Skagablaðið - 31.10.1991, Blaðsíða 1
Verðbólga virðist mæld
eftir nýstárlegum að-
ferðum hjá þeim sem stjórna
ákvörðun gjalds fyrir
geymslupláss undir kartöflur
á Akranesi. Á aðeins tveim-
ur árum hefur þetta gjald
hækkað um 60%, úr 1000 kr.
á hverja stæðu í kr. 1600.
Karl K. Kristjánsson setti
Akranesmet sveina í
200 m baksundi um helgina.
Þá setti Rakel Karlsdóttir
Akranesmet meyja í 100
metra baksundi. Bæði metin
voru sett á móti sundfélags-
ins Ægis um helgina.
Húsfyllir var á tónleikum
poppsveitarinnar Tod-
mobile í Bíóhöllinni sl.
fimmtudag. Gestir skemmtu
sér að sögn frábærlega á tón-
leikunum og kunnu vel að
meta fjölbreytni í tónlistinni
og þá ekki síður klæðaburði
meðlimanna, sem skiptu æði
oft um föt á meðan tón-
leikunum stóð. Mun færri
sáu hins vegar tónleika GCD
á sunnudag enda þeir aug-
lýstir með stuttum fyrirvara.
Sveitin lék hins vegar fyrir
troðfullum sal í hótelinu
kvöldið áður.
Villikettir eru ekki á verk-
sviði neins að þvf er
virðist. Kona ein hér í bæ
leitaði nýverið eftir aðstoð
lögreglu við að koma villi-
ketti út úr bílskúrnum hjá
sér. Lögreglan vísaði á
meindýraeyðinn, sem aftur á
móti sagði ketti ekki á sinni
könnu og vísaði málinu eitt-
hvert annað. Konan gafst
ekki upp, herti upp hugann
og kom kettinum út á eigin
spýtur.
GÁSS - hópurinn heldur
enn forystunni í get-
raunahópleiknum á Skagan-
um og var eini hópurinn sem
náði 11 réttum um helgina.
GÁSS er nú með alls 87 leiki
rétta eftir 9 vikur, þremur
meira en Magic - Tipp sem
er með 84. Síðan koma Ernir
með 82 og Hafey með 80. Á
landsvísu er GÁSS í 2. sæti
ásamt fjórum öðrum hópum
með 80 rétta þegar lökustu
vikunni hefur verið kastað
út. Fjórir hópar eru með 81
réttan fyrir síðustu keppnis-
helgina.
Umboð Samvinnuferða/
Landsýnar hér á Akra-
nesi er nú orðið beintengt við
höfuðstöðvar ferðaskrifstof-
unnar í Reykjavík. Áður var
umboð Úrvals/Útsýnar hér á
Akranesi orðið beintengt.
Skagamenn eru því óneitan-
lega komnir í „gott
samband" við umheiminn.
Kirkjukórinn
til Lundúna
Kirkjukór Akraness heldur
á morgun áleiðis til Lund-
úna, þar sem hann syngur tón-
leikamessu í sænsku kirkjunni í
borginni á sunnudaginn. Ferð-
in verður þó ekki eingöngu
bundin við skylduverk því
kórmeðlimir ætla einnig að sjá
óperur og söngleiki í heims-
borginni. Kórinn hefur að
undanförnu æft stíft fyrir ferð-
ina og þá ekki síður fyrir þau
verkefni sem framundan eru í
vetur. Nánar er sagt frá starf-
semi Kirkjukórs Akraness á
blaðsíðu 2 í blaðinu í dag.
Guðmundur Páll Jónsson hjá Sundfélagi Akraness um Ijósabekkjasamninginn:
„Málið snýst um 100 þúsund“
„Það hefur ckkcrt komið fram sem sannar að breyta hefði átt
tekjuskiptingunni á milli Sundfélags Akraness og Akraneskaupstað-
ar. Af þeirri ástæðu einni gátum við ekki fallist á að okkar hlutur yrði
skertur frá því sem verið hefur,“ sagði Guðmundur Páll Jónsson hjá
Sundfélagi Akraness, er Skagablaðið ræddi við hann í kjölfar fréttar
í síðustu viku um samning ofangreindra aðila um Ijósabekki í Jaðars-
bakkalaug.
