Skagablaðið - 08.08.1991, Page 1
27. TBL. 8. ARG.
FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1991
VERÐ KR. 150,-
Lngrcglunni á Akranesi
barst um hclgina kæra
vegna mcimrar naudgunar
aöfaranótt iaugarciags. Rann-
sókn málsins stendur ym.
I ugicgla vikli að oöru íeyli
ckkert láta hafa eftir sér um
maliö.
Bíræfnir þjófar brutust inn
í tvo hílsknra á Akranesi um
helgina og lióföii ineö sér
tæld. BseÖi innbrótín eru í
jólarmr holöu tvo verk-
'færakassa upp úr krafs-
inu í öðru innbrotinu cn í
liinu \nr fanö inn i bil. <em
stóð í skúrnum og útvarps*
tæki stoliö úr honum.
Rúða var brotin á árÍi-:;
tektastofu Magnúsar H.
Olalssoiui uin helgma l’að
þætti e.t.v. ekki í frásögur
færandí ef skrifstofan væri
ekki a annarn hæð I il vcrk
miðarms var nolað lannhjól
af vélhjóli og sat þaö kirfilcga
fast i rúðunni þegai ið vai
kornið Málið er i rannsókn.
■ r
LÖgreglan hefur að undan-
förnu farið um bæinn og
leitað uppi bifretðai sem \,m-
rækt hefur verið að koma
með 111 skoðuiiar. Talvert
mun um aö eigendur hifrciða
glcymi að færa þá til skoðun-
ar á tilskildum tíma.
Pdé 13 Akraness
Pelé —fullu nafni Edson Arantes
do Nascimento.
Hinn heimsfrægi Pelé, sem
stendur nú á fimmtugu, kemur
hingð til Akraness á þriðjudag-
inn. Heimsókn hans hingað er
liður í tslandsför hans á vegum
Knattspyrnusambands íslands.
Dagskrá hans er þéttskipuð þá
daga sem hann dvelur hér en ráð-
gert er að hann verði hér um há-
degisbilið á þriðjudag.
Að sögn Jóns Gunnlaugsson-
ar, stjórnarmanns í KSÍ,
stóð upphaflega til að Pelé kæmi
hingað á sunnudaginn en vegna
ferðaáætlunar hans reyndist það
ókleift. Pelé kemur hingað til
lands beint frá heimalandi sínu,
Brasilíu.
Búast má við múgi og marg-
menni á Jaðarsbökkum á þriðju-
dag þegar þessi mesti snillingur
knattsppyrnusögunnar kemur
hingað. Ráðgert er að sem flestir
keppnisflokkar Knattspyrnufé-
lags ÍA verði á svæðinu þegar
hann kemur en jafnvel er fyrir-
hugað að hann fljúgi með þyrlu
hingað frá Reykjavík og lendi á
þyrluvellinum á vallarsvæðinu.
Pelé, sem heitir fullu nafni
Edson Arantes do Nascimento,
hefur undanfarin ár ferðast víða
um heim til þess að kynna knatt-
spyrnuna. Hátindi ferils síns náði
hann árið 1970 er Barsilíumenn
urðu heimsmeistarar. Hann varð
einnig heimsmeistari árin 1958
og 1962. Á ferli sínum skoraði
hann vel yfir 1000 mörk og lék
aragrúa leikja, sennilega ekki
undir þúsundinu.
Harðorð bókun bæjarráðs Akraness vegna viðbragða sýslumanns í Borgamesi í hraðamælingamálinu:
BveyUng umdæma löngu tímabær
Bæjarráð Akraness samþykkti
á fundi sínum fyrir helgina harð-
orða bókun vegna þeirra við-
bragða sýslumannsembættisins í
Borgarnesi að endursenda kærur
vegna hraðamælinga til bæjar-
fógetans á Akranesi á þeim for-
sendum að þær hefðu átt sér stað
utan lögsögu Akraneslögregl-
unnar. Orðrétt segir í bókuninni:
Bæjarráð Akraness lýsir yfir
sérstakri óánægju sinni með
viðbrögð embættis sýslumanns
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu við
hraðamælingum lögreglunnar á
Akranesi á Akranesvegi.
