Skagablaðið


Skagablaðið - 23.01.1992, Blaðsíða 1

Skagablaðið - 23.01.1992, Blaðsíða 1
3. TBL. 9. ÁRG. FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1991 VERÐ KR. 150,- Gísli Einarsson afhendir forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur, minnispeninginn. Bœjarstjóri, Gísli Gíslason, er lengst t. v. á myndinni. Vinna við fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar er nú á lokastigum vinnslu og verður væntanlega frágengin að mestu í kvöld. Unnið hef- ur verið ötullega að gerð hennar undanfarnar vikur. Starf framkvæmdastjóra Hafarnarins hf. hefur að undanförnu verið auglýst laust til umsóknar. Guð- mundur Pálmason, sem gengt hefur þeirri stöðu til margra ára hjá fyrirtækinu, staðfesti í samtali við Skaga- blaðið, að hann hefði áhuga á að breyta til og komast í annað starf. Hann sagði ferli sínum hjá fyrirtækinu ljúka um mánaðmótin apríl/maí. Ekki liggur enn ljóst fyrir hver verður arftaki hans í starfi. Bæjarbúum verður boðið upp á risastóra og fagur- lega skreytta afmælistertu á hátíðarfundi bæjarstjórnar sem haldinn verður í hinum nýja sal Fjölbrautaskóla Vesturlands á sunnudaginn. Tertan verður rúmir tveir fermetrar að stærð þannig að allir gestir ættu að geta feng- ið bita. Það er Harðarbakarí sem annast gerð tertunnar. Á þeim bæ eru menn vanir slík- um stórtertum og sú sem boðið verður upp á á sunnu- dagirtn er alls ekki sú stærsta sem þar hefur verið útbúin. Athygli er vakin á því að at- höfnin á sal FVA hefst kl. 14.30 en ekki kl. 14 eins og áður hafði verið ákveðið. Frétt Skagablaðsins um endurreisn Fegurðarsam- keppni Vesturlands hefur vakið talsverða athygli og góð viðbrögð. Ábendingar um stúlkur í keppnina hafa þegar borist og verður tekið við þeim fram að helgi. Þegar er búið að ræða við nokkra væntanlega þátttakendur. Nemendur Brekkubæjar- skóla ætla að setja á stofn útvarpsstöð og senda út dagana 14. - 16. febrúar næstkomandi. Uppistaðan í dagskránni verður tónlist en ætlunin með uppátækinu er að afla auglýsingatekna í ferðasjóð 9. bekkinga. Stöð- inni hefur verið úthlutað tíðninni FM 97,3. Hinn nýi samkomusalur Fjölbrautaskóla Vestur- lands verður formlega vígður kl. 14 á morgun. Jafnframt stendur þá til að undirrita nýjan samstarfssamning á milli sveitarfélaganna á Vest- urlandi sem standa að rekstri hans. FrystHogarinn Polarborg II frá Færeyjum keyptur til Akraness eftir hádegið: HB vam kapphlaupið - gekk fra kaupunum örskömmu áður en hann átti að fara á uppboð í Færeyjum Útgerðarfyrirtækið Haraldur Böðvarsson hf. gekk fyrir nokkrum klukkustundum formlega frá kaupum á frystitogaranum Polarborg II frá Vogum í Færeyjum. Kaupverð skipsins er 503 milljónir íslenskra króna. Togarinn Krossvík gengur upp í kaupin á 98 milljónir króna. Til kaupanna fékk HB hf. einnig lán hjá Den Norske Bank. Að sögn Haraldar Sturlaugs- og togarans Krosvíkur nær samt s Stefnt er að því að togarinn komi hingað til Akraness eftir um hálfan mánuð og fari fljót- lega á veiðar eftir það. Áður verður þó skipt um vinnslubúnað á dekki og nýr búnaður frá Þorgeir & Ellert hf. keyptur í staðinn. Isonar, framkvæmdastjóra HB hf., var það var ekki fyrr en eftir hádegið í dag að fyrirtækið fékk endanlegt samþykki frá við- skiptaráðuneytinu fyrir kaupun- um á togaranum. Polarborg II átti að fara á uppboð í Færeyjum í dag að kröfu Den Norske Bank en því var