Skagablaðið


Skagablaðið - 09.01.1992, Síða 3

Skagablaðið - 09.01.1992, Síða 3
Skaaablaðið 3 hillir undir hvftan bjanna Á síðustu dögum hefur mörgum verið tíðrætt um bölmóðinn og varað við því að einblína á hann þótt harðni á dalnum. Við á Akra- nesi höfum ekki farið varhluta af bölmóðnum og þekkjum áhrif hans. Sem betur fer er nú allnokkuð síðan við vörpuðum bölmóðsmörunni af okkur og allt síðasta ár voru Skagamenn að mestu lausir við svart- sýnishjal þótt fýsibelgir fjölmiðlanna hafi oft verið skammt undan til þess að blása lífi í vandræðaglóðirnar. Margir benda á, að ekki þýði að stinga hausnum í sand- inn og láta eins og alltaf sé allt f lagi. Petta er réttmæt ábending að vissu marki, en hana verður að skoða í ljósi þess að sum vandamál getum við leyst sjálf, en gagnvart öðrum vanda erum við ráðalaus. Góð dæmi um aðgerðir til þess að leysa vanda er öflug markaðs- sókn byggingarfyrirtækja á Akranesi, Porgeirs og Ellerts hf. og fyrirtækja sem sjá möguleika á sviði ferðamála. A hinn bóginn ráðum við engu um eftirspurn á kísiljárnmörkuðum, um sölu sements og ákvörðun stjórnvalda um aflakvóta. Þegar herðir að á þeim þáttum verðum við að hafa bjartsýni og þolinmæði við hend- ina. Við hverju má búast á árinu? Þann 1. janúar s.l. voru 50 ár liðin frá gildistöku laga um Akra- neskaupstað og þann 2. janúar var bæjarbúum færð glæsileg af- mælisgjöf með tilnefningu Ragn- heiðar Runólfsdóttur sem íþróttamanns ársins 1991. Af- mælis bæjarins verður minnst með ýmsum hætti, m.a. þann 26. janúar n.k. verður tekinn í notk- un glæsilegur salur í Fjölbrauta- skóla Vesturlands og þann 25. janúar n.k. verður vígð ný heilsugæslustöð. Getum við beð- ið um betri byrjun á afmælisári? Vonandi verða aðrir mánuðir ársins viðburðaríkir á Akranesi. Vissulega vitum við um þá þætti sem koma til með að valda okkur áhyggjum. Umbylting í sjávarútvegi, ótryggur kvóti og samdráttur á ýmsum sviðum þjóðlífsins mun vafalaust valda okkur vanda. En þessir þættir munu ekki valda okkur meiri vanda en öðrum og því er það okkur öllum nauðsyn að leggjast fast á árarnar til þess að vinna á móti því sem við viljum ekki hafa. Þegar vandamálin eru kruf- in til mergjar og lausnirnar eru ekki við hendina þá er gott að minnast þess sem Davíð Stefáns- son frá Fagraskógi ritaði: „Gegn- um alla heimsins harma, hillir undir hvítan bjarma.“ Þannig er það á Akranesi, að við vitum að stundarvandræði munu víkja fyr- ir þeim möguleikum sem bærinn okkar og bæjarbúar hafa að bjóða. Góðir verkáfangar Á næstu mánuðum verður lok- ið góðum verkáföngum auk þeirra sem nefndir voru hér að framan. Tekinn verður í notkun nýr og glæsilegur tónlistarskóli, búningsklefar við íþróttahús ÍA og iokaáfangi innanhúss að Höfða. Vonandi tekst einnig að ljúka við innréttingar á efri hæð Fjölbrautaskólahússins á þessu ári. Með því að taka þá verk- áfanga í notkun sem nefndir hafa STYRKUR - UÐ- IJIIIÍI - IHIL Leikfimin hefst að nýju mánudaginn 13. janúar. Innritun á staðnum föstudaginn 10. og laug- ardaginn 11. janúar frá kl. 13 - 15. Ir* LÍKAMSRÆKTIN SUÐURGÖTU 126 - SÍMI13240 Myndlistarnámskeið Myndlistarnámskeið verður haldið á næstunni í Brekkubæjarskóla. ★ Byrjendahópur (fullorðnir) ★ Framhaldshópur (fullorðnir) Kennt verður eitt kvöld í viku. Kennari: Hrönn Eggertsdóttir. Uppl. og umsóknir í síma 12781 í dag, föstudag og laugardag kl. 17- 19. verið er stígið stórt skref fram á við í