Bæjarráð bendir á að fyrir
löngu sé orðið tímabært að
breyta umdæmi embætta bæjar-
fógetans á Akranesi og sýslu-
manns Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslu og vísast þar til umsagnar
bæjaryfirvalda til dómsmálaráðu
neytisins þar að lútandi frá í fe-
brúar sl.
Skorað er á dómsmálaráð-
herra að beita sér fyrir því að
reglum um lögsögu framan-
greindra embætta verði þegar
breytt og þau færð í nútímalegra
horf sem miði að því að auka
öryggi íbúa og vegfarenda á
svæðinu og bæta þjónustu við
þá . . .
. . . Bæjarráð telur, að á sama
tíma og óvenju mörg alvarleg
slys hafi orðið í umferðinni á
sama tíma og áskorunum um
hert eftirlit með hraðakstri bif-
reiða og vélhjóla er beint til lög-
regluembætta, m.a. frá dóms-
málaráðuneytinu, sé það tíma-
Þau hafa verið ófá tækifærin í sumar til þess að fara niður á
bryggju og renna fyrir fisk. Þessir tveir ungu menn munduðu
veiðistangirnar á bryggjunni í gær er Skagablaðið var þar á ferð.
Ekki fer sögum af aflanum enda skiptir slíkt minnstu máli þegar
veðrið leikur við veiðimennina.
Makalaus fengur í Eyrarvatni í Svínadal fyrír skömmu:
Bóndinn landaði laxi sem eigin*
konan missti tveimur dogum áður
Það átti ekki fyrir sex punda laxi í Eyrarvatni í Svínadal að Iiggja
að sleppa frá hjónunum Brynju Jóhannsdóttur og Magnúsi Ebenes-
ersyni, hárskera, frá Akranesi. Brynja setti í laxinn á föstudegi en
missti síðan. Tveimur sólarhringum síðar krækti eiginmaður hennar
í sama fisk og landaði honum þrátt fyrir að tugir annarra veiði-
manna væru við veiðar þessa helgi.
Brynja beitti maðki við veiðina og notaði bæði sökku og flotholt.
Laxinn sleit hins vegar línuna ofan flotholtsins og hvarf á braut
með hvoru tveggja í sér eftir stutta rimmu. Hjónin voru afturvið
veiðar á laugardeginum en urðu þá ekki vör frekar en fjölmargir
aðrir veiðimenn.
Það var svo á sunnudeginum að þau fóru enn til veiða við vatnið.
Þar sem fyrri veiðistaður þeirra var þéttskipaður áhugasömum
stangveiðimönnum rölti Magnús annað og kastaði. Og viti menn!
Öngullinn hjá honum kræktist í sökkuna, sem enn var föst í fiskin-
um ásamt flotholtinu, og á land fór laxinn.
Þær gerast sennilega ekki öllu magnaðri veiðisögurnar þetta
sumarið.
skekkja að sleppa ökuníðingum
við refsingu og ökuleyfissvipt-
ingu vegna úreltrar skiptingar
umdæma."
í bókuninni felur bæjarráð
bæjarstjóra jafnframt að rita
sýslumanni Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu bréf, þar sem
óánægju bæjaryfirvalda vegna
þessa máls er lýst.
Athugulir bæjarbúar hafa
veitt því eftirtekt að lista-
(Terkinu hcfur þó ckki
verið stoliö af einhjverj-
um oprúttnum heldur er það
í viðgcrð. Vcrkið, scm cr úr
stali, var tekið að ryðga
nokkuð cr nú unnið að því að
sandblása það og mála. Því
vcrður að viögcrð lokinni
komið fyrir á sínum stað.
staöar, hefur verið ráðin
aðalféhirðir bæjarins í stað
Einars Jónssonar, sem hættir
Jinar, scni í vikunni lagn-
aði fertugsafmæiinu, hef-
ur ráði sig til starfa hjá
Þorgeir & Ellert hf. Starf
Eirnýjar á bæjarskrifstofunni
cr auglýst í Skagablaðinu í