Skagablaðið - 27.03.1995, Side 1
Kvásarvalsinn:
Frábærar
viðtökur
Jónasi Árnasyni hefur enn einu
sinni tekist að ná hjarta venju-
legs fólks og sanna að enginn
geti skapað lifandi bókmenntir
án náins kunningsskapar við
lífið, segir meðal annars í
umfjöllun Ólafs H. Torfasonar
um Kvásarvalsinn sem Skaga-
leikflokkurinn frumsýndi í Rein
á föstudagskvöldið.
Ólafur telur styrk verksins
felast í vel skrifuðum og
skemmtilegum samtölum og fer
lofsamlegum orðum um
frammