Skagablaðið - 14.03.1991, Qupperneq 1
Aflaverðmæti 106,8 millj.
kr. yfir tóK daga tímabil
Heildartekjur HB & Co, Heimaskaga og SFA
fyrstu tólf daga þessa mánaðar námu samtals 152,5
millj. króna. Þar af var verðmæti afurða 106,8 mill-
jónir króna. Inni í þeirri tölu er reiknað verðmæti
300 tonna af loðnuhrognum, samtals 38,7 millj.
króna. Meðaltekjur á dag tímabilið 1. - 12. mars
voru 12,7 millj. króna.
Þessar miklu tekjur eiga sér einkum skýringar í
loðnu- og loðnuhrognum. Alls tóku fyrirtækin
á móti 5.980 tonna afla þessa tólf daga, þar af 5200
tonnum af loðnu.
Þessar miklu tekjur fyrirtækjanna skila sér einnig
í háum vinnulaunum starfsfólks enda hefur vinna
verið mikil. Þannig greiddi fyrirtækið laun upp á
25,5 milljónir króna fyrir umrætt 12 daga tímabil.
Stórijón varð í sinubmna
»*•!?* af ' _ >S. JF.U_?_ „X..* „ A 1-_X _:_ hnfn
Unnið við síðasta farminn af loðnuhrognum á þessari vertíð hjá HB &
Co síðdegis í gœr.
Harður árekstur í gærdag
Mjög harður árekstur varð á mótum Vogabrautar og Hjarðar-
holts síðdegis í gær. Bifreið, sem kom af Hjarðarholti, var
ekið inn á Vogabrautina í veg fyrir bifreið sem ók þar til norðurs.
Engin slys urðu á fólki en bifreiðaranr eru báðar stórskemmdar.
Kaupmenn, þjónustuaðilar og ferðmálafuDbúi taka höndum saman:
Mikið tjón varð af vóldum sinu
bruna í fyrradag þegar eldnr
komst í átta hektara landsvæði,
sem hjónin Guðmundur Guð-
jónsson og Rafnhildur Árnadótt-
ir hafa á leigu frá bænum. Hjón-
in hafa undanfarin ár lagt drjúg-
an hluta frístunda sinna í upp-
græðslu þessa skika og gróður-
sett þar þúsundir trjáplantna.
Óttast er að á annað þúsund
plöntur hafi skemmst eða eyði-
lagst af völdum eldsins.
Það var að vonum þungt hljóð
ið í Guðmundi er Skagablað-
ið skoðaði vegsummerkin með
honum. Hann sagði sárt að horfa
á eftir tveggja ára vinnu þeirra
hjóna með þessum hætti, ekki
síst vegna þess að hreinn og klár
óvitaskapur eða hugsunarleysi
hefði valdið þessum skaða.
Guðmundui^agði^ ekki síður
sárt að horfa upp á eyðilegging-
una vegna þess að hann hefði far-
ið þess sérstaklega á leit við lög-
regluna að hún fylgdist vel með
því í ljósi sinubrunanna innar á
svæðinu undanfarna daga. Hann
sagðist að auki sjálfur hafa reynt
að fylgjast með skikanum eftir
megni en allt hefði komið fyrir
ekki.
Heita má að allur Garðafló-
ínn, sem sumir hafa reyndar upp-
nefnt Persaflóann í hálfkæringi,
hafi logað undanfarna daga
vegna sinubruna. Litlu mátti
muna að eldurinn læsti sig í
landsvæði Skógræktarinnar.
Unnu slökkvilið og starfsmenn
Akraneskaupstaðar ötullega að
því að varna eldinum leið
þangað. Vart er hægt að gera sér
í hugarlund tjónið hefði eldurinn
náð að breiðast út þar.
Séð inn yfir Garðaflóann í viku-
bryjun þegar sinueldar loguðu
þar glatt.
Kaupmenn og þjónustuaðilar
á Akranesi, í samráði við Ferða-
málafulltrúa Akranesbæjar, hafa
nú í hyggju að efna til mikils
kynningarátaks á bænum, sem
hefjast á í maí. Gert er ráð fyrir
að auglýsingakostnaður vegna
þessa átaks nemi um 800 þúsund-
um króna.
Þórdís Arthursdóttir, ferða-
málafulltrúi, sagði í samtali
við Skagablaðið að eining væri á
meðal kaupmanna um að standa
saman að þessu átaki. Það á að
miða að því að kynna verslun,
þjónustu og afþreyingu á Akra-
nesi fyrir ferðamenn.
Að sögn Þórdísar á kynningar-
Akranes á kortið
Akranes virðist hægt og bítandi vera að komast á fslandskortið
hjá þeim aðilum sem eru hvað umsvifamestir í ferðaþjónustu.
Gistiaðstaðan í heimavist fjölbrautaskólans gegnir þar lykilhlut-
Dágana 14. - 20. júní dvelur hér 60 matina hópur Norður-
landabúa á vegum ferðaskrifstofunnar Sögu. Nokkru síðar
kemur hér 50 manns hópur frá Guðmundi Jónassyni. Strax í kjöl-
farið verður fyrirtækið Ráðstefnur og fundir með 47 manna hóp á
Akranesi og þá er von á 80 eiginkonum starfsmanna Coca Cola í
Þýskalandi í dagsferð hingað.
Þá er ónefnt að: læknarítarar vcrða með þing sítt hér á Akranesi
í maí og má þar búast viö 50 - 70 manna hópi.
átakið að hefjast fyrir Hvíta-
sunnuhelgina og er stílað inn á
ferðamenn sem eiga leið hér um
svæðið í sumar. Sagðist Þórdís
gera sér vonir um að auglýsing-
arnar yrðu til þess að enn fleiri
en ella sæju ástæðu til þess að
sækja Akranes heim.
í Skagablaðinu í dag er auglýs-
ing þar sem óskað er eftir hug-
myndum frá bæjarbúum að slag-
orðum fyrir kynningarátakið.
Skilafrestur tillagna er ein vika.
Þá er Þórdís að láta útbúa
snotra bæklinga, sem dreifa á í
sem flesta sumarbústaði í Borg-
arfirði. í bæklingnum er tíundað
hvað Akranes hefur upp á að
bjóða fyrir ferðamenn; verslun.
þjónustu og afþreyingu.
m
Séð yfir Akranes, sem hefur, ef vel er að gáð, margt upp á að bjóða
fyrir ferðamenn.
Hver er vita-
vörðurinn?
- Flettið upp á Ws, 7 og
komist að því