Skagablaðið - 10.10.1991, Qupperneq 1
Elínbjörg Magnúsdóttir,
varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins á Vestur-
landi, tekur á mánudaginn
sæti á Alþingi í fyrsta sinn.
Hún leysir af hólmi Guðjón
Guðmundsson sem fer til
New York á allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna í tvær
vikur ásamt þeim Steingrími
Sigfússyni og Önnu Olafs-
dóttur Björnsson.
Þingmenn Vesturlands
eiga í dag fund með
bæjarstjórn Akraness. Þeir
hafa að undanförnu verið á
yfirreið um kjördæmið og
funda með bæjarstjórn Borg-
arness í kvöld. Það verður
lokahnykkurinn í yfirreið
þeirra.
Hin nýja aðstaða Akra-
borgar við Faxagarð í
Reykjavíkurhöfn hefur í
flesta staði reynst mjög vel
en þó er einn hængur á
henni. Erfitt er að stýra skip-
inu að og frá garðinum í
hvassviðri af norðan- og
norðaustanátt. Þetta kom vel
í ljós á mánudaginn þegar
skipið varð að sleppa hádeg-
isferðinni þar sem það komst
ekki frá bryggju vegna roks.
Grundaskóli átti 10 ára
afmæli sl. sunnudag.
Skólayfirvöld ætla að minn-
ast afmælisins með veglegri
dagskrá í næstu viku.
Akraneskaupstaður sendi
fyrir nokkru frá sér
stórglæsilega ársskýrslu fyrir
árið 1990. Mikið upplýsinga-
gildi er í skýrslunni bæjarbú-
um til upplýsingar og fróð-
leiks. Það vakti hins vegar
nokkra athygli að nafn ferða-
málafulltrúa vantar í listann
yfir helstu embættismenn
bæjarins þótt hann hæfi störf
í október í fyrra. Hins vegar
eru bæði nýr garðyrkjustjóri
og yfirhafnarvörður til-
greindir í skýrslunni. Hvor-
ugur þeirra var hins vegar á
meðal starfsmanna bæjarins
á síðasta ári.
Hallur Bjarnason, málara-
meistari, hefur keypt
„Fólksbílastöðina“ við
Kirkjubraut af Olíufélaginu
hf. Hugmyndin mun sú að
hann flytji málningarvöru-
verslun sína af Kirkjubraut
40 skáhallt yfir götuna — að
Kirkjubraut 39.
Unnendur góðrar popp-
tónlistar fá eitthvað fyrir
sinn snúð þann 24. þessa
mánaðar er Todmobile held-
ur hér tónleika á vegum
NFFA.
Tjarnarbraut væri kannski réttnefni á götuspottanum á þessari mynd sem tekin var við Dvalarheimilið
Höfða í vikubyrjun. Um leið og tekur að rigna að ráði safnast mikið vatn í tjarnir við norðvesturgafl
hússins. Þar sem bílarnir standa við húsgaflinn er m.a. inngangur eldri borgara í „opið hús“. Þarf vart að
taka fram að aðkoman er ekki beint aðlaðandi þegar svona er ástatt. Skagablaðið fékk þær upplýsingar
að Höfða að þótt talsvert vatn væri við húsið þegar myndin var tekin væri ástandið oft verra en þetta.
Ljóst er að ekki rætist úr fyrr en gengið hefur verið frá svæðinu með bundnu slitlagi eða öðrum viðunandi
hætti.
Ræðilínukerfin skila fiskviraislufólki stórauknum tekjum:
Hundrað mkr á 3 ámm
Fiskvinnslufólk hjá Heimaskaga og HB & Có (nú Haraldur Böðv-
arsson hf.) hefur haft tæplega 100 milljónir króna í aukin vinnulaun
síðustu þrjú árin með tilkomu flæðilínukerfa. Heimaskagi tók upp
flæðilínu á miðju ári 1987 og HB & Co hálfu ári síðar.
Fréttir af stórhækkuðum bón-
us hjá fiskverkafólki hjá Út-
gerðarfélagi Akureyringa vöktu
athygli nýverið. Þar sagði að
bónusinn hefði hækkað úr 90 -
100 krónum á tímann í tæplega
200 krónur með tilkomu nýrrar
flæðilínu, sem fyrirtækið keypti
frá Þorgeir & Ellert hf. hér á
Akranesi.
