Skagablaðið - 13.02.1995, Blaðsíða 1
VERÐ KR. 220 I LAUSASOLU
6. TBL. • 12. ARG. • 13. FEBRUAR 1995
Islensku bókmennta-
verðlaunin
Það var glatt á hjalla hjá höfundi og
útgefendum verðlaunabókarinnar
Skáldið sem sólin kyssti þegar Skaga-
blaðið hitti þau um helgina. Silja Aðal-
steinsdóttir efndi þá til mannfagnaðar
í tilefni af því að henni voru veitt ís-
lensku bókmenntaverðlaunin 1994.
Sjá blaðsíðu 5
Atvinnumál á
oddinn
Brynja Þorbjörnsdóttir atvinnu-
fulltrúi var ekki í vafa þegar hún
var spurð hvað hún vildi að bæj-
arstjórn legði höfuðáherslu á. At-
vinnumálin auðvitað. Brynja er í
brennidepli hjá okkur.
Sjá blaðsíðu 7
Viðar Karlsson á Víkingi:
Verðum að
vera vongóðir
Jakob Þór Einarsson stendur í ströngu þessa dagana; œfir nýtt hlutverk hjá Borgarleikhúsinu fitnm
sinnum í viku og stjórnar œfingum ífjölbraut sex sinnum í viku.
Gróska í leiklistarlífi fjölbrautarskólans:
Hryllingsbúðin á fjalirnar
Við vorum að vona að við gæt-
um komið með loðnu heim
núna uppúr helginni en við
erum í brælu hérna austur af
Hornafirði eins og önnur skip í
flotanum og það lítur ekki vel
út með veður næstu daga,
Hættuspil:
Á snjósleða
á göngustíg
Fimmtán ára gamall ung-
lingur var staðinn að því
um helgina að aka snjó-
sleða á 40 kílómetra
hraða eftir göngustígum í
Grundahverfi. Lögreglan
hafði samband við móð-
ur drengsins sem sagðist
mundu lesa honum
pistilinn.
Þá kvartaði umsjónarmaður
knattspyrnuvallarins yfir því
í síðustu viku að snjósleða-
menn hefðu verið á ferðinni
á æfingasvæðinu. Umferð
snjósleða er bönnuð í bæjar-
landinu.
sagði Viðar Karlsson, skipstjóri
á loðnuskipinu Víkingi, þegar
Skagablaðið ræddi við hann í
morgun.
Víkingur lét úr heimahöfn fyrir
19 dögum og hefur enn ekki
iandað loðnu, enda hefur hann
ekki getað athafnað sig á mið-
unum til þessa. Höfrungur og
Bjarni Olafsson hafa hins vegar
náð að reyta saman í næstum
fullfermi einu sinni og lönduðu
því á Eskifirði og Seyðisfirði.
Fimmtán manns eru í áhöfn
Víkings og þegar Skagablaðið
ræddi við Viðar snemma í
morgun sat mannskapurinn við
spil.
- Það er ekki um annað að
ræða en að bíða. En við verðum
að vera vongóðir þrátt fyrir allt.
Loðnan hefur verið að skríða
inn á veiðisvæði okkar svo það
er von í þessu núna. Þetta lagast
strax og gerir veður, segir Viðar
Karlsson.
Hann lætur ekki vel af verð-
inu sem í boði er fyrir loðnuna;
sama verð og undanfarin ár.
- Það er ekki um annað að
ræða en að sætta sig við það,
segir hann þó.
Jakob Þór Einarsson leikari
vinnur nú að því með tugum
krakka í leiklistarklúbbi fjöl-
brautaskólans að setja á svið
söngleik sem byggður er á
Litlu hryllingsbúðinni. Frum-
sýning er fyrirhuguð 24. febrú-
ar.
Jakob Þór leikstýrir verkinu og
segir að í raun sé um frumraun
hans að ræða á þessu sviði.
Jensína Waage er söngstjóri en
alls koma um 80 manns að sýn-
ingunni með einum eða öðrum
hætti. Þar af koma rúmlega 30
krakkar fram á sviðinu, um
fjórðungur þeirra fer með stór
hlutverk.
Segja má að Jakob standi í
stórræðum um þessar mundir.
Hann æfir nú fimm sinnum í
viku í nýju verki hjá Borgarleik-
húsinu og kemur sex sinnum í
viku til Akraness að leikstýra.
Svo vill til að hann er sjálfur að
búa sig undir að leika 16 ára
gamlan ungling og segist fá
mikla innspýtingu frá krökkun-
um í fjölbraut.
- Þetta er mjög skemmtilegt
og ég er alveg gáttaður á því
hvað þessir krakkar hafa mikla
hæfileika. Ég hef til dæmis
komist að því að tónlistar-
menntun hér er í háum gæða-
flokki, segir Jakob við Skaga-
blaðið.
Guðjón Guðmundsson alþingismaður í grein um landmælingamálið:
Marklaust hjal umhverfisráðherra
Guðjón Guðmundsson, alþing-
ismaður Sjálfstæðisflokksins á
Vesturlandi, gagnrýnir um-
hverfisráðherra harðlega
vegna framgöngu hans í Land-
mælingamálinu. Guðjón telur
tal ráðherrans um flutning
Landmælinga ríkisins til Akra-
ness hafa verið marklaust hjal.
Þetta kemur fram í grein sem
birtist í Skagablaðinu í dag.
Guðjón spurði ráðherra að því á
Alþingi fyrir viku hvort hann
væri reiðubúinn að lýsa yfir því
að hann hyggðist flytja stofnun-
ina til Akraness. Eftir að Guð-
jón hafði ítrekað spurningu sína
kom ráðherra í pontu og svar-
aði: „Ég er ekki reiðubúinn til
þess.“
Skagablaðinu tókst ekki að ná
tali af ráðherra en Birgir Her-
mannsson aðstoðarmaður hans
segir að ljóst hafi verið strax í
haust að ekkert yrði gert frekar í
málinu í ráðherratíð Össurar.
Gísli Gíslason bæjarstjóri segir
hins vegar að Össur hafi aldrei
gefið bæjaryfirvöldum ákveðið
til kynna að ekkert yrði af flutn-
ingi Landmælinga, nema síður
væri. Össur hefur engu svarað
formlegri beiðni bæjaryfirvalda
um fund vegna málsins.
- Við munum ganga eftir því
við ráðherrann að fá ákveðið
svar. Verði það neikvætt munum
við fara fram á skýringar, segir
Gísli við Skagablaðið.
Sjá blaðsíðu 4