skólamálum, heilsugæslu- málum, málefnum aldraðra og íþróttamálum. Þessir áfangar færa okkur nær því markmiði að gera Akranes að fyrirmynd ann- arra sveitarfélaga á þeim sviðum sem við viljum leggja áherslu á. En verkefnunum lýkur því miður ekki á þessu ári og reyndar ekki á þessari öld, sem fer nú að ljúka. Stjórnsýslu bæjarins og félagsaðstöðu og skrifstofum Grundaskóla þarf að koma undir þak auk þess sem verkefni í Brekkubæjarskóla bíða úrlausn- ar auk margra annarra þátta í bæjarlífinu svo sem gatnagerðar o. fl. Fjárhagsáætlun bæjarins 1992. Um þessar mundir stendur yfir vinna við gerð fjárhagsáætlunar bæjarins 1992. Erfiðara kann að verða að láta enda ná saman en oft áður, m.a. vegna þess að rík- ið vill hluta af tekjum okkar til að reyna að leysa erfið vandamál ríkissjóðs og ákvörðun tveggja stórra sveitarfélaga á höfuðborg- arsvæðinu um að hækka útsvör munu að óbreyttu hafa veruleg áhrif á framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, en þau skipta okk- ur miklu máli. Álagningarhlutfall útsvars, fasteignaskatts og að- stöðugjalda verður óbreytt á Akranesi árið 1992. Þannig er ljóst að tekjutapi okkar, ef framangreindar hug- myndir ná fram að ganga, verður ekki mætt með aukinni skatt- heimtu. Því blasir við okkur að draga úr útgjöldum ef mögulegt er og að láta verkefni bíða, en mjög mikilvægt er fyrir okkur að varðveita góðan árangur í fjár- málum bæjarins og freistast ekki til óhóflegra lántaka. Eins og með önnur vandamál bíður okk- ar glíma um fjárhagsáætlun — glíma sem við ætlum, eins og aðrar glímur, að vinna. Góð byrjun á afmælisári er hvatning til dáða Ég lýsti að framan góðri byrj- un þessa fimmtugasta árs Akra- neskaupstaðar og gat um þætti sem við skulum líta til með eftir- væntingu og við þann lista má bæta heimsókn forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur. Það er því óhætt að ljúka þessu greinar- korni með því að óska Akurnes- ingum öllum nær og fjær gleði- legs árs og biðja um að sá byr, sem blæs okkur þessa fyrstu daga afmælisárs verði okkur hvatning til dáða. Barnaleikfimi Nú bjóðum við upp á leikfimi fyrir 3 - 6 ára böm: ★ Leikir ★ Dans ★ Söngur ★ /Efmgar Innritun á staðnum föstudaginn 10. og laug- ardaginn 11. janúar írá kl. 13 - 15. LÍKAMSRÆKTIN SUÐURGÖTU 126 - SÍMI 13240 Bókhaid — VSK uppgjör , s Launaútreikningar o. fl. P HÁHOLTI 11, AKRAHESi — SIMI 13099 LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA —Málflutningur, innheimtur, skjalagerð, búskipti -|-Fr Lögmannsstofan Kirkjubraut 11 J Tryggvi Bjarnason, hdl. 1 Símar 12770 og 12990 Viðtalstímai frá kl. 14.30 - 16.00 eða eftir nánara samkomulagi. Bílaleiga - bílaverkstæði Allar almennar viðgerðir. VISA ] - Réttingar og sprautun. | EunOCARO BRAUTI3NT HF. Dalbraut 16 S 12157 TRÉSMÍÐI hef opnað trésmíðaverkstæði að Kalmansvöllum 4. Öll almenn smíðavinna. Tilboð eða tímavinna. Trésm. Hjörleifs Jónssonar Sími 12277 — Heimaslmi 12299 ,VÉLAVIN]MA Leigjum út flestar gerðir vinnu- SlfílFI AN' v^a- Önnumst jarðvegsskipti l'U| 1Jv ogútvegummöl sandog mold. Faxabraut 9 F1jót og orugg þjónusta. 0 13000 Jaðarsbakkalaug JdðarsbaHkalaug er opin alla virka daga frá kl. 7 til Zl, laugar- og sunnudaga frá kl. 9 til 16. MÁLi\Ii\(Í Getum bætt \ið okkur verkefnum í alhliða malningar- \innu. HRAUNUM - SANDSPÖRSLUM - MÁLUM. Tilboð cða thnaviima. UTBRIGÐI SF. Jaóarsbraut 5 S I232S & 985-2!) 119

x

Skagablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.