Skagablaðið - 05.12.1991, Síða 1
Gissur Þór Ágústsson, formaður Húsnædisnefndar, um gerðardóminn í máli TGM og Akranesbæjan
n
Hvomgur getur hrósað sigrí
:((
Skagablaðinu hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Gissuri Þór
Ágústssyni, formanni Húsnæðisnefndar Akraness, í kjölfar fréttar
blaðsins um niðurstöðu gerðardóms í máli Trésmiðju Guðmundar
Magnússonar gegn Akraneskaupstað í síðustu viku:
Vegna umfjöllunar um nýfall- til 15. júlí 1990 um að skila því.
inn gerðardóm og viðskipti Þessa dagsetningu stóðst verk-
við Trésmiðju Guðmundar
Magnússonar (TGM) og yfirlýs-
ingar Emils Þ. Guðmundssonar
vill undirritaður upplýsa eftirfar-
andi varðandi umrætt mál:
Afhendingardráttur
1. Þann 25. september 1990
samþykkti bæjarráð samhljóða á
fundi sínum að svipta verktaka
verkinu, enda voru bæjarráðs-
menn sammála um að við-
skilnaður verktaka á íbúðunum
væri ekki í samræmi við samn-
inga, einnig voru sumir kaupend-
ur að íbúðunum á götunni.
Samkvæmt samningi við verk-
taka átti verkinu að vera lokið
þann 1. júní 1990 en verktaki
hafði fengið viðurkenndan frest
Nýr formaður
stjómarSR
Kri.stján Sveinsson hefur
verið skipaður formaður
stjórnar Sementsverksmiðju
ríkisins af Jón Sigurðssyni,
iðnaðarráðherra. Skipan
hans verður staðfest af Al-
þingi í dag eða á morgun.
Þar með er endi bundinn
á þá „stjórnarkreppu“
sem ríkt hefur undanfarna
mánuði í kjölfar þess að Eið-
ur Guönason, fyrrverandi
formaður, varð ráðherra. Sú
regla hefur gilt að ráðherrar
gegni ekki formannsstöðu
hjá SR.
Auk Kristjáns sitja í stjórn
SR þau Ingi Björn Alberts-
son, Steinunn Sigurðardóttir,
Inga Harðardóttir og Friðjón
Þórðarson.
taki ekki frekar en aðrar sem
hann hafði sett fram um verklok.
Nánast allan þann tíma sem á
verkinu stóð var TGM í deilum
við undirverktaka sína, jafnvel
svo að þeir lögðu niður störf og
neituðu að halda áfram með verk
sín nema fá greitt beint frá Hús-
næðisnefnd Akraness, sem var
samþykkt að hluta til, fyrst og
fremst til að þoka verkinu áfram.
Voru deilur þessar svo alvar-
legar að þrír þessara undirverk-
taka eru nú í málaferlum við
TGM varðandi viðskipti sín um
umrætt verk.
Féll á formsatriðum
2. Niðurstaða gerðardóms
varðandi mál þetta er vissulega
vonbrigði fyrir bæjaryfirvöld, en
niðurstaða dómsins að mati
undirritaðs er byggð fyrst og
fremst á tæknilegum túlkunar-
atriðum. í dómnum segir meðal
annars „Dómurinn lítur svo á að
með tómlæti sínu hafi varnaraðili
samþykkt að verklok skyldu vera
25. ágúst 1990“.
Dómurinn byggir þessa niður-
stöðu sína á þvf að verktaki hafi
fengið að leggja fram á verkfundi
athugasemdalaust eina af fjöl-
mörgum verkáætlunum sínum, í
það sinn með skilum á verkinu
þann 25. ágúst 1990. Mönnum
þótti ekki ástæða til á þessum
tíma að taka afstöðu til þessarar
verkáætlunar þar sem undir-
verktakar voru ekki að störfum
og höfðu ekki undirritað áætlun-
ina.
En þrátt fyrir það var sífellt
verið að bóka á verkfundum hjá
Húsnæðisnefnd að verkið væri
ekki í samræmi við áætlun, of
fáir menn að störfum og að loka-
dagur verksamnings væri 15. júlí
1990. Þrátt fyrir þessar bókanir
sá dómurinn ástæðu til að dæma
riftunina ólögmæta.
Það er skoðun undirritaðs að
ef öll formsatriði hefðu verið
uppfyllt og verktaki verið sviptur
verkinu þegar Húsnæðisnefnd
lagði það til við bæjaryfirvöld í
júní 1990 hefði niðurstaða dóms-
ins orðið önnur. Jafnframt má
benda á þáð að ef TGM hefði
staðið við sína eigin verkáætlun
(þá síðustu sem lögð var fram)
með verkskil þann 25. ágúst 1990
hefði að sjálfsögðu ekki komið til
riftunar eins og raunin varð á
þann 29. september 1990 en þá
voru íbúðirnar ekki tilbúnar og
miklar vanefndir utandyra.
