Skagablaðið - 06.03.1995, Blaðsíða 1
VERÐ KR. 220 í LAUSASÖLU
9. TBL. • 12. ÁRG. • 6. MARS 1995
Gott að búa
a Akranesi
Ragna Gylfadóttir er
ánægð með lífið og tilver-
una; bæinn sem hún býr í,
vinnuna, launin. Hún er í
brennidepli hjá okkur þessa
vikuna.
Sjá bls. 7
Auður sýnir mynd-
vefnað í Kirkjuhvoli
Auður Vésteinsdóttir myndlistarmaður
er komin á æskuslóðirnar með afrakst-
ur þriggja ára vinnu; 20 myndvefnaðar-
verk sem hún sýnir í Kirkjuhvoli. Skaga-
blaðið ræddi við Auði í tilefni af opnun
sýningarinnar.
Sjá bls. 5
Afkoma Haraldar Böðvarssonar hf. tekur mikla uppsveiflu:
Hagnaður um 103 milljónir
Hagnaður af rekstri Haraldar
Böðvarssonar hf. varð 103
milljónir króna í fyrra og batn-
aði afkoma fyrirtækisins því
um 146,7 milljónir króna frá ár-
inu á undan þegar 42,7 millj-
óna króna tap varð af rekstrin-
Lögreglan:
Tveir teknir
fyrir ölvun
við akstur
Lögreglan tók enn tvo öku-
menn fyrir ölvun við akstur
um helgina og fannst landi í
bíl annars þeirra.
Einn var tekinn aðfararnótt
laugardags og annar í fyrr-
inótt en engin slys urðu
vegna ferða þeirra.
Þá setti lögreglan aðvör-
unarmiða á tugi bifreiða
vegna umferðarlagabrota um
helgina.
Skagaleikflokkurinn:
Tvo verk
frumsýnd
Skagaleikflokkurinn frum-
sýnir tvö verk á næstunni og
eru bæði í leikstjórn Ingu
Bjarnason. Næst komandi
föstudag frumsýnir flokkur-
inn Óvitana eftir Guðrúnu
Helgadóttur í Bíóhöllinni.
Þann 24. mars verður Kvás-
arvalsinn eftir Jónas Árna-
son frumsýndur og er höf-
undurinn sjálfur meðal leik-
aranna.
um. Velta fyrirtækisins jókst úr
2.419 milljónum árið 1993 í
2.657 milljónir á síðasta ári.
Þetta kemur fram í fréttatil-
kynningu sem fyrirtækið sendi
frá sér fyrir helgina í tengslum
við væntanlegan aðalfund. Har-
aldur Böðvarsson er langstærsta
fyrirtækið á Vesturlandi. Starfs-
menn þess eru að jafnaði um
300 talsins. Hluthöfum fjölgaði
um 56 í fyrra og eiga nú 635 að-
ilar hlutafé í fyrirtækinu. Það
gerir út tvo ísfisktogara og einn
frystitogara, auk dragnótarskip-
anna Höfrungs og Víkings.
Frystiskip fyrirtækisins, Höfr-
ungur III, státar af næstmesta
verðmæti afurða allra frysti-
skipa árið 1994.
Eigið fé fyrirtækisins hækk-
aði úr tæplega 465 milljónum
árið 1993 í 700 milljónir í fyrra,
meðal annars í kjölfar þess að
nýtt hlutafé var selt fyrir 130
milljónir í haust. Eiginfjárhlut-
fallið er því 25,8 af hundraði og
arðsemi eigin fjár var rúm 17
prósent í fyrra.
Þá kemur fram í fréttatilkynn-
ingu HB hf. að skuldir hafi
lækkað um 317 milljónir króna.
Kennaraverkfall:
Rétturinn
til menntunar
fótum troðinn
Foreldrafélögin (grunnskól-
um bæjarins telja að réttur
barna til menntunar sé fót-
um troðinn með verkfalli
kennara, eins og segir í
sameiginlegri ályktun sem
samþykkt var á fundi
stjórna félaganna í síðustu
viku.
I ályktun foreldrafélaganna
segir að ástandið sé orðið
óviðunandi og að félögin
krefjist þess að gengið verði
frá kjarasamningum nú þeg-
ar.
„Við álítum það ábyrgðar-
leysi af stjómvöldum og
kennurum að láta það við-
gangast að skólar séu lokað-
ir og að réttur barna okkar
til menntunar sé fótum troð-
inn.
Við skorum á deiluaðila
að láta nú hendur standa
fram úr ermum, ljúka samn-
ingsgerð og aflétta því
ófremdarástandi sem nú rík-
ir hjá börnunum okkar,“
segir I ályktun foreldrafé-
laganna.
Bæjarráð tók undir þessa
ályktun síðast liðinn
fimmtudag en í bæjarráði
sitja skólastjórar beggja
grunnskólanna, þeir Guð-
bjartur Hannesson og Ingvar
Ingvarsson.
Á fjölmennum bar-
áttufundi sem kennarar
efndu til á fimmtudaginn
var ábyrgð hins vegar lýst á
hendur ríkisvaldinu.
Sjá nánar bls. 3