Skagablaðið - 02.05.1991, Blaðsíða 1
16. TBL. 8. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 1991
VERÐ KR. 150,-
Frábær árangur íslands á NM matreiðslunema:
Bjami Norður-
landameistari
Bjarni Haraldsson, matreiðslu
nemi frá Akranesi, var annar
tveggja er skipuðu sigurlið Is-
lendinga í keppni matreiðslu-
nema á Norðurlöndum sem fram
fór í Reykjavík um helgina. Hinn
neminn var Kristján Gunnarsson
nemi í Lækjarbrekku. Bjarni
hefur numið hjá Francois Fons,
matreiðslumeistara hjá Hótel
Akranes og tekur sveinspróf sitt
innan skamms.
Það var mjög gaman að þessu,
sérataklega af því að þetta
fór svona,“ sagði Bjarni er
Skagablaðið ræddi við hann í
gær, þar sem hann stóð í flutn-
ingum hingað upp á Skaga.
Þetta var í fyrsta sinn sem ís-
lenskir matreiðslunemar bera
sigur úr býtum á Norðurlanda-
mótinu. íslenskir framreið-
skunemar hafa hins vegar unnið
guil á þessu móti.
Öll liðin þurftu að útbúa há-
degis- og kvöldverð, sem dóm-
nefnd síðan gaf einkunn. Bjarni
sagði hádegisverðinn hafa verið
óvæntan en kvöldverðurinn var
ákveðinn fyrirfram.
„Við fengum hráefnið í hádeg-
ismatinn um morguninn og hálfa
klukkustund til að setja saman
matseðii. Síðan fengum við þrjá
tíma til matseldarinnar. Kvöld-
verðurinn var hins vegar ákveð-
inn fyrirfram. Þar átti forréttur-
inn að vera úr iaxi, aðalrétturinn
úr lambahryggvöðva og eftirrétt-
urinn úr súkkulaði."
Þessi sigur á mótinu er ekki
aðeins upphefð fyrir íslenska
matreiðslumenn heldur einnig
fyrir Akurnesinga og þá sér í lagi
Hótel Akranes og Franocis Fons,
matreiðslumeistara.
Hús eyðileggst í eldi
Fokhelt einbýlishús við Jörundarholt eyðilagðist í eldi á mánudag. Húsið var úr timbri en klætt að
utan með steindum veggplötum. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í húsinu en lögreglan rann-
sakar nú tildrög eldsvoðans. Það var um kl. 14 að slökkviliði barst tilkynning um eldinn. Þegar að var
komið teygðu logarnir sig hátt til himins út um glugga og upp úr þaki hússins. Vel gekk að ráða niður-
lögum eldsins enda verður stillt. Þetta var annar eldsvoðinn á Akranesi á aðeins fjórum dögum. Á
föstudag varð eldur laus í íbúðarhúsi við Presthúsabraut. Þar urðu talsverðar skemmdir.
Fyrsti aðaHundur Haraldar Böðvarsonar hf. sl. laugardag:
Nýr kafli í útgerdarsögunni
- Stjóm fyrirtækisins heimiH að auka hlutafé um 60 millj. króna að nafnvirði
Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri SÍF, var kjörinn formaður
stjórnar Haraldar Böðvarssonar hf., nýja útgerðarrisans á Akranesi,
á fyrsta aðalfundi fyrirtækisins sl. Iaugardag. Um 60 manns sóttu
þennan fyrsta aðalfund. Fyrr um morguninn var síðasti formlegi aðal-
fundur Síldar- og fiskimjölsverksmiðju Akraness.
Aðrir í stjórn nýja fyrirtækis- ur í rekstri heldur taka húsa-
ins eru Sturlaugur Sturlaugs- kynni nýja útgerðarrisans stakka
son, varaformaður, Matthea
Sturlaugsdóttir, ritari, Óli Kr.
Sigurðsson, Kristinn Björnsson,
Hallgrímur Hallgrímsson og
Þorgeir Haraldsson.
Hlutafé Haraldar Böðvarsson-
ar hf. er 260 milljónir króna.
Samkvæmt samþykktum fyrir
félagið er nýkjörinni stjórn heim-
ilt að auka hlutafé um allt að 60
milljónir króna að nafnvirði. Það
hlutafé verður að líkindum boðið
út síðsumars eða í haust.
Sameining fyrirtækjanna
þriggja kemur ekki aðeins til
með að hafa í för með sér miklar
breytingar innanhúss og tilfærsl-
skiptum. Rauði liturinn sem ein-
kennt hefur hús HB & Co um
áratugaskeið víkur fyrir ljósum
lit sem verður á öllum húsum. Þá
hefur nýtt merki verið hannað og
skip félagsins verða einnig máluð
í nýjum litum.
Enn á eftir að ákveða formleg-
an sameiningardag fyrirtækjanna
þriggja en hann verður væntan-
lega í kringum næstu mánaða-
mót. Þá fara allir starfsmenn
fyrirtækjanna þriggja á launaskrá
hjá Haraldi Böðvarssyni hf.
Með sameiningunni verður hið
nýja fyrirtæki stærsti einstaki at-
vinnuveitandinn á Akranesi með
Næsta blað á miðvskudag
Þar sem Uppstigningardag ber upp á næsta fimmtudag verður
enn að hliðra útgáfu Skagablaðsins til. Ritstjórn vekur athygli
á því að næsta blað kemur út á miðvikudag, 8. maí. Efni og aug-
lýsingar sem eiga að birtast í því blaði þurfa að hafa borist í síð-
asta lagi á hádegi á þriðjudag.
um 300 starfsmenn. Til þessa
hefur Sjúkrahús Akraness verið
stærsti vinnustaður bæjarins með
á þriðja hundrað starfsmenn.
Með þessari sögulegu samein-
ingu skipar Akranes sér enn á
bekk á meðai frumkvöðla í ís-
lenskunr sjávarútvegi. Haraldur
Böðvarsson hf. er nú á meðal
fimm stærstu útgerðarfyrirtækja
landsins með veltu á þriðja
milljarð króna. Allt frá aldamót-
um hefur útgerð á Akranesi stað-
ið með blóma og einkennst af
framsýni. Útgerðarsögu Akra-
ness er í heiðri haldið með stofn-
Evafarinheim
Eva Aslanian, armcnska kon-
an sem kom hingað til lands fyrir
nokkru til hjartaaðgerðar fyrir
tilstilli Gísla Þráinssonar, ungs
Akurnesings, hélt heimleiðis á
laugardag.
Eva kom hingað upp á Akra-
nes á sumardaginn fyrsta og
heimsótti þá Gísla og fölskyldu
hans. Aðgerðin á henni heppn-
aðist vel. Söfnunin gekk einnig
mjög vel og náðust endar saman
að lokum.
un nýja fyrirtækisins, sem byggir
í senn á þeirri hefð sem frum-
kvöðlarnir skópu og framsýni
núverandi stjórnenda.
Bjarni Haraldsson — Norður-
landameistari matreiðslunema.
Glæsilegt Makmót
Sextánda íslandsmóti öldunga í blaki lauk hér á Akranesi á
laugardagskvöld með glæsilegri kvöldskemmtun í íþróttahús-
inu að Jaðarsbökkum. Mótið heppnaðist framúrskarandi vel og er
almennt talið það skemmtilegasta í þessum aldursflokki frá upp-
hafi. Myndin hér að ofan var tekin af nokkrum Skagamönnum í
hófinu.
— Sjá nánar á bls. 4.