Sem dæmi má nefna að bónus-
inn var 223 krónur á tímann hjá
Haraldi Böðvarssyni hf. í síðustu
viku. „Okkur þykir lélegt er
hann fer niður fyrir 200 krónur,“
sagði Jón Helgason, framleiðslu-
stjóri fyrirtækisins. „Þegar við
erum að vinna þorsk er bónusinn
iðulega rétt undir 300 króna
markinu.“
Ef gert er ráð fyrir því að bón-
us fiskvinnslufólks hafi hækkað
að meðaltali um 100 krónur á
tímann með tilkomu flæðilín-
anna og að vinnustundir séu 173 í
mánuði hefur hver starfsmaður í
fiskvinnslu hjá framangreindum
fyrirtækjum hækkað árstekjur
sínar um tæplega 200 þúsund
krónur sl. 3 ár. Þá er miðað við
vinnu ellefu mánuði ársins.
Starfsmenn í fiskvinnslu hjá Har-
aldi Böðvarssyni eru nú um 150
talsins.
Krossáhúddi
Lögreglumenn á eftirlitsferð
veittu því athygli aðfaranótt
föstudags að kross lá á vélarhlíf
bifreiðar, þar sem hún stóð við
Skagabraut. Mold var á krossin-
um og því augljóst að hann hefði
verið tekin af leiði í kirkjugarð-
inum. Krossinum var komið fyrir
á sínum stað á ný. „Ég hef aldrei
kynnst slíku á 30 ára ferli sem
lögreglumaður,“ sagði Svanur
Geirdal, yfirlögregluþjónn, í
samtali við Skagablaðið.
Talsverðar umræður
í bæjarstjórn í fyrradag
þegar hún lagði á endanum
blessun sína yfir vínveitinga-
leyfi til handa veitingastaðn-
um Þrír vinir og einn í baði.
Þegar gengið var til atkvæða
um málið voru fjórir bæjar-
fulltrúar samþykkir leyfinu,
þrír andvígir en tveir sátu
hjá. Leyfið tekur til sölu
kranaöls yfir sumartímann.
Þeir sem voru andvígir leyf-
inu vitnuðu m.a. til nálægðar
staðarins við skólann. Það er
hins vegar bæjarfógetaemb-
ættisins að veita endanlegt
leyfi. Slíkt verður þó væntan-
lega aðeins formsatriði úr
þessu.
Tipparar á Skaganum
voru virkir í meira lagi í
síðustu viku. ÍA var sölu-
hæsta félagið innan sölukerf-
is íslenskra getrauna, senni-
lega í fyrsta sinn í langan
tíma.
Tatung tölvurnar sem PC
- Tölvan hér á Akranesi
er með einkaumboð fyrir hér
á landi hafa vakið mikla at-
hygli samkeppnisaðilanna.
Stórfyrirtækið Einar J.
Skúlason í Reykjavík hefur
sýnt mikinn áhuga á að kom-
ast yfir umboðið en Sigurður
Pétur Hauksson, eigandi PC
- Tölvunnar, er ekki á þeim
buxunum að gefa það eftir.
Körfuknattleiksvertíðin
hefst formlega annað
kvöld þegar Skagamenn taka
á móti Hetti í 1. deild ís-
landsmótsins hér heima.
Leikurinn hefst kl. 20 í
íþróttahúsinu við Vestur-
götu. Miklar vonir eru
bundnar við Eric Rombach
sem er óðum að falla inn í
liðið og líklegur til stórafreka
í deildinni í vetur. Hann hef-
ur verið að skora um og yfir
30 stig í leikjum Skagaliðsins
að undanförnu.
litti nú . . .“ og svo framvegis sungu kylfingar á lokahófi Golf-
múbbsins Leynis við dynjandi undirleik Gísla Einarssonar,
bæjarfulltrúa og stórnikkara, á laugardagskvöld. Gestir létu ekki sitt
eftir liggja í fjöldasöngnum eins og sjá má af þessari mynd. Á henni
eru frá vinstri: Birgir Jónsson, Margrét (Lóló) Vilhjálmsdóttir, Arn-
heiður Jónsdóttir og Ragnar Helgason.
— Sjá nánar frá lokahófínu á bls. 6.
Veglegur vinningur í
Samkomiilag hefur tekist á milti Skagablaðsins og Kristjáns
Sveinssonar, umhoðsmanns Samiimml'erða l.aiiils\iiar hér á
Akranesi, að veita l'erðavinning þeim þálttakamla scm nær best-
um árangri í getraunaleik Skagalilaðsins cl'tir áramótin.
Vegna þessa verður lyrirkomulagi keppninnar breytt et'tir ára-
mót. Nú keppa tveir hverju sinni og svo verður fram til jóla.
Þeir fjórir spámenn sem na hæsta skori frarn aö þeim tíma taka
þátt i lirslitakeppninni sem hefst í januarbyrjun og stendur í 10
vikur. Skor átt;i bestu vikna gtldir. Sigurvegarinn t.ia að launum
utanlandsferð mcð Samvirmuferðimi 1 andsyn.