Skagablaðið - 30.01.1995, Blaðsíða 1
Kirkjuhvoll:
Listasetur opnað
við hátiðlega athöfn
Listasetrið Kirkjuhvoll var opn-
að við hátíðlega athöfn á laug-
ardaginn að viðstöddum Sig-
urbirni Einarssyni biskup og
blessaði hann húsnæðið og þá
starfsemi sem þar á að fara
fram.
A opnunarsýningunni eru rúm-
lega 30 málverk í eigu Akranes-
kaupstaðar, Menningarsjóðs
Akraness og Bæjar- og héraðs-
bókasafnsins.
Ráðgert var að forseti Islands,
Vigdís Finnbogadóttir, yrði við-
staddur opnun listasetursins. Af
þvf gat þó ekki orðið og er fyrir-
hugað að Vigdís heimsæki sýn-
inguna við hentugleika.
Verkin á sýningunni í Kirkju-
hvoli eru eftir eldri listamenn en
stefnt er að því að halda yfirlits-
sýningu á verkum yngri lista-
manna síðar. A sýningunni er
meðal annars að finna verk eftir
heimamennina Hjálmar Þor-
Embætti sýslumanns:
steinsson og Hrein Elíasson,
Ragnar Lár, Gunnlaug Scheving
og Sigurð Guðmundsson.
Athygli vekur að stór hluti
verkanna eru gjöf Fríðu Proppé
til Akranesbæjar.
Sýningin var opnuð almenn-
ingi í gær. Hún stendur til 28.
febrúar og verður opin 15.00-
18.00 laugardaga og sunnudaga
en 16.00-18.00 aðra daga.
Sigurbjörn Einarsson biskup blessaði Kirkjuhvol og þú starfsemi sem þar á að verða.
Kjaradeilan á sjúkrahúsinu enn óleyst í morgun:
Mikil harka í deilunni en
lausn virtist í sjónmáli
Bæjaryfir-
völd á fund
Þorsteins
Gísli Gíslason bæjarstjóri
og Gunnar Sigurðsson, for-
maður bæjarráðs, fóru á
fund Þorsteins Pálssonar
dómsmálaráðherra í síðustu
viku og ræddu við hann um
málefni sýslumannsemb-
ættisins.
Gísli segir við Skagablaðið
að þeir hafi lagt á það þunga
áherslu við ráðherra að hann
færi ástandið á sýsluskrif-
stofunni til betri vegar.
- Við ræddum almennt við
ráðherra um áhyggjur okkar
af því að svo virðist sem
ekki sé starfsfriður hjá emb-
ættinu vegna innanhúss-
deilna. Fréttir hafa verið af
deilum og kærum milli ein-
stakra starfsmanna. Það er
alvarlegt mál þegar æðstu
embættismenn kæra hvor
annan og fara sjálfir með
ákæruvaldið, segir Gísli við
Skagablaðið.
Svör Þorsteins Pálssonar
dómsmálaráðherra voru á þá
lund að verið væri að vinna í
málinu en Gísli sagðist ekki
eiga von á niðurstöðu í mál-
inu á næstunni.
Ég er vongóð um að málið
leysist með því að okkar kjör
verði óbreytt út þetta ár og að
málið verði afgreitt við endur-
nýjun kjarasamninga um
næstu áramót. Þetta skýrist
væntanlega í dag, sagði Guð-
rún Hróðmarsdóttir, trúnaðar-
maður hjúkrunarfræðinga á
Sjúkrahúsi Akraness, við
Skagablaðið í morgun.
Eins og kunnugt er munu nær
40 hjúkrunarfræðingar og ljós-
mæður á sjúkrahúsinu hætta
störfum I. febrúar ef kjaradeila
þeirra við stjórn sjúkrahússins
leysist ekki fyrir þann tíma.
Mikil harka var hlaupin í deil-
una fyrir helgina og virtist sem
þá væri engin lausn í sjónmáli.
A fundi stjórnar sjúkrahússins
um helgina kom hins vegar
fram tillaga um að láta kjör
starfsmannanna standa óhreyfð
út þetta samningstímabil, eða til
áramóta. Samkvæmt heimildum
Skagablaðsins nýtur tillagan
stuðnings meirihluta stjórnar-
manna. Ingunn Jónasdóttir bar
raunar fram svipaða tillögu á
Jakob Halldórsson kvikmyndagerðarmaður:
Uppgjörið frum-
sýnt um helgina
Jakob Halldórsson kvik-
myndagerðarmaður frumsýnir
leikna kvikmynd næst komandi
föstudag. Myndin hefur fengið
nafnið Uppgjörið og er 40 mín-
útur að lengd. Að sögn Jakobs
er um að ræða svarta kómedíu
og fer Gunnar Ásgeir Einars-
son með aðalhlutverkið.
Uppgjörið fjallar um mann sem
þarf að leiðrétta tölvumistök
sem átt hafa sér stað hjá Trygg-
ingastofnun sveitarfélaga. Þar
tekst honum að flækja málið
svo að vonlaust virðist að leysa
það. Hann dregst óvænt inn í
erjur tveggja starfsmanna og yf-
irmanns stofnunarinnar og leiða
erjur þessar hann inn í dular-
fulla atburði sem eiga sér stað í
kjallara stofnunarinnar.
Með helstu aukahlutverk fara
Arnar Sigurðsson, Gunnar
Sturla Hervarsson og Þorbergur
Viðarsson en auk þeirra leika
um tuttugu leikarar úr Skaga-
leikflokknum og leikhópi fjöl-
brautaskólans í myndinni. Jakob
er framleiðandi og leikstjóri en
Sævar Már Halldórsson annað-
ist kvikmyndatöku. Orri Harð-
arson samdi tónlistina.
fundi stjórnar í byrjun síðustu
viku en hún var þá felld.
Fyrirhugað var að fulltrúar
ráðuneyta fjármála og heil-
brigðismála funduðu með full-
trúum Félags íslenskra hjúkrun-
arfræðinga um málið í dag og
nú síðdegis var boðaður fundur
í stjórn Sjúkrahúss Akraness.
Eins og komið hefur fram í
Skagablaðinu var gerður kjara-
samningur við hjúkrunarfræð-
inga og Ijósmæður síðast liðið
vor og hækkuðu laun þeirra þá
um 15-20 af hundraði. I kjölfar-
ið var sérkjarasamningi við
þessa starfsmenn sagt upp en
hann vóg þungt í kjörum þeirra.
Starfsmennimir litu svo á að
með uppsögn sérkjarasamnings-
ins hefði þeim verið sagt upp
störfum.
Fjölmargir aðilar hafa hvatt
til þess að fundin verði lausn á
deilunni áður en til útgöngu
starfsmannanna kemur. Þannig
segir í ályktun læknaráðs
sjúkrahússins að framtíð stofn-
unarinnar og öryggi íbúanna
væri í húfi.
Tökum myndarinnar lauk síðast liðið haust en á myndinni má sjá
Arnar Sigurðsson við tökur. Arnarfer með stórt aukahlutverk í
Uppgjörinu. Ljósmynd: Guðni Hannesson.
Myndin verður frumsýnd í sýnd kl. 21.00 dagana 4. og 5.
Barbró á föstudaginn og verður febrúar.