Skagablaðið

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Skagablaðið - 09.01.1992, Qupperneq 10

Skagablaðið - 09.01.1992, Qupperneq 10
Skagablaðið Mynd af hluta hópsins sem gekk fylktu liði upp á íþróttavöll á þrettándanum. Fjölmenni á álfabrennu Metaðsókn var að álfabrenn- unni á þrettándanum sl. mánu- dag. Telja kunnugir að hátt á þriðja þúsund manns hafi sótt brennuna í góðu en köldu veðri sl. mánudag. ins og venja hefur verið und- anfarin ár var lagt upp í hóp- göngu frá Arnardal, þar sem álfar, skessur og tröll fóru í fylk- ingarbrjósti en jólasveinar voru skammt undan. Alla leiðina upp á íþróttavöll var fólk að slást í hópinn. Að vanda var sungið dátt og dansað umhverfis brennuna og þegar köstinn tók að brenna nið- ur tók við glæsileg flugeldasýn- ing. Fæðingum fækkaði ’91 Alls fæddust 180 börn á Sjúkrahúsi Akraness á síðasta ári, 24 færra en árið 1990 sem reyndar var dálítið sérstakt. Fæðingar þá voru nefnilega fleiri en verið hafði allt frá árinu 1982. Af þess- um 180 börnum voru 89 frá Akranesi en 91 frá stöðum utan Akra- ness. Þrátt fyrir að fæðingum hafi fækkað um 24 á síðasta ári er talan engu að síður há. Arið 1982 fæddist hér 201 barn, 187 árið 1983, 178 árið 1984, 175 árið 1985, 176 árið 1986, 167 árið 1987, 177 árið 1988 og 166 árið 1989. Ovænt „hvás11 ferðamanna Skagamenn velta því gjarnan fyrir sér hvort Akranes sé á korti ferðamanna. Svo virðist greini- lega vera því á milli jóla og nýárs kom hingað tæplega 190 manna hópur Svisslendinga og Itala á vegum Ferðaskrifstofu Guð- mundar Jónassonar. Góður róm- ur var gerður að heimsókninni og þeim móttökum sem hópurinn fékk. órdís Arthursdóttir, ferða- málafulltrúi Akraneskaup- staðar, sagði í samtali við Skaga- blaðið að heimsóknin hefði í senn verið ánægjuleg og strembin. Upphaflega var ætlun- in að hópurinn kæmi hingað á Gamlársdag en þar sem ekki viðraði til flugs til Vestmanna- eyja daginn áður var förinni hingað flýtt um einn dag. Sinawikkonur á Akranesi urðu því að hafa hraðar hendur við undirbúninginn því ætlunin var að bjóða ferðamönnunum upp á nýbakaðar kleinur og heitt súkkulaði í Garðahúsinu. Þrátt fyrir þessa óvæntu uppákomu tókst að taka á móti gestunum á þann hátt sem skipulagt hafði verið að mestu, nema hvað hliðra varð til fyrirhugaðri heim- sókn í kirkjuna vegna jarðarfar- ar. Þess í stað skoðuðu ferða- mennirnir höfuðstöðvar Harald- ar Böðvarssonar hf. og höfðu gaman af. Sagði Þórdís sérstaka ástæðu til þess að þakka forráða- mönnum fyrirtækisins velvild þeirra og aðstoð í þessu tilviki. Greiðasemi þeirra hefði hrein- lega bjargað deginum. Góð byrjun á nýja árinu Akranes virðist svo sannarlega á góðri leið með að festa sig í sessi sem áhugaverður staður til heimsókna á meðal útlend- inga eins og sjá má af fréttinni hér að ofan. Nýja árið var varla gengið í garð þegar hingað komu nokkrir franskir ferðamenn strax að morgni 2. janúar. Þeir skoðuðu m.a. Byggðasafnið að Görðum á meðan skammri dvöl þeirra hér stóð. Freyfaxs að Görðum Byggðasafninu að Görðum var þann 30. desember sl. afhent líkan af Freyfaxa, skipi Sementsverksmiðju ríkisins. Það voru þeir Friðrik Jónsson og Gylfi Þórðarson sem afhentu Gutt- ormi Jónssyni, safnverði, skipið. Þetta var jafnframt síðasta form- lega embættisverk Friðriks sem hætti störfum hjá SR um áramót- in eftir áratuga farsælt starf. Meðfylgjandi mynd var tekin við af- hendinguna í byggðasafninu. Þorsteinn Hannesson, forseti Rotaryklúbbs Akraness, Sigrún Pálsdótt- ir og Loftur J. Guðbjartsson, umdœmisstjóri Rotaryhreyfingarinnar á íslandi. Tímamót hjá Rotaryklúbbi Akraness strax í byijun nýs árs: Fvrsta konan tekin inn Blað var brotið í sögu Rotary- reyfingarinnar á Islandi í síð- stu viku er Rotaryklúbbur kkraness tók inn fyrstu konuna í reyfinguna hérlendis. Frum- vöðullinn heitir Sigrún Páls- óttir, 36 ára gæðastjórnandi hjá denska járnblendifélaginu að Irundartanga. Með inntöku Sigrúnar í Rotaryklúbb Akraness sló ísland botninn í þá þróun sem átt hefur sér stað á Norðurlöndum á undanförnum misserum, þar sem konur hafa gengið í Rotary- klúbba í hverju landinu á fætur öðru. Konur eru nú meðlimir í Rotaryhreyfingunni víða um heim Sjór í trillu í hófninni ^#iðvörunarkerfi í trillunni Ebba kom að líkindum í veg fyrir W meira tjón en raun bar vitni er sjór komst í trilluna þar sem hún lá við bryggju f Akraneshöfn aðfaranótt þriðjudags. Við- vörunarljós á trillunni tóku að blikka er sjór rann inn í hana. Vart varð við ljósin um kl. 4 um nóttina. Lögreglu og eiganda trillunn- ar var gert viðvart og fljótlega var hafist handa við að dæla sjó úr henni. Talið er að sjór hafi komist inn um botnloka. í kjölfar niðurstöðu hæstaréttar- dóms í Kaliforníu fyrir nokkrum árum, þar sem komist var að því að hreyfingunni væri óheimilt að synja konum inngöngu þar sem það stríddi gegn jafnréttislögum viðkomandi þjóðar. Sigrún er ekki óvön því að vera brautryðjandi á sínu sviði. Hún var t.d. fyrsta konan sem út- skrifaðist úr vélaverkfræði frá Háskóla íslands árið 1979. Tveimur árum síðar lauk hún MSc prófi í faginu við háskólann í Minnesota í Bandaríkjunum. Hún er þó ekki fyrsta íslenska konan sem gengur í Rotaryklúbb því Sigríði Snævarr, sendiherra í Svíþjóð, var veitt innganga í Rotaryklúbb Djurgaarden þar í landi fyrir nokkrum vikum.

x

Skagablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.