Skagablaðið - 13.03.1995, Page 8
Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur á fundi á Akranesi á miðvikudag:
Sinkverksmiðja að Grundartanga
í senn góður kostur og raunhæfur
- Ég lít svo á að þetta sé mjög
góður kostur og raunhæfur. Ef
af verður er þetta ekki aðeins
stórgott mál fyrir Akranes og
nærsveitir heldur landið allt.
Hvort af byggingu sinkverk-
smiðju verður að Grundar-
tanga kemur í Ijós á síðari
hluta ársins. Ég met stöðuna
þannig að talsverðar líkur séu
á því að verksmiðjan verði að
veruleika, sagði Benedikt
Jóhannesson, stærðfræðingur,
í samtali við Skagablaðið.
- En ég vara jafnframt við of
mikilli bjartsýni. Það er margt
enn sem getur dregið ákvörðun
á langinn. Þetta þekkja menn
vel frá undirbúningi um göng
undir Hvalfjörð, sagði Bene-
dikt. Erindi hans um sinkverk-
Alls bárust 3.368 tonn af loðnu
á land við Akraneshöfn dag-
ana 2.-8. mars. Höfrungur
landaði þrívegis, alls 1790
tonnum, Víkingur kom einu
sinni inn með 992 tonn og
Bjarni Ólafsson einu sinni með
596 tonn.
Tveir fsfisktogaranna komu
einnig inn til löndunar og voru
báðir með góðan afla. Höfða-
víkin landaði 85,5 tonnum og
smiðju á fjölmennum, almenn-
um fundi hér á Akranesi sl. mið-
vikudag vakti mikla athygli.
Bygging verksmiðjunnar
myndi verða gríðarleg lyfti-
stöng fyrir atvinnulíf á Akranesi
og nágrannabyggðum ef af yrði.
Gert er ráð fyrir að um 200 störf
myndu skapast á undirbúnings-
tímanum og alls yrðu störf 400,
þar af 300 í verksmiðjunni að
Grundartanga, þegar verksmiðj-
an hæfi starfsemi.
Upphaf umræðunnar um
sinkverksmiðju á Islandi má
rekja til ótryggrar stöðu Aburð-
arverksmiðjunnar í Gufunesi.
Frá og með síðustu áramótum
missti hún einkaleyfi til áburð-
arsölu hérlendis vegna evrópska
efnahagssvæðisins. Vegna
smæðar sinnar verður verk-
Sturlaugur H. Böðvarsson 153,2
tonnum.
Smábátarnir áttu erfitt um vik
þessa dagana og komust flestir
ekki nema einu sinni á sjó og
aflinn eftir því. Af línubátunum
vegnaði Hrólfi skárst, fékk tæp
3,3 tonn úr sínum eina róðri.
Ebbi var með rúm 2,5 tonn úr
sínum eina róðri og Síldin sneri
heim með tæp 2,2 tonn úr sínum
róðri.
smiðjan fljótt óhagkvæm missi
hún einhverja markaðshlut-
deild. Landbúnaðarráðherra fól
Benedikt ásamt Hákoni Bjöms-
syni, framkvæmdastjóra Aburð-
arverksmiðjunnar, að kanna
Netabátamir komust oftar á
sjó en aflinn var ekki mikill.
Þannig fékk Keilir 8,4 tonn úr
þremur róðrum og Enok rétt
rúm 5 tonn úr 4 róðmm.
Alls bámst 3.635 tonn að
landi fyrrnefnda daga. Eins og
glöggt má sjá var uppistaðan
loðna svo og afli ísfisktogar-
anna. Annar afli nam aðeins 28
tonnum.
nýtingarmöguleika hennar til
framtíðar með það fyrir augum
að tryggja atvinnu um 100
starfsmanna verksmiðjunnar.