Ósannar yfirlýsingar
TGM
3. Yfirlýsingar TGM um 14
milljóna greiðslur bæjarins vegna
þessa máls eru ósannar. Hið
rétta er að bærinn var dæmdur til
að greiða TGM kr. 1.145.778 í
aukaverk ásamt dráttarvöxtum
að upphæð kr. 736.824 svo og
hluta í kostnaði við gerðardóm,
kr. 1.373.277, og endurgreiða
það geymslufé sem verktakinn
átti inni hjá framkvæmdaraðila,
kr. 2.598.914. Að sjálfsögðu er
lögfræðikostnaður málsaðila
þessu til viðbótar en hvor aðili
þarf að standa straum af þeim
kostnaði fyrir sig.
Ljóst má vera að hvorugur að-
ili getur státað sig af sigri. Báðir
aðilar hafa af því nokkurn
kostnð og er það umhugsunar
virði fyrir málsaðila varðandi
viðskipti sín í framtíðinni.
Aðdragandi samnings
við TGM
4. Nauðsynlegt er gera grein
fyrir aðdraganda þess að Hús-
næðisnefnd Akraness samdi við
TGM um umrætt verk. Sam-
kvæmt lögum um Húsnæðis-
stofnun ríkisins skal að öllu jöfnu
taka lægsta tilboði í verk sem í
eru félagslegar íbúðir. Að öðrum
kosti fjármagnar framkvæmdar-
aðili mismuninn.
Þegar Húsnæðisnefnd stóð
frammi fyrir því að TGM var
lægstbjóðandi voru ekki önnur
ráð en að reyna að tryggja það
sérstaklega að skil verktaka væru
eðlileg á verkinu. Krafist var
aukatryggingar frá verktaka um
5% þannig að verktrygging verk-
taka var í heild 15%
Þessarar tryggingar var krafist
vegna reynslu Akraneskaupstað-
ar af umræddum verktaka. Má
þar á meðal nefna að nauðsyn-
legt var að taka verk af TGM við
framkvæmdir raðhúsa við dvalar-
heimilið Höfða, svo og að verk-
taki skilaði íbúðum sem þáver-
andi stjórn verkamannabústaða
keypti af TGM, á annað ár of
seint með tilheyrandi óþægind-
um fyrir væntanlega kaupendur.
í ljósi þessara fyrri viðskipta
svo og efasemda Húsnæðisnefnd-
ar um verktakann komu þessi
skil hans undirrituðum ekki á
óvart frekar en ummæli Emils
Þórs Guðmundssonar í fjölmiðl-
um nú undanfarið. Lýsa þau um-
mæli framkomu og vinnuháttum
forsvarsmanna Trésmiðju Guð-
mundar Magnússonar og eru
ekki svara verð að mati undirrit-
aðs.
Að endingu vill undirritaður
taka fram að um frekari greinar-
skrif verður ekki að ræða af hans
hálfu varðandi mál þetta.“
Verelunarmannafélag Reykjavikur kaupir 10 sumarbústaði af Trésmiðjunni Akri:
Samningur upp á 41,5 miflj. kr.
Trésmiðjan Akur hefur undirritað samning við Verslunarmanna-
félag Reykjavikur um smíði á 10 sumarbústöðum sem afhendast eiga
í maí á næsta ári. Samningurinn hljóðar upp á 41,5 milljón króna og
er að sögn Stefáns Teitssonar, framkvæmdastjóra Akurs, einhver sá
stærsti sem fyrirtækið hefur gert.
Bústaðirnir, sem hver um sig til lokaðs útboðs á meðal fjög-
eru 50 fermetrar að stærð, urra framleiðenda sumarhúsa og
verða settir niður í landi Mið- hreppti Akur hnossið. Litlu
húsa í Biskupstungum. VR efndi munaði þó á Akri og þeim sem
4
Um
næstur kom. Umsamið verð er
því sem næst í samræmi við
kostnaðaráætlun.
Að sögn Stefáns kemur þessi
samningur til með að leiða af sér
fjölgun starfsmanna hjá Akri.
Bæði er þar um smiði og ófag-
lærða starfsmenn að ræða.
Rekstur Akurs stendur í
blóma um þessar mundir og nóg
er um verkefni hjá fyrirtækinu.
Auk sumarbústaðanna stendur
fyrirtækið í byggingu 12 íbúða
fyrir Búseta. Þá er Akur með
innréttingar í nýbyggingu Höfða
og er í vikunni að ljúka við inn-
réttingar í Heilusgæslustöðinni.
Auk þess hefur verið talsvert um
verk fyrir utanbæjaraðila, þar
sem Akur hefur tekið að sér hlut-
verk undirverktaka.
Þversnið af bústað eins og þeim sem VR hefur keypt af Trésmiðjunni Akri.
Tvö blöð enn fyrir jól
Skagablaðið vill vekja athygli lesenda sinna og auglýsenda á því
að aðeins eiga eftir að koma út tvö blöð fyrir jól og þar með á
þessu ári.
Blaðið verður á ferðinni eftir rétta viku, 12. desember en jóla-
blaðið, sem verður litprentað og a.m.k. 24 síður að stærð,
kemur út miðvikudaginn 18. desember.
Vakin er athygli á því að þeir sem vilja koma efni í jólablaðið
þurfa að hafa skilað því af sér í síðasta lagi á hádegi föstudaginn
13. desember. Auglýsingar þurfa að hafa borist í allra síðasta lagi
á hádegi 16. desember.