Skagablaðið - 20.02.1995, Page 1
7. TBL. • 12. ÁRG. • 20. FEBRÚAR 1995
VERÐ KR. 220 I LAUSASOLU
Þorri blótaður
afbestulyst
Þorra lauk á laugardaginn og góa
hófst með konudegi í gær. Sjálf-
stæðismenn létu sitt ekki eftir
liggja við þorrablót og við birtum
myndir frá blóti þeirra.
Sjá bls. 4
....................
Leikstjórinn
blundarímér
Jakob Þór Einarsson leikari
hefur verið á sviðinu í 10 ár.
Hann þreytir nú frumraun
sína sem leikstjóri og
Leikklúbbur NFFA frumsýnir
Sögur úr hryllingsbúðinni á
föstudaginn kl. 20.30.
Sjá bls. 5
mmmssmmmmsmmmmmmmwmm
wmmmmm
Bæjarstjórn samþykkti fjárhagsáætlun en Framsóknarflokkurinn sat hjá:
Skuldir aukast um 40 milljónir
Skuldir bæjarins aukast um 40
milljónir króna á þessu ári
samkvæmt fjárhagsáætlun
sem bæjarstjórn samþykkti í
síðustu viku. Bæjarfulltrúar
Framsóknarflokksins gagn-
rýndu aukna skuldasöfnun og
óvarlega fjármálastjórn og
greiddu áætluninni ekki at-
kvæði sitt.
Bæjarfulltrúar meirihlutans
bentu hins vegar á nauðsyn þess
að bærinn héldi uppi fram-
Landmælingar:
Guðjón spyr
um kostnað
Guðjón Guðmundsson, al-
þingismaður Sjálfstæðis-
flokksins á Vesturlandi,
spurðist fyrir um það í þing-
inu í síðustu viku hver væri
kostnaður vegna undirbún-
ings að flutningi Landmæl-
inga til Akraness.
Guðjón beindi einnig þeirri
fyrirspurn til Össurar Skarp-
héðinssonar umhverfisráð-
herra hvort af flutningi
stofnunarinnar verði eða
ekki. Eins og kom fram í
Skagablaðinu fyrir viku telur
Guðjón að Össuri hafi aldrei
verið alvara með tali sínu
um flutning stofnunarinnar.
orðið sextugt
Slökkvilið Akraness er sex-
tugt um þessar mundir. Af
því tilefni býður Jóhannes
K. Engilbertsson slökkvi-
liðsstjóri almenningi að
koma og skoða slökkvistöð-
ina við Laugarbraut næst
komandi laugardag kl.
13.00-15.00.
kvæmdum í atvinnuleysi og erf-
iðu efnahagsástandi.
Bæjarfulltrúar Framsóknar-
flokksins héldu einnig uppi and-
ófi í tengslum við ráðningu fé-
lagsráðgjafa. Þeir lögðu til að
ráðinn yrði félagsráðgjafi í fullt
Kristján Jónsson bifvélavirki,
sem nefndur er Stjáni meik,
hefur átt viðræður við bæjaryf-
irvöld um hugmyndir sínar um
að koma upp bílasmiðju og
bílasafni á Akranesi. Hann
segir bæjaryfirvöld hafa sýnt
hugmyndunum áhuga en eng-
ar ákvarðanir hafa verið teknar.
starf en samþykkt var að aug-
lýsa eftir félagsráðgjafa í hálfri
stöðu.
Þá var tillaga Framsóknar-
flokksins um fimm milljóna
króna framlag sem lið í að ljúka
framkvæmdum við Höfða felld.
Stjáni meik er landsfrægur fyrir
þekkingu sína á bílum. Hann
hefur nú hannað nýstárlegt far
til jökla- og óbyggðaferða og
segir björgunarsveitir og aðra
sem til þekkja hafa tekið hug-
myndum sínum vel. Farið nefn-
ir hann Snævarr og vill fram-
leiða það í hundraðatali á næstu
Eins og áður hefur komið
fram í Skagablaðinu eru tekjur
bæjarins áætlaðar um 510 millj-
ónir króna á árinu. Tekjurnar
aukast á milli ára vegna hækk-
unar útsvars í 9,2 af hundraði.
Mestur hluti teknanna fer í
árum. Stjáni meik segist vilja
fara með framleiðsluna út á land
og vill flytja til þess sveitarfé-
lags sem einnig vill standa að
stofnun bílasafns með honum.
Skagablaðið hitti Stjána meik
í síðustu viku og birtir við hann
ítarlegt viðtal í miðopnu.
rekstur en af einstökum fram-
kvæmdum ber bygging Grunda-
skóla hæst.
Sjá bls. 2 og 3
Sýslumaður:
Bæjarstjórn
unir ekki
ástandinu
Bæjarstjóm samþykkti ein-
róma í síðustu viku ályktun
þar sem segir að við núver-
andi ástand hjá embætti
sýslumanns verði ekki
unað.
Bæjarstjórn samþykkti að
beina þeim eindregnu til-
mælum til dómsmálaráð-
herra að hann geri „dugandi
ráðstafanir þannig að koma
megi embættinu í starfhæft
ástand. Þannig ber að
tryggja að það skili sem best
því hlutverki sem það stend-
ur fyrir, til handa bæjarbú-
um sem og öðrum sem til
embættisins þurfa að leita.“
Atvinnuástandið:
Rúmlega 9%
atvinnuleysi
Nær einn af hverjum tíu
vinnufærum mönnum á
Akranesi voru án atvinnu í
janúar samkvæmt upplýs-
ingum Brynju Þorbjörns-
dóttur atvinnufulltrúa. At-
vinnuleysi var mun meira á
sama tíma fyrir ári en minna
í janúar árin 1992 og 1993.
Atvinnuleysið á landinu
öllu nam 6,8 af hundraði í
janúar.
Stjáni meik gerir Skagamönnum tilboð:
Vill framleiða fjallabíla og
stofna bílasafn á Akranesi