Skagablaðið - 16.01.1995, Side 4
4 16. janúar 1995
Úr handraða Hclga Dan
Mannlíf
Skagablaðið
Gatmarkið
umdeilda 1953
Eg ætla að ritja upp með ykk-
ur einn minnisstæðasta leik
sem ég lék á mínum knatt-
spyrnuferli, leik sem vakti um-
ræður og deilur á sínum tíma og
enn þann dag í dag hitti ég menn
sem vilja ræða leikinn og það
atvik í honum sem mestum deil-
um olli. Sjálft úrslitamarkið í
úrslitaleik Islandsmótsins í
knattspyrnu þann 6. september
1953.
Einhverra hluta vegna hafði
fyrirkomulagi íslandsmótsins
þetta ár verið gerbreytt frá því
sem áður var. Þátttökuliðunum
sex var skipt upp í tvo riðla.
Riðlakeppnin fór fram í júní en
landsleikir og heimsóknir er-
lendra liða ollu því að úrslita-
leiknum var frestað til hausts.
Skagamenn unnu Þrótt 4-1 og
KR 4-0 í sínum riðli. I hinum
riðlinum vann Valur Víking 3-1
og Þrótt 5-1.
ÍA skorar
Um fjögur þúsund manns fylgd-
ust með úrslitaleik þessara liða.
Flestir voru á bandi hins geysi-
vinsæla liðs Skagamanna. Að-
stæður voru afleitar; suðvestan
rok og rigningardembur sem á
köflum nálguðust skýfall. Vals-
menn léku undan vindi í fyrri
hálfleik og þvert á gang leiksins
náðu Skagamenn forystunni
með marki Þórðar Þórðarsonar.
Með vindinn í bakið náðu
Valsmenn að jafna metin með
marki Hafsteins Guðmundsson-
ar og á lokamínútu hálfleiksins
kom Sigurður Sigurðsson þeim
yfir.
Markið umdeilda
Vindinn herti enn í leikhléinu
og úrhellið jókst. Aðstæður
voru allar orðnar hráslagalegar
til knattspyrnuiðkunar er liðin
gengu inn á völlinn til síðari
hálfleiks. Eftir aðeins fimm
mínútna leik jafnaði Ríkharður
metin fyrir Skagamenn. Sóknar-
þungi þeirra jókst en Valsvörn-
inni tókst ætíð að bjarga, allt þar
til á 70. mínútu.
Eftir þunga sókn Akurnesinga
spyrnir einn varnarmanna Vals
knettinum langt fram á völlinn.
Þar er fyrir Dagbjartur Hannes-
Hafsteinn Guðmundsson jafnar
fyrir Val 1-1 og Magnús Krist-
jánsson, markvörður Skaga-
manna, kemur engum vörnum
við. Skagamenn unnu hins veg-
ar leikinn með gatmarkinu um-
deilda og á litlu myndinni má
sjá þaðfrœga gat.
ið yfir þverslána og í gegnum
netið aftan við hana. Máli sínu
til stuðnings bentu þeir á að einn
netmöskvanna var rifinn. Ur-
skurði dómarans varð þó ekki
breytt og markið, sem reyndist
sigurmarkið, stóð óhaggað.
Hafi markið verið greinarhöf-
undi minnisstætt var það Dag-
bjarti Hannessyni ekki síður eft-
irminnilegt. Þetta reyndist
nefnilega eina mark hans á
löngum keppnisferli.
son, miðvörður Skagamanna,
sem sendir knöttinn rakleiðis til
baka. Knötturinn fór hátt í loft
upp undan vindinum og hafnaði
í markneti Valsmanna öllum til
undrunar, engum þó eins og
greinarhöfundi sem stóð í marki
Vals.
Valsmenn mótmæltu markinu
ákaft og töldu knöttinn hafa far-
Ásmundur Ólafsson skrifar:
/ grein sinni rekur Ásmundur Ólafsson góðar gjafir og heimsóknir til dvalarheimilisins á nýliðnu ári.