Það vantaði algerlega í frétt- félagi eins og sundfélaginu er
ina, að sundfélagið keypti unnið þróttmikið íþrótta- og
þúsundir vinnustunda í sjálf-
boðavinnu við að koma félaginu
í fremstu röð? Hér er verið að
deila um aumar eitt hundrað þús-
und krónur. Þær eru sundfélginu
mikilvægari en bæjarfélaginu og
við munum nota þær vel til upp-
byggingar okkar íþrótta- og
æskulýðsstarfs," sagði Guð-
mundur Páll.
umrædda bekki fyrir eigin reikn-
ing á sínum tíma. Upphaflegur
samningur á milli sundfélagsins
og Akraneskaupstaðar var á
svipuðum nótum og samningur á
milli bæjarins og aðila frá Akur-
eyri sem rak Ijósabekki í Bjarna-
laug. Bekkjunum var komið fyrir
í húsrými, sem ljóst var strax er
Jaðarsbakkalaugin var opnuð, að
nýttist lítið sem ekkert. Með til-
komu bekkjanna hefur þetta
rými reynst mikilvægt í rekstrin-
um. Ljóst var frá upphafi að allir
áhættuþættir í þessum rekstri
hvíldu á herðum félagsins," sagði
Guðmundur ennfremur.
Hann sagði bekkina, sem á
sínum tíma hefðu verið nýstárleg
fjáröflun og ekki skarast við fjár-
öflun annarra félaga, hafa skipt
miklu máli fyrir rekstur félagsins.
M.a. hefði í fyrsta sinn verið
hægt að ráða þjálfara í fullt starf.
Það eitt hefði skilað sér í bættum
árangri og öflugra starfi. Ótal
dæmi væru því til sönnunar. Full
ástæða væri til þess að þakka
bæjaryfirvöldum mikinn stuðn-
ing á liðnum árum, ekki hvað síst
í tengslum við rekstur umræddra
bekkja.
Guðmundur sagði sundfélags-
fólk ekki sátt við þann hluta
fréttarinnar þar sem sagði, að
breyta hefði átt tekjuskiptingu
samningsins í samræmi við tillög-
ur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa
ætlaði bærinn sér að gæta hags-
muna sinna. „Hagsmuna
hverra?" spurði Guðmundur og
bætti við:
„Hverra hagmuna er það, að í
æskulýðsstarf? Hverra hagsmuna
er það að fjöldi fólks hefur gefið
Ekiðákonu
Alvarlegt umferðarslys varð
síðdegis í gær er ekið var á konu
ofarlega á Kirkjubraut. Hún
hlaut m.a. ökklabrot auk ann-
arra áverka. Konan var flutt á
Sjúkrahús Akraness og síðar til
Reykjavíkur til frekari rannsókn-
ar.
Þá varð harður árekstur á
Faxabraut um miðjan dag á
þriðjudag. Þar rákust saman
tveir bílar og varð að draga báða
af vettvangi. Að sögn lögreglu
voru ökumenn beggja bifreið-
anna fluttir á sjúkrahús til rann-
sóknar en meiðsli þeirra reynd-
ust minni en talið var.
kessar fjórar snjöllu stúlkur gerðu sér lítið fyrir um helgina og
settu Islandsmet í 4 x 100 m skriðsundi í flokki meyja. Þær
hjuggu heilar 10 sekúndur af gamla metinu, sem var sett árið
1984. Tíminn sem þær fengu var 4:54,63 mín. en gamla metið var
5:04,66 mín. Stöllurnar sögðu metið hafa komið sér á óvart en
kannski dreif sú staðreynd þær áfram, að þær voru að keppa við
sér eldri andstæðinga í kvennaflokki. Þær sem skipuðu metsveit-
ina heita Lára Dóra Valdimarsdóttir, Rakel Karlsdóttir, Margrét
Guðbjörnsdóttir og Berglind Fróðadóttir.
Æfingabúðir foreldrafélags Skólaliljómsveitar Akraness um helgina:
Þátttakendur verða inri 200
Foreldrafélag Skólahljóm-
sveitar Akraness gengst um helg-
ina fyrir heljarmiklum æfinga-
búðum í Brekkubæjarskóla fyrir
skólahljómsveitir víðs vegar að
af landinu. Um 200 börn og ungl-
ingar taka þátt í þessum æfinga-
búðum.
Þau sem koma lengst að koma
alla leið frá Vík í Mýrdal og
Hvammstanga. Auk barna og
unglinga í Skólahljómsveit Akra-
ness verða þarna einnig jafnaldr-
ar þeirrar frá Þorlákshöfn, Kefla-
vík, Njarðvík og Reykjavík.
Lokaþáttur æfingabúðanna
verða tónelikar á sal Brekku-
bæjarskóla kl. 14.30 á sunnudag.
Aðgangur er ókeypis.
Hópurinn kemur til Akraness
annað kvöld og standa æfinga-
búðirnar yfir til sunnudags. Þátt-
takendur gista í Brekkubæjar-
skóla á meðan dvölinni hér
stendur.
Stjórn Skólahljómsveitar
Akraness samþykkti á fundi sín-
um nýverið að koma á fót svo-
kallaðri „B - sveit“. Meginþorri
þeirra sem nú skipa Skólahljóm-
sveit Akraness er kominn á fram-
haldsskólaaldur og því talið
brýnt að hefja undirbúning stof-
unar nýrrar sveitar sem leyst gæti
hina af hólmi, að hluta eða að
öllu leyti.