Skagablaðið - 11.04.1991, Síða 1
14. TBL. 8. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1991
VERÐ KR. 150,-
Útburði lögreglunnar frestað
á elleftu stundu?
Síðast er fréttist benti allt til
þess að lögreglan á Akranesi yrði
borin út úr húsnæði sínu í dag
eða á morgun ef ekki hefðu tek-
ist samningar á milli dómsmála-
ráðuneytisins og eigenda Mynd-
bandaleigunnar Áss, sem keyptu
húsnæðið í haust. Þegar þetta
var ritað voru engir samningar í
sjónmáli.
Lögfræðingur Myndbandaleig-
unnar Áss sendi dómsmála-
ráðuneytinu ábyrgðarbréf fyrir
helgina, þar sem tekið var fram
að þess yrði krafist að lögreglan
yrði borin út hefði ekki náðst
samkomulag af einhverju tagi
fyrir 10. apríl (í gær).
Seinagangur ráðuneytisins hef-
ur þegar komið eigendum mynd-
bandaleigunnar í bobba. Leigu-
tími hennar í núverandi húsnæði
rennur út 15. maí. Ætlunin var
að hefjast handa við breytingar
og innréttingu húsnæðisins að
Sjálfstæðisllokkurinn fær
mest fylgí í Vesturliindskjör-
dæmi í komandi alþingis-
kosningum samkvæmt skoð-
útvarpiö. Úrslit könnunar-
innar voru kynnt í livMatiiua
sjónvarps á mánudag.
Qamkvírmt könnuninni
lengi Sj a11 st æðis 11 ok k u r-
inn 31.3% í'ylgi og bætti við
sig7,l prósentustigi l'rakosn-
ingunum 1987. l Vamsóknar-
flokkurínn l'engí 29,1% og
bætti vió sig 3.8%. Alþvðu-
flokkurinn fengi 14,5"v., tap-
íiði 0,ó% og Álþýöubanda-
lagið fengi 11.9% og hætti
einu prósenti víð sig.
kvennalistinn t'engi 7.4‘%
fylgi, tapaöi 2,9";.. lleima-
stjórnarsanitokin lengju
2.9% fyigi en þau buöu e'kki
fram í kjördæminu síðast,
Frjálslyndir fengju l.f>% og
töpuöu8,9% fr.i þ\i [Jorg.ii-
tillokktnmii li.uiö Iram 1987.
l’á l'cngi l’jóðarflokkurinn -
Flokkur mannsins 1,3%,
ylai þessara flokka var
anlagt . i síðusiu
.osningum.
Kirkjubraut 8 í byrjun þessa
mánaðar en ekkert hefur skiljan-
lega orðið af þeim framkvæmd-
um.
Skagablaðið náði tali af í>or-
leifi Pálssyni, skrifstofustjóra
dómsmálaráðuneytisins, um
miðja síðustu viku. Hann baðst
undan því að ræða þetta mál að
öðru leyti en því að veikindi sam-
starfsmanns síns í fjármálaráðu-
neytinu hömluðu því að hægt
væri að ganga frá samkomulagi
við eigendur myndbandaleigunn-
ar. Taldi hann allar líkur á að
fulltrúar ráðuneytanna kæmu
hingað uppeftir á fimmtudag eða
í síðasta lagi á föstudag. Þeir
voru enn ekki komnir í vikubyrj-
Fari svo að lögreglan verði
Bœkistöðvar lögreglunnar að Kirkjubraut 8.
borin út hefur hún í ekkert hús
að venda. Innrétting framtíðar-
húsnæðis hennar að Pjóðbraut 13
er enn ekki hafin og ljóst að af
flutningum lögreglunnar þangað
verður ekki fyrr en í fyrsta lagi
eftir tvo mánuði. Pá verður mán-
uður liðinn frá því myndbanda-
leigan átti að rýma núverandi
húsnæði sitt.
Kampakátir
körfukappar
Það var líf og fjör í íþrótta-
húsinu við Vesturgötu á föstu-
dag er þar fór fram stjörnuleikur
í körfuknattleik. Skagamenn
öttu þar kappi við úrvalslið,
skipað m.a. snillingunum Franc
Brooker og David Grissom.
Það var létt yfir mönnum í
þessum leik, engum þó eins
og æringjanum Franc Brooker
sem fór á kostum jafnt innan
vallar sem utan.
Brooker brá á leik með leik-
mönnum stjörnuliðsins er
Skagablaðið bað kappana um að
stilla sér upp til myndatöku.
Uppátækið leynir sér ekki á
myndinni.
Skriður að komast á undirbúning rannsókna vegna HvaKjarðarganganna:
„Göngín lyftistöng fyrir Akranes
hvor staðurinn sem verður valinrí1
Stjórn Spalar hf., hlutafélags-
ins sem stofnað var fyrr á árinu
um gerð jarðganga undir
Hvalfjörð, fundaði í vikubyrjun.
Á fundinum var m.a. rætt um
fyrirhugaðar rannsóknir í Hval-
firði í sumar. Rannsóknirnar eru
forsenda fyrir fyrirhuguðum
framkvæmdum.
Gísli Gíslason, bæjarstjóri,
sem jafnframt er varafor-
maður stjórnarinnar, sagði í sam-
tali við Skagablaðið að verið væri
að vinna að útboðsgögnum varð-
andi þessar rannsóknir. Þar væri
annars vegar um að ræða svokall-
aðar bylgjubrotsmælingar svo og
jarðfræðikortlagningu svæðisins.
Verði niðurstöður rannsókn-
anna í samræmi við þær vonir
sem menn gera sér er allt eins lík-
legt að framkvæmdir við sjálf
göngin hefjist strax á næsta ári.
Gísli sagði göng svipaðs eðlis
vera í vinnslu í Noregi um þessar
mundir og myndi verða fylgst
grannt með gangi mála þar.
Gísli sagði enn ógerning að
segja til hvor þeirra leiða, sem
um hefur verið rætt, Kiðafellsleið
eða Hnausaskersleið, yrði fyrir
valinu. Margt ætti eftir að kanna
betur áður en hægt væri að kveða
upp endanlegan úrskurð um
hvort væri hagstæðara.
Hvað varðandi þá skoðun
flestra Akurnesinga að nauðsyn-
legt væri að ytri leiðin yrði fyrir
valinu til þess að Akranes hefði
sem mestan hag af göngunum
sagði Gísli ljóst að, göngin — á
hvorum staðnum sem þau væru
— yrðu bænum mikii lyftistöng.
Á því léki enginn vafi í sínum
huga.
á þvi að ekkert
Rétt cinu
bcr upp á miövikudag eru það tilmæli t
höfunda að vera t' ’ ' £' ' :