Dvalarheimilinu Höfða bár-
ust ýmsar gjafir á árinu
1994.
„Konur í kjallara“ og sjúkra-
vinir Rauða krossins gáfu leir-
brennsluofn til notkunar í nýja
húsinu. Sjúkravinir færðu heim-
ilinu einnig útvarp-/segulbands-
/geisladiskatæki til notkunar á
hjúkrunardeild. Sjúkrahúsið gaf
okkur sjúkraþjálfunarbekk og
altari til notkunar við messur.
Aðstandendur Halldóru Vetur-
liðadóttur, sem lést í desember,
gáfu hjólastól.
Bókagjafir bárust frá ýmsum
aðilum, m.a. Atla Marinóssyni,
Svani Geirdal, frá börnum Ar-
sæls Jónssonar og Margrétar
Agústsdóttur, sem bæði eru lát-
in, einnig frá Huldu Jónsdóttur
og börnum. Þá barst bókagjöf
frá Bókaverslun Andrésar
Níelssonar og biblía frá Akra-
nessöfnuði. Bókasafn Höfða á
nokkuð gott safn bóka en hús-
næðisleysi hefur komið í veg
fyrir að það sé fullnýtt.
Margir kórar heimsóttu okkur
á s.l. ári og héldu konserta, m.a.
kór Menntaskólans á Laugar-
vatni, barnakór Laugarnesskóla
og kór starfsmanna á Hrafnistu.
Ýmsir hópar komu á Höfða í
fyrra; börn og unglingar úr skól-
unum á Akranesi og í leikskól-
unum. Aldraðir íbúar Hlað-
hamra og úr félagsstarfinu í
Mosfellsbæ, einnig frá Félags-
miðstöðinni Aflagranda í
Reykjavík. Gönguhrólfar, ferða-
klúbbur aldraðra í Reykjavík,
sóttu okkur heim, einnig hópar
Vestur-íslendinga. Þá komu
hópar frá Færeyjum, Qaqortoq á
Grænlandi, frá Eystrasaltsríkj-
unum og Póllandi. Frambjóð-
endur stjórnmálaflokkanna
komu í kynnisferðir. Póstmeist-
arar á eftirlaunum og makar
þeirra, starfsmenn Sjúkrahúss
Stykkishólms, hópur sjúkra-
þjálfara frá Reykjavík, stjórn
F.S.Í.Ö. og starfsmenn ÁTVR.
íbúum Höfða var boðið í
ýmsar skemmtiferðir: Gunnar
Leifur Stefánsson, skipstjóri á
Andreu, bauð í listitúr útá Fló-
ann. Kór eldri borgara bauð á
tónleika í Vinaminni, einnig í 5
ára afmæli sitt á Kútter Haraldi.
VLFA bauð í 70 ára afmæli sitt.
Þá fór Félag eldri borgara í leik-
húsferð til Reykjavíkur. Vorferð
þátttakenda í opna húsinu var til
Reykjavíkur. Ferð aldraðra á
vegum prófastsdæmis Borgar-
fjarðar var um Vestfirði. VLFA
bauð ferð að Gullfossi og Geysi
og sumarferð Höfða var útá
Snæfellsnes.
Þá voru hefðbundnar kvöld-
vökur, þorrablót og jólagleði á
Höfða. Rótarý og Lions voru
með fundi á heimilinu. Kvenfé-
lögin voru með samkomu.
Spilakvöld sjúkravina voru
mánaðarlega. Sóknarpresturinn
og kirkjukórinn voru með guðs-
þjónustur mánaðarlega, einnig
voru hvítasunnumenn með
kristilegar samkomur. Basar og
sýning á handavinnumunum var
fyrir jólin. Opið hús var einnig
stundað af miklum krafti, alls
59 sinnum á árinu.
Dvalarheimilið þakkar öllum
þeim sem stutt hafa heimilið og
óskar velunnurum sínum árs og
friðar.
- Asmundur Ólafsson,
framkvœmdastjóri