- Það sem mestu skiptir nú er
að tryggja hugsanlegri verk-
smiðju hráefni. Við höfum þeg-
ar tryggt okkur aðgang að um
fjórðungi nauðsynlegs hráefnis
frá Zinc Corporation of Amer-
ica, sem hefur sýnt áhuga á hlut-
deild í byggingu verksmiðjunn-
ar ásamt bandaríska fjárfest-
ingafyrirtækinu Allied Reso-
urces. Viðræður eru fyrirhugað-
ar í lok mánaðarins um kaup á
því viðbótarhráefni sem þarf.
Hve langan tíma tekur að ganga
frá þeim þætti er ekki gott að
segja. Það getur tekið nokkra
daga eða nokkrar vikur.
Að sögn Benedikts má skipta
í fimm þætti þeim verkefnum
sem fyrir liggja áður en ákvörð-
un um byggingu verksmiðjunn-
ar verður endanlega tekin. Fyrst
ber þar að telja áframhaldandi
skipulagsvinnu varðandi sjálfa
verksmiðjuna, þá samning við
Landsvirkjun um orkukaup,
umhverfismat, samninga við
ríkið um leigu á landi undir
verksmiðjuna og síðast en ekki
síst samninga um hráefniskaup.
- Þeir skipta mestu máli um
framvinduna í dag. Hráefni er
um 60% af framleiðslukostnaði
og veltur mjög á því hvernig til
tekst. Viðræður um hráefnis-
kaup eru þegar hafnar en hvem-
ig þeim lyktar er ekki hægt að
spá fyrir um á þessu stigi máls-
ins. Fari hins vegar allt á besta
veg geta menn vænst þess að
formlegur félagsskapur um
byggingu verksmiðjunnar verði
stofnaður á næstu mánuðum,
sagði Benedikt og vildi hvetja
heimamenn til þess að leggja
þessu máli lið, nt.a. með því að
beina því til ráðamanna að þeir
greiddu fyrir því.
Járnblendiverkstniðjan að
Grundartanga. Góðar líkur eru
taldar á að þar muni rísa sin-
kverksmiðja á nœstu árum.
Skagamarkaður:
Minni afli
■ hærra i/erð
Markaðslögmálin eru söm
við sig á Skagamarkaðnum.
Þannig var mun minna selt
af fiski dagana 3. - 9. mars
en vikuna þar á undan eða
tæp 39 tonn á móti 141,5
tonni. Minna magn leiddi
hins vegar til þess að verðið
var að jafnaði 6 krónum
hærra en vikuna á undan.
Seld voru rétt tæp 23 tonn af
þorski og var meðalverðið
97,26 krónur eða tæpum 6
krónum hærra en vikuna á
undan. Verð á ufsa féll hins
vegar nokkuð, Seld voru 6,6
tonn fyrir 64 krónur að með-
altali. Ýsa hækkaði aftur á
móti verulega í verði. Seld
voru 4,4 tonn og meðalverð-
ið var 105,75 krónur á móti
91,66 krónum vikuna á und-
an. Seld voru 1706 kíló af
undirmálsýsu og 1528 kíló
af steinbít. Aðrar tegundir
voru í litlum mæli.
Nótastöðin:
Nýirmeiri-
hlutaeigendur
Haraldur Böðvarsson hf.,
Magnús Sólmundsson og
Sigurður Ingimundarson
hafa gengið frá kaupum á
65% eignarhluta Emílíu
Jónsdóttur í Nótastöðinni.
Samningar voru undirtitaðir
um fyrri helgi.
Magnús verður fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins
og tekur við af Jóni Þor-
steinssyni sem gegnt hefur
þeirri stöðu. Hlutafé fyrir-
tækisins verður aukið og
tjármál þess endurskipulögð.
Þegar gefur á sjó yfir hávertíðina getur aflinn verið góður. Þvífengu þeir að kynnast félagarnir á
Guðnýju fyrir nokkru. Þeir stieru heim úr róðri með smekkfullan bát affínumfiski.
Höfnin fyrstu vikuna í marsmánuði:
Rúm 3 þús. tonn af loðnu