Skagablaðið - 20.03.1995, Side 1
Afbörnum
og fullorðnum
Kristín Steinsdóttir er ekki ánægð
með framkomu fullorðinna gagnvart
börnum. Hún segir sér líka allri hafa
verið lokið þegar hún sá að Skaga-
blaðið sendi ekki gagnrýnanda á sýn-
ingu Skagaleikflokksins á Óvitum.
Sjá bls. 4
Kvásarvalsinn tileink-
aður Akurnesingum
Skagaleikflokkurinn frumsýnir Kvásarvals-
inn, nýtt verk eftir Jónas Árnason, í Rein á
föstudaginn, og túlkar höfundurinn sjálfur
eina af persónum verksins. Við ræddum
við Jónas um verkið, kynni hans af Akur-
nesingum og fleira.
Sjá bls. 5
Haraldur L. Haraldsson stefnir bænum vegna gjaldþrots Þ&E hf. og fullyrðir:
Bærinn sinnti ekki lagaskyldu
Haraldur L. Haraldsson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri
Þorgeirs og Ellerts hf., hefur
stefnt stjórnarmönnum bæjar-
ins í fyrirtækinu og Akranes-
kaupstað og gerir kröfu um
greiðslu sex mánaða launa,
auk orlofs, samtals á þriðju
milljón króna. Haraldurtelur
sig hafa orðið fyrir umtals-
verðu tjóni vegna þess hvernig
staðið var að málefnum fyrir-
tækisins.
Hann fullyrðir í stefnu sinni
að bæjaryfirvöldum hafi verið
skylt að fara fram á að fyrirtæk-
ið yrði tekið til gjaldþrotaskipta
þegar í desember árið 1992 en
rekstri þess var haldið áfram
fram á síðast liðið sumar. Með
þessu telur Haraldur að stefndu
hafi brugðist lagaskyldu og vís-
ar til laga um gjaldþrotaskipti.
Haraldur stefnir Sigtryggi
Bragasyni, fyrrverandi stjórnar-
formanni félagsins, Gísla Gísla-
syni, bæjarstjóra og stjórnar-
manni í Þ&E, báðum persónu-
lega, en Gísla auk þess fyrir
hönd Akranesbæjar.
I stefnunni rekur hann að-
draganda þess að fyrirtækið
varð gjaldþrota í júlí í fyrra.
Haraldur varð launalaus við
gjaldþrotið en laun annarra
starfsmanna nutu forgangs við
búskiptin. Haraldur telur að hin-
ir stefndu, Sigtryggur og Gísli,
beri ábyrgð á tjóni hans. Hann
sakar Sigtrygg og Gísla um að
hafa ekki staðið við fyrri yfir-
lýsingar um samninga um
starfslok. í stefnunni segir:
„Með því að þessir menn,
sem voru fulltrúar stefnda Akra-
neskaupstaðar í stjórninni,
lögðu ávallt mjög ríka áherslu á
nauðsyn þess að stefnandi héldi
störfum sínum áfram hjá félag-
inu meðan verið væri að koma
málefnum þess í örugga höfn
hafi þeir gefið stefnanda fulla
ástæðu til að ætla að þeir mundu
tryggja honum það að hann yrði
ekki fyrir tjóni af störfum sínum
fyrir félagið, þótt eigið fé þess
Loðnuvertíð að Ijúka:
Hrognatöku og
frystingu lokið
Loðnuvertíðin er senn á enda
og að sögn Sturlaugs Stur-
Helgin:
Ölvun og
óspektir
Nokkrir fengu að gista
fangageymslur lögreglunnar
um helgina af ýmsum ástæð-
um. Nokkuð bar á ölvun og
óspektum í tengslum við
skemmtanalíf bæjarbúa að
sögn lögreglunnar. Maður
varð fyrir barsmíðum á
dansleik og annar skeytti
skapi sínu á dyraverði aðfar-
arnótt laugardagsins. Tals-
verð brögð voru að því að
lögregla þyrfti að koma ölv-
uðu fólki til aðstoðar.
laugssonar, aðstoðarfram-
kvæmdastjóra HB hf., lauk
hrognatöku og frystingu fyrir
helgina. Alls voru fryst 380
tonn af loðnu og 365 tonn af
hrognum hjá fyrirtækinu.
Sturlaugur gerir hins vegar ráð
fyrir að hráefni til bræðslunnar
muni halda áfram að berast
fram að mánaðamótum.
Unnið var á vöktum allan sól-
arhringinn við hrognatöku og
frystingu hjá fyrirtækinu og var
jafnframt fryst hjá Krossvík hf.
Loðnuskip HB hf. lönduðu
samtals um fimm þúsundum
tonna af loðnu í heimahöfn dag-
ana 9. til 15. mars. Höfrungur
hefur landað 24.000 tonnum frá
1. júlí í fyrra en Víkingur
23.000 tonnum á sama tíma.
Höfrungur landaði fullfenni af
loðnu í síðustu viku og hefur
fengið alls 24.000 tonn síðan í
sumar.
væri miklu minna en skuldir.“
Haraldur fékk 410.515 í mán-
aðarlaun hjá Þ&E. Sex mánaða
laun hans nema því rúmlega
tveimur milljónum króna. Auk
þess átti hann ógreitt orlof og
samtals nemur því krafa hans
nær þremur milljónum. Til frá-
dráttar kemur hins vegar meðal
annars lán sem fyrirtækið veitti
honum vegna bifreiðakaupa.
Haraldur lagði stefnu sína
fram 1. mars síðast liðinn.
Skagablaðið hefur síðan gert ít-
rekaðar tilraunir til þess að fá
stefnuna í hendur frá embættis-
og stjórnmálamönnum. Eftir að
bæjarstjóri, héraðsdómari, aðil-
ar málsins og bæjarráðsmenn
höfðu hafnað beiðni blaðsins
um afhendingu stefnunnar barst
blaðinu hún með óvæntum hætti
um helgina.
HB hf.:
Greiðirsex
prósenta arð
Stjórn Haraldar Böðvars-
sonar hf. mun leggja til á
aðalfundi félagsins í vik-
unni að greiddur verið sex
prósenta arður til hluthafa.
Auk þess verður farið fram
á heimild til þess að auka
enn hlutafé um 100 milljónir
króna.
Aðalfundur félagsins verður
haldinn næst komandi laug-
ardag en eins og Skagablað-
ið hefur skýrt frá var fyrir-
tækið rekið með 103 millj-
óna króna hagnaði á síðasta
ári eftir taprekstur árin á
undan. Afkomubatinn milli
áranna 1993 og 1994 nam
146 milljónum króna.
Skuldir lækkuðu, hlutafé
jókst og eiginfjárhlutfall
hækkaði á síðasta ári.