Skagablaðið - 23.05.1991, Blaðsíða 1
¥ilja fá vivkara
Ofsaakstur vélhjóla um bæinn
hefur vakið talsverða athygli að
undanförnu og þá ekki síst að
ekki skuli hafa verið gripið í
taumana af hálfu lögreglunnar.
Einkum virðist vera um að ræða
tvö eða þrjú stór mótorhjól, sem
þeysa um bæinn eins og eigendur
þeirra séu með fjandann á hæl-
unum. Hávaðasöm minni hjól
koma einnig við sögu.
Þessi hraðakstur hefur ekki
farið framhjá forráðamönn-
um bæjarins sem boðuðu m.a. yfir
lögregluþjón bæjarins á bæjar-
ráðsfund fyrir stuttu vegna þessa.
Honum og umferðarnefnd bæj-
arins var á fundinum falið að gera
ráðstafanir til þess að draga úr
Magnús Oddsson, markaðsstjóri Ferðamálaráðs, afhendir Pórdísi Artursdóttur, ferðamálafulltrúa bœjar-
ins, snotra borðklukku úr íslensku grjóti í tilefni dagsins. ^
Fjölmenni við föimlega opnun uppiýsingaskrifstofu ferðamanna á Akranesi í gæn
Vantar fyrst og fremst alþveyingu
sem laðar ferðamem til Akraness
- sagði Magnús Oddsson, markadsstjóriFerðamálaráðs, í ræðu simi við opnunina
dag eða 11 milljarðar á einu ári.
hraðakstrinum með öllum tiltæk-
um ráðum jafnframtþvísem beint
var til lögreglunnar að hún herti
eftirlit með hraðakstri og beitti
radarmælingum í auknu mæli.
Nokkuð hefur verið um það að
bæjarbúar hafi komið að máli við
Skagablaðið og vakið máls á
þessu ástandi. Hafa þeir rætt um
ónæði af völdum hjólanna, sem
ekið er um íbúðarhverfi seint á
kvöldin með miklum látum.
Fiskmarkaður
setturupp?
Svo kann að fara að fiskmark-
aður verði settur upp hér á Akra-
nesi í haust.
Forráðamenn Fiskmarkaðar-
ins í Hafnarfirði hafa sýnt
áhuga á samstarfi og hefur Jón
Pálsson, iðnfulltrúi Vesturlands,
m.a. verið að skoða málið.
Margt góðra gesta var við formlega opnun upplýsingaskrifstofu
ferðamanna að Skólabraut 31 síðdegis í gær. Auk bæjarstjóra, bæjar-
fulltrúa og framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi
voru Magnús Oddsson, markaðsstjóri Ferðamálaráðs og María Guð-
mundsdóttir, framkvæmdastjóri Upplýsingamiðstöðvar ferðamála í
Reykjavík, viðstödd.
Ma
s
Iagnús sagði m.a. í ræðu
sem hann hélt við þetta til-
efni, að hann fagnaði þessum
áfanga í ferðmálum á Akranesi.
Hann sagði Akranes hafa upp á
margs konar þjónustu að bjóða
en ekki væri laust við að hér
vantaði meira aðlaðandi afþrey-
ingu. Skaut hann fram þeirri
hugmynd hvort ekki væri ráð að
Skagamenn byðu upp á einhvers
konar afþreyingu er tengdist sjó
eða siglingum, rétt eins og gert
væri á Höfn, ísafirði og í Stykkis-
hólmi með góðum árangri.
Magnús lagði á það ríka
Sveinn J.
áttræður
Einn af sérstæðari
borgum Akraness
fagnaði í gær áttræðis-
afmæli sínu. Petta er
Sveinn Jónsson, sem
kenndur hefur verið
við Kambshól alla sína
tíð þótt hann sé fæddur
að Katanesi. Sveinn
hefur undanfarin ár ver
ið vistmaður á Sjúkra-
húsi Akraness en tók
gærdaginn snemma og
var að sjálfsögðu
prúðbúinn er Skaga-
blaðið smellti þessari
mynd af honum.
áherslu í máli sínu, að uppbygg-
ing ferðaþjónustu væri viðkvæm
og tæki tíma. Miklu ntáli skipti
að menn hefðu úthald og þolin-
mæði til að bera. Ekki tjóaði að
leggja árar í bát þótt árangur
skilaði sér ekki strax. Þannig
væri því einfaldlega ekki farið í
þessari atvinnugrein.
í máli hans kom einnig fram,
að ferðamannaþjónusta væri
stöðugt vaxandi atvinnugrein á
íslandi. Alls störfuðu um 6000
manns við þessa grein og tekjur
af erlendum ferðamönnum væru
ráðgerðar um 30 milljónir kr. á
Gísli Gíslason, bæjarstjóri,
sagði í ræðu sem hann hélt við
þetta tækifæri, að Akranes væri í
raun að byrja upp á nýtt í ferða-
þjónustu með ráðningu ferða-
málafulltrúa og opnun upplýs-
ingaskrifstofu. Stofnun Skaga-
ferða á sínum tíma hefði ekki
skilað þeim árangri sem vænst
hefði verið en miklar vonir væru
bundnar við starf Þórdísar Art-
húrsdóttur, ferðamálafulltrúa.
Hún hefði unnið markvisst að
sínu starfi og það væri þegar far-
ið að skila árangri.
Listaverk
tilsýnis
Sú skemmtilega nýbreytni
er í hinni nýju upplýsinga-
miðstöð ferðamanna hér á
Akranesi að þar eru til sýnis
verk eftir þrjá listamenn
bæjarins.
Nú eru þar sýnd tvö verk
eftir Bjarna Þór Bjarna-
son, tvö eftir Guttorm Jóns-
son og eitt eftir Salóme
Guðmundsdóttur. Ætlunin
er að skipta um verk með
vissu millibili og gefa sem
flestum listamönnum bæjar-
ins tækifæri á að sýna brot af
verkum sínum á þessum vett-
vangi.
Sundmót IA og ESSO í Jaðarsbakkalaug um helgina:
—Fjölgun þátttakenda um 8D% frá því á sama móti í fýrra
Alls hafa 360 keppendur
skráð sig til leiks á ÍA - ESSO
mótinu í sundi sem fram fer hér
á Akranesi um helgina. Ljóst er
að mót þetta er eitthvert hið
fjölmennasta sem haldið er í
sundíþróttinni á þessu ári.
Geysileg fjölgun keppenda
er á mótinu frá því í fyrra
er skráðir þátttakendur voru
um 200 talsins. Keppendur
koma frá sextán félögum víðs
vegar að af landinu og keppt
verður í fjórum aldursflokkum.
Olíufélagið hf., ESSO, styrkir
mótið af mikilli rausn. Leggur
til alla verðlaunagripi auk þess
sem allir keppendur fá sér-
merktan bol til eignar.
Mótið hefst á laugardag kl. 9
árdegis og verður keppt fram
eftir degi. Úrslitasund þess dags
hefjast kl. 16. Sama fyrirkomu-
lag verður á sunudeginum. Þeir
tíu sem ná bestum árangri í
hverri grein komast í úrslit.
Með því móti næst mun meiri
spenna í mótið, jafnt fyrir kepp-
endur sem áhorfendur.