Skagablaðið - 27.06.1991, Síða 1
Náttúmundur í lækjarsprænu í landi Sauibæjan
Fátttt klak regnbogasilungs
Nokkur fjöldi smáseiöa svndir nú um í litlum
læk í landi Saurbæjar á Hvalfjarðarströnd. Seiöin
þættu ekki frásagnarverð ef ekki væri um aö
ræða afkomendur nokkurra regnbogasilunga,
sem sleppt var í lækinn fyrir tveimur árum.
Aðeins er vitað um tvö tilvik í Evrópu, þar
sem klak regnbogasilungs hefur heppnast úti
í náttúrunni. Fiskurinn er upprunalega frá
Norður-Ameríku.
„Við gerðum þetta nú bara að gamni okkar
árið 1989. Okkur langaði til að sjá hvort silungur-
inn lifði veturinn af. Hann gerði það og gott bet-
ur því hann hefur verið í læknum í tvo vetur og
virðist spjara sig. Ég hcld að það hafi verið 10
fiskar sem við settum t' lækinn og afkomendur
þeirra synda nú um í honum," sagði Finnur
Garðarsson, framkvæmdastjóri Fiskeldisfélags-
ins Strandar, í samtali við Skagablaðið.
Sögur hafa verið á kreiki um að fiskurinn hafi
sloppið úr eldisstöð og hreiðrað um sig í læknum.
Þær falla um sjálfar sig þar sem ógengt er úr sjó
í lækinn. Hann rennur fram af háum bakka í sjó
fram.
Finnur fóðrar seiðin í stöðinni að Hvalfjarðarströnd í gœr.
Þórdís ráðin
til 2ja ára?
Samkvæmt heimildum
Skagablaðsins hefur ver-
ið ákveðið að framlcngja
ráöningarsamning Þórdísar
Arthursdóttur. ferðamálaf-
ulltrúa, um tvö ár. Þórdís hóf
störf sl. haust og var þá ráðin
til eins árs.
Tvöfökl opnun
Það er ekki oft sem tvö-
föld opnun er á myndlist-
arsýningum. Svo verður þó
um borð í Akraborginni, þar
sem hátt í 20 listamenn opna
sýningu á Iaugardag. Fyrri
opnunin verður kl. 11 hér við
Akranes en sú síðari kl. 14.
FiskekEsfélagið Strönd á grænni grein mitt í gjaldþrotafári tiskeldisins:
Rdhýb’ng á næsta ári?
Á sama tínia og hvert gjaldþrotið hefur rekiö annaö í fiskeldinu hér
á landi og rekstrarstöövun blasir við þeim sem enn lifa stendur starf-
semi Fiskeldisfélagsins Strandar traustum fótum með jákvæða eigin-
fjárstööu. Hálft sjöunda ár er nú liðið frá því Strönd hóf fiskeldi í
sjókvíum undan Saurhæ á Hvalfjarðarströnd. Horfur eru á því að á
næsta ári geti stöðin í fyrsta sinn skilað af sér hámarksafköstum, 350
tonnum fiskjar. Stefnt er að því að slátra 150 tonnum af físki í haust.
Við erum með um 130.000 vatni. Síðasta hálfa árið fyrir
:
seiði í stöðinni núna og eig-
um von á 63.000 til viðbótar í
næstu viku,“ sagði Finnur Garð-
arson, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins cr Skagablaðið ræddi við
hann að Hvalfjarðarströnd í gær.
„Við erum núna með um 60.000
fiska í sjókvíunum sem verða
komnir í sláturstærð í haust, þ.e.
um 3 kg. A næsta ári stefnir í að
við getum í fyrsta sinn keyrt
stöðina með fullum afköstum,
þ.e. slátrað 350 tonnum af fiski
haustið 1992.“
Eftir áföll fyrstu árin, þar sem
Strandarmenn misstu stóran
hluta fiskjar síns oftar en einu
sinni, virðast erfiðleikarnir að
baki. Fiskurinn er nú hafður í
landkvíum fyrsta árið og vex þá
úr 30 - 40 grömmum í eins kílós
þyngd. í landkvíunum er hægt að
stjórna hitastigi sjávarins með
því að blanda við hann hitaveitu-
slátrun er fiskurinn svo haföur í
sjókvíum og þrefaldar þá þyngd
sína.
Ekki hefur reynst erfitt að
koma sláturfiski á markað. Að
sögn Finns hcfur hluti hans verið
seldur hér innanlands en stærsti
hlutinn erlendis í gegnum sölu-
kerfi SH. Vegna mikils framboðs
hefur verð á laxi verið fremur
lágt en nærri lætur að skilaverð á
kíló sé 260-320 kr. í dag. Finnur
taldi líkur á að verð færi hækk-
andi þar sem Norðmenn, sem
verið hefðu ráðandi á Evrópu-
markaði, stefndu að því að draga
úr framboði sínu.
En hver er skýringin á því að
Strönd stendur traustum fótum
á meðan flestir aðrir cru að fara á
hausinn, jafnvel með gjaldþrot
upp á hundruð milljóna króna?
„Meginskýringin liggur í því
að hluthafar hafa lagt fram mikið
fé, sennilega ekki undir 100 mill-
jónum króna að núvirði. ÖIl
uppbygging hefur verið yfirveg-
uð og markviss en þó framsækin.
Gert er ráð fyrir því að stækka
megi stöðina um helming ef þörf
krefur. Við látum hana fyrst
komast á full afköst við núver-
andi aðstæður áður en ráðist
verður í frekari framkvæmdir,“
sagði Finnur Garðarsson.
Jói og „ókindin“
Hún var ekki beint frýnileg þessi hámeri, þar sem Jóhannes
Eyleifsson trillukarl tók á henni á hafnarbakkanum síðdegis
í gær. Hámerina fékk Jóhannes á grunnsævi. Hún var mannhæð-
arlöng og vel á annað hundrað kíló. Fiskbúð Hafliða í Reykjavík,
sem oftlega býður upp á sjaldséð sjávarfang, keypti „ókindina“.
Borgarakóngur
Einn af stofnendum Burger
King veitingastaðakeðjunn-
ar heimskunnu, James McLa-
more, var hér á ferð á þriðjudag
ásamt konu sinni svo og sendi-
herrafrú Bandaríkjanna á íslandi
og fylgdarfólki.
Gestirnir fengu að skoða frysti
hús Hafarnarins og ekki bar á
öðru en þeir skoðuðu grannt það
sem fyrir augu bar. Á myndinni
fylgjast McLamore og kona hans
með vinnslu á karfa.