Skagablaðið - 16.01.1995, Page 1
2. TBL. • 12. ÁRG. • 16. JANÚAR 1995
VERÐ KR. 220 I LAUSASOLU
Arangurí
tannvernd
Átak í tannvernd barna og ung-
linga hefur skilað verulegum ár-
angri í bættri tannheilsu. Ungir
Skagamenn geta nú kinnroðalaust
brosað framan í heiminn en fyrir
nokkrum árum var tannheilsa
barna á Akranesi áberandi slæm.
Sjá síðu 5
Gatmarkið
umdeilda 1953
Helgi Daníelsson heldur
áfram að rifja upp minnis-
verða atburði og tínir til
myndir úr handraða sín-
um. Að þessu sinni fjallar
hann um gatmarkið um-
deilda í leik Vals og ÍA
árið 1953.
Sjá síðu 4
Fjárhagsáætlun lögð fyrir bæjarstjórnarfund á morgun:
Bæjarstjórn með bundnar hendur
Framkvæmdafé bæjarsjóðs er
að mestu leyti bundið á þessu
ári vegna ákvarðana fyrri bæj-
arstjórnar. Rúmlega 100 millj-
ónir króna eru afgangs til eign-
færðrar fjárfestingar en þar af
fara samtals um 70 milljónir í
Grundaskóla og stjórnsýslu-
húsið, samkvæmt fyrri ákvörð-
unum. Auk þess fara verulegir
fjármunir í að greiða fyrir
gatnagerð á Garðagrund. Tekj-
ur bæjarsjóðs eru áætlaðar um
510 milljónir króna en 366,6
milljónir fara í rekstur.
Tekjur bæjarsjóðs hækka lítið
milli ára þrátt fyrir hækkun út-
svars. Bæjarráð ákvað í desem-
ber að hækka útsvarið úr 9 af
hundraði í 9,2 þar eð fyrirsjáan-
legt var að greiðslur úr jöfnun-
arsjóði sveitarfélaga myndu enn
skerðast á þessu ári. Skömmu
eftir að ákvörðunin var tekin
breyttust hins vegar forsendur
að nýju og nú er gert ráð fyrir
óbreyttum greiðslum úr sjóðn-
um miðað við fyrra ár. Utsvars-
hækkunin skilar sér því til
tekjuaukningar.
Gert er ráð fyrir að útsvars-
tekjur verði rúmlega 400 millj-
Sorpið sent
til Sorpu?
Bæjarráð gerir ráð fyrir því í
fjárhagsáætlun ársins að
kannaðir verði möguleikar á
samvinnu bæjarins og Sorpu
um eyðingu sorps. Greinar-
gerð um málið á að liggja
fyrir ekki síðar en í mars svo
mögulegt verði að taka upp
nýtt fyrirkomulag í sorpeyð-
ingu á síðari hluta ársins ef
það þykir álitlegt. Hugsan-
legt er að tekin verði upp
flokkun sorps í bænum og
því ekið til Reykjavíkur en
látið af urðun í bæjarlandinu.
ónir króna, tekjur af fasteigna-
skatti tæplega 80 milljónir, að
14,6 milljónir komi úr jöfnunar-
sjóði og að holræsagjald skili
um 14 milljónum króna í bæjar-
sjóð. Alls er áætlað að tekjurnar
nemi 509,8 milljónum króna.
Þegar áætlunin er lögð fyrir
bæjarstjórn er búist við að
skuldir bæjarins aukist urn 20
milljónir króna. Afborganir
vegna lána Atvinnuþróunar-
sjóðs hækka á árinu.
Sem fyrr segir er gert ráð fyr-
ir að rekstur bæjarins kosti
366,6 milljónir króna. Fjórir
málaflokkar skera sig úr hvað
rekstrargjöld snertir. Yfirstjóm
bæjarins á að kosta 50,5 millj-
ónir á árinu, um 94 milljónir
eiga að renna til félagsþjónustu,
rúmlega 70 milljónir til fræðslu-
mála og um 50 milljónir í
íþrótta- og æskulýðsmál.
Áætlað er að 84,4 milljónir
króna fari til svonefndrar gjald-
færðrar fjárfestingar. Auka á
gatnagerð frá fyrra ári auk þess
Kristrún Kristinsdóttir: Astandið á vinnustaðnum er óþolandi en
við viljum ekki látaflœma okkur burt.
sem um 10 milljónir þarf að
greiða vegna Garðagrundar.
Stefnt er að frágangi holræsa í
Krókalóni.
Af eignfærðri fjárfestingu má
nefna að um 40 milljónir eiga að
renna til framkvæmda við E-
hluta Grundaskóla og er gengið
út frá því að framkvæmdum
ljúki á næsta ári. Samkomulag
hefur tekist um að bærinn kaupi
Innsta-Vog fyrir um 20 milljónir
króna og verður tekið lán fyrir
kaupunum. Greiðslur vegna
húsnæðis bæjarins í stjórnsýslu-
húsinu nema nær 30 milljónum
króna á árinu.
Ymsar breytingar verða á
rekstri bæjarins. Þannig er
áformað að ráða félagsráðgjafa í
hálft starf til ráðgjafarstarfa.
Framlag til skólahljómsveitar-
innar verður aukið.
Bæjarráð leggur til að gerð
verði sérstök úttekt á rekstrar-
kostnaði iþróttamannvirkja og
Tónlistarskólans á árinu.
Deilurnar á sýsluskrifstofunni:
Fulltrúarnir
krefjast úrbóta
Astandið á vinnustaðnum er
algerlega óviðunandi. Við höf-
um fengið leyfi til málflutnings
fyrir héraðsdómi og okkur er
því í raun ekkert að vanbúnaði
að hætta og hefja eigin rekstur.
Við höfum hins vegar metnað
fyrir hönd embættisins og því
myndi það ekki verða okkur
Ijúft að þurfa að hætta, segir
Kristrún Kristinsdóttir, fulltrúi
og staðgengill sýslumanns, í
samtali við Skagablaðið.
Kristrún og Áslaug Rafnsdóttir
fulltrúi hafa verið mjög óá-
nægðar með yfirntann sinn, Sig-
urð Gizurarson, og hafa sam-
skipti og samstarf þeirra í milli
verið lítil sem engin undanfarna
mánuði.
- Það má segja að embættið sé
án yfirmanns og hér hrúgast upp
óleyst vandamál sem þarf að
taka á. Við erum mjög óánægð-
ar með hvernig dómsmálaráðu-
neytið hefur tekið á þessum
málum. Það setur hér allt í háa
loft en stekkur svo frá öllu sam-
an og gerir ekkert frekar í mál-
inu. Ráðuneytið verður að grípa
inn í og leysa vanda embættis-
ins á einn eða annan hátt. Við
viljum að sjálfsögðu ekki láta
flæma okkur á brott og förum
ekki fyrr en í fulla hnefana, seg-
ir Kristrún við Skagablaðið.
Skothríð á
haugunum
Maður hafði samband við
lögregluna í síðustu viku,
sagðist vera staddur skammt
frá sorphaugunum en kvaðst
ekki þora að fara lengra
vegna mikillar skothríðar á
haugunum. Sagði maðurinn
að gengið hefði á með
byssuskothríð í um hálftíma
eða svo. Þegar lögreglan
kom á vettvang voru skot-
mennirnir á bak og burt.
Lögreglan vill ítreka að
meðferð skotvopna er bönn-
uð í bæjarlandinu.