aflýst eftir að kaupin gengu í gegn. Vegna þeirra reglna um kaup á fiskiskipum að úrelda þurfi jafn mörg brúttótonn og keypt eru þurfti fyrirtækið að kaupa togar- ann Stapavík SI 5 og minna skip, Hafrúnu ÞH, til úreldingar. Samanlögð stærð þessa skipa svo Fjölgun um 6 Akumesingar voru 5.236 tals- ins þann 1. desember sl. sam- kvæmt bráðabirgðatölum. Hér er um að ræða fjölgun upp á sex íbúa frá sama tíma 1990. Það ár fækkaði Akurnesing- um hins vegar um 124. Sú fækkun var hlutfallslega sú mesta hjá nokkru bæjarfélagi á landinu það ár. Þótt bæjarbúum hafi ekki fjölgað um nema sex er það all- ténd ánægjulegt að ekki skuli vera um áframhaldandi fækkun að ræða eftir óhagstæða þróun síðustu árin. Flestir voru Akurnesingar 5.426 árið 1987en fækkaði síðan árvisst þar til á síðasta ári. ekki stærð Polarborg II. Þar munar fjórum brúttólestum. HB hf. fær fær tvo mánuði til þess að ganga frá úreldingu þeirra fjög- urra lesta sem á vantar. Frystitogarinn Polarborg II er 1521 brúttólest að stærð, smíðað- ur í Noregi árið 1988. Hann hef- ur verið gerður út frá Vogum í Færyejum sem ferskfisktogari undanfarin misseri. Togarinn er 54,6 metra langur og 12,5 m breiður. Gert er ráð fyrir 27 - 30 manna áhöfn á togaranum. Polarborg II við bryggju í Færeyjum. Nýr flygill í Vinaminni m rn m ........ m . m ..... _ .. Æ m - m m ■■ m ■ u m Nýr ITygilI í safnaðarheimiliim Vinaminni verð- nr lörmlegn vígður á iniðvikudaginn á tonleikiim sem þá verða haldnir þar. Jónas Ingimundarson vígir hljóðfærið en einnig syngur Ingveldur Ýr Jónsdóttir einsöng við undirleik Jónasar. Tón- leikarnir hefjast kl. 20.30. Flygilinn sem verið hefur í Vinaminni er í eigu Tónlistarskóla Akraness og hefur verið þar í geymslu l'ra arinu 1986. Skólinn flytur í nýtt hús- næði eftir nokkrar vikur og þarf því á flyglinum að halda við kennslu þar. Nýi flygillinn er at' gerðrnni Bösendorfer. Hann var valinn í samráði við Jón Óiaf Sigurðsson, organista Akraneskirkju. og Jónas lngimundar- son. Bösendorf flýglar eru nær einráðir í tón- leikasölum í Austurríki og þykja með betri hljóð- færum. Tónninn í þeím er talsvert mýkri og fyllri en í öðrum hljóðfærunt að því er segir í frétt frá Sóknarnefnd Ákraneskirkju. :: Leifur Mggnússon, hljóðfærasmiður. sem hef- ur umboð fyrir Bösendorfer hljóðfreri á íslandi, veitti sérstakan afslátt af hljóðfærinu auk þess sem hann gaf yfirbreiðslu yfir hljóðfærið svo og píanobekk. Þá greiddi hann flutninginn á hljóð- færinu upp á Akranes og gcfur fyrstu stillingu þess. Kirkjunefnd kvenna og Kirkjukór Akra- ness gáfu einnig fé til kaupanna. Aðgangur á tónleikana er ókeypis og eru bæjurbúar hvattir til þess að fjölmenna á þá og þiggja kaffi og meðlæti í hléi._________ Forseti fékk minnispening Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, veitti í gærmorg- un viðtöku minnispeningi sem gefinn er út í 500 tölusettum ein- tökum í tilefni 50 ára kaupstaðar- afmælis Akraness. Peningur forsetans var nr. 1. Ragnheiður Runólfsdóttir, „íþróttamaður ársins“, hafði áður fengið pening nr. 2. Það voru þeir Gísli Gíslason, bæjarstjóri, og Gísli Einars- son, forseti bæjarstjórnar, sem afhentu forsetanum peninginn við formlega athöfn í stjórnar- ráðinu. Jafnframt fékk forsetinn eintak af bókinni „Akranes — vaxandi bær á Vesturlandi“ að gjöf við sama tækifæri.

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.