Skagablaðið - 23.01.1995, Qupperneq 1
3. TBL. • 12. ÁRG. • 23. JANÚAR 1995
VERÐ KR. 220 I LAUSASOLU
/ hvað fara
skattarnir?
Fjárhagsáætlun var lögð fram á
bæjarstjórnarfundi í síðustu viku.
Við gerum grein fyrir helstu töl-
um; tekjum, rekstri og fram-
kvæmdum.
Sjá síðu 5
Kiwanismenn
í aldarfjórðung
Aldarfjórðungur er liðinn síðan
Kiwanisklúbburinn Þyrill var
stofnaður. Kiwanismenn hafa
verið ötulir við að safna fé til
góðra málefna á þessum
tíma.
Sjá síðu 4
Tíðir fundir með fjármálaráðuneytinu vegna hitaveitunnar:
Stefnt að lausn á næstu vikum
Eigendur Hitaveitu Akraness
og Borgarfjarðar hafa átt tíða
fundi með fulltrúum fjármála-
ráðuneytisins að undanförnu
og er stefnt að því að knýja
fram lausn á vanda veitunnar á
allra næstu vikum. Takist það
ekki er búist við að málið drag-
ist fram yfir kosningar og að
erfitt verði að fá nýja ríkisstjórn
að samningaborðinu.
Samkvæmt upplýsingum Gísla
Gíslasonar bæjarstjóra og Guð-
bjarts Hannessonar, forseta bæj-
arstjórnar, miða viðræðurnar
við ríkið að því að hægt verði að
lækka gjaldskrá hitaveitunnar
um 20-30 prósent.
Eigendur hitaveitunnar leggja
áherslu á að ríkisvaldið yfirtaki
stóran hluta af skuldum veit-
unnar, hálfan milljarð króna hið
minnsta. Skuldir Hitaveitu
Akraness og Borgarfjarðar
nema nú um 2,2 milljörðum
króna og gjaldskrá veitunnar er
með því hæsta sem þekkist á
landinu. Þannig greiða notendur
HAB um tvöfalt hærra verð en
þeir sem kaupa vatn af Hita-
veitu Reykjavíkur, enda þótt 14
prósenta virðisaukaskattur sé
lagður á vatnið í Reykjavík en
aðeins rúmlega fimm prósent á
vatnið frá HAB.
Takist að semja við ríkið um
niðurfellingu skulda skuldbinda
eigendur HAB sig til þess að ná
fram hagræðingu í rekstri orku-
fyrirtækjanna. Að sögn Guð-
bjarts Hannessonar eru margir
möguleikar ræddir í þeim efn-
Húsnæðisnefnd:
Bókhaldið gagnrýnt
Ýmsar ábendingar komu fram 1988-1993 og mega nokkrir
við endurskoðun á reikningum viðskiptamenn nefndarinnar
húsnæðisnefndar fyrir árin eiga von á nýju uppgjöri innan
tíðar þar eð villur hafa komið
fram við fyrra uppgjör.
Gísli Gíslason bæjarstjóri varð-
ist frétta af málinu þegar Skaga-
blaðið ræddi við hann í gær.
- Það er ekki ástæða til að
fjölyrða um þetta að svo stöddu,
sagði hann.
Fjallað var um málið á fundi
bæjarráðs fyrir helgina og gætti
mikillar óánægju með hve seint
reikningar eru endurskoðaðir.
Reikningar húsnæðisnefndar
hafa ekki verið endurskoðaðir
fyrr en nú. Endurskoðun fyrir
árin 1988-1993 liggur fyrir og
búist er við að endurskoðun síð-
asta árs Ijúki á næstu dögum.
Stefnt er að því að upp frá þessu
verði reikningarnir endurskoð-
aðir árlega.
Að sögn Guðbjarts Hannes-
sonar, forseta bæjarstjórnar,
skeikar ekki háum fjárhæðum í
bókhaldi nefndarinnar.
Brekkubæjarskóli:
Skemmdar-
verk unnin
Fimm rúður voru brotnar í
anddyri á austurhlið
Brekkubæjarskóla um helg-
ina. Ekki var um innbrot að
ræða og því virðist
skemmdarfýsnin ein hafa
ráðið ferð. Mjög algengt
hefur verið að rúður hafi
verið brotnar í skólanum
undanfarna mánuði og óskar
lögreglan eftir því að hugs-
anleg vitni gefi sig fram.
Þá var tilkynnt um það í
gærmorgun að rúða hefði
verið brotin í íþróttahúsinu
við Vesturgötu.
um. Meðal annars er rætt um
einhvers konar samrekstur hita-
veitunnar og rafveitnanna á
Akranesi og í Borgarbyggð.
Einnig er sá möguleiki reifaður
að rekstur Rafveitu Akraness og
hitaveitunnar verði sameinaður
og að Rafveita Borgarness eigi
nánara samstarf við Rafmagns-
veitur ríkisins. Eigendur HAB
eru einnig aðilar að Andakílsár-
virkjun og tengist hún viðræð-
unum við ríkið nú.
Eigendur HAB áttu fund með
aðstoðarmanni fjármálaráðherra
í síðustu viku og ráðgert er að
funda einnig í þessari viku.
Guðbjartur segist vona að skýr-
ari hugmyndir um lausn á vanda
veitunnar liggi fyrir á fundi eig-
enda veitunnar á föstudaginn.
Kirkjuhvoll:
Forsetinn í
heimsókn
Forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, verður við opn-
un listasetursins Kirkjuhvols
næst komandi laugardag en
þá verður opnuð sýning á
málverkum í eigu bæjarins.
Sýningin verður opnuð al-
menningi á sunnudaginn.
í bréfi hússtjórnar Kirkju-
hvols sem birtist í Skaga-
blaðinu í dag kemur fram að
fyrirhugað er að koma á
styrktarmannakerfi til þess
að tryggja rekstur listaseturs-
ins. Ráðgert er að styrktarfé-
lagar láti ákveðna upphæð af
hendi rakna árlega. „Ekkert
er of smátt í svona starfsemi
þar sem öll vinna er í sjálf-
boðavinnu. Fólk velur fram-
lög sem því henta. Arlegt
framlag væri því 500 krónur
eða 5.000, allt eftir aðstæð-
um,“ segir í bréfinu sem
birtist á síðu fjögur.
Lögreglan:
Hótað með
klippunum
Lögreglan ræddi við tíu öku-
menn um helgina sem dregið
hafa úr hófi fram að færa
bíla sína til skoðunar. Eig-
endunum voru gerðir þeir
kostir að fara með bílana í
skoðun ekki síðar en í dag
en missa númerin ella.
Þorri genginn í garð
Sumir fá sjálfsagt vatn í munninn þegar þeir sjá kræsingarnar
sem Jónas Hallgrímsson matreiðslumaður heldur hér á lofti.
Þorinn gekk í garð síðast liðinn föstudag og um leið tími
þorrablótanna. Lundabaggar, hrútspungar, hákarl og annað
góðgæti af því tagi verður því á borðum landsmanna á næstu
vikum.