Námsmaraþonið hófst klukk-
an átta á föstudagsmorguninn og
lauk klukkan átta á laugardags-
kvöld. Fyrirkomulagið hjá okkur
var þannig að krökkunum var
skipt niður í þrjá hópa. Hver
hópur var við nám í einn klukku-
tíma í senn og hvíldist svo í tvo
tíma. Hver hópur var þannig í
maraþoninu 12 tíma alls. Það
voru tveir kennarar, sem stóðu
hverja kennaravakt. Annar var
við kennslu og hinn hafði umsjón
með þeim sem voru í fríi frá
kennslunni hverju sinni.“
Erla Ösp svaraði þegar hún
var spurð að því hvort krakkarn-
ir hefðu ekki sofið yfir sig á
mánudagsmorguninn eftir erfiði
helgarinnar að það hefði verið af
A milli þess sem setið var við nám notuðu nemendurnir tímann til þess að slaka á.
„Gaman að sjá samheldnina“
sagði Hröm Rfkharðsdóttr, einn kennaranna í maraþonnáminu
„Það var afskaplega gaman að
vinna að þessu með krökkunum
og sjá þá miklu samheldni og fél-
agsanda sem ríkti hjá þeim öllum
á meðan námsmaraþoninu
stóð,“ sagði Hrönn Ríkharðs-
dóttir, kennari í Brekkubæjar-
skóla.
Hún dró ekki af sér við kennsl-
una og kenndi „grimmt“ bæði
föstudag og laugardag.
Fflestir kennarar 10. bekkjar
kenndu nemendunum fjöru-
tíu og tveimur, sem þátt tóku í
maraþoninu, einhvern hluta tím-
ans. Til dæmis var Pétur Björns-
son, leikfimikennari, með leik-
fimi frá klukkan eitt til fjögur að-
faranótt laugardagsins. Þá tók
Rögnvaldur Einarsson við og
kenndi stærðfræði til klukkan sjö
um morguninn. Ég tók síðan við
og kenndi ensku til klukkan tíu.
Svona gekk þetta koll af kolli.“
Hrönn sagði að einstaklingar
og fyrirtæki í bænum hefðu tekið
krökkunum sérstaklega vel. Sem
dæmi hefðu bakaríin gefið þeim
kaffimeðlæti og rjómabollur og
Versl. Einar Ólafsson gefið þeim
sem styrk, helming þeirrar vöru-
úttektar sem þau tóku út hjá
versluninni maraþonsdagana.
„Þau voru furðu hress að af-
loknu maraþoninu,“ sagði Hrönn.
„Það var vissulega farið að draga
af sumum þeirra. Á föstudags-
kvöldinu sögðu þau að það yrði
ekkert mál að fara út kvöldið
eftir. Þær raddir heyrðust síðan
seinni hluta laugardagsins að þau
ætluðu að reyna að ná því að
horfa á úrslit söngvakeppni sjón-
vapsins þá um kvöldið.“
Tóku 38fyrir
ölvunarakstur
Lögreglan á Akranesi tók í
fyrra 38 ökumenn grunaða
um ölvun við akstur.
Svanur Geirdal, yfirlög-
regluþjónn, sagði í sam-
tali við Skagablaðið að þetta
væruheldurfærrienárið 1989.
Fæmsátu
inniífyira
Alls bókaði lögreglan hjá
sér 133 „gistinætur“ í fyrra
vegna mála er tengdust ölvun
og rannsókn meintra afbrota.
Þessi tala er lægri en árið
1989 og er kannski til
vitnis um það að batnandi
fólki er best að lifa.
Tóku120*0
hraðakstur
Eitt hundrað og tuttugu
ökumenn voru í fyrra teknir
fyrir of hraðan akstur af lög-
reglunni á Akranesi.
Þetta er talsverð fjölgun
frá árinu áður og munar
þar mestu um að nýr radar
lögreglunnar var í notkun allt
síðasta ár en ekki nema hluta
af árinu 1989.
í nýliðnum janúarmánuði
voru átta ökumenn teknir
fyrir of hraðan akstur, allir
innan bæjarmarkanna.
Alls voru kærur vegna um-
ferðarlagabrota 247 í fyrra.
Númeraklipp-
umaráloffi
Númeraklippur lögregl-
unnar hafa talsvert verið á
lofti það sem af er árinu.
Að sögn S vans Geirdal, yfir
lögregluþjóns.hafanúm-
erin verið klippt af 27 bílum
það sem af er árinu. I öllum til-
vikum hafa númerin verið
klippt af vegna þess að vanrkt
hefur verið að færa viðkom-
andi bifreiðar til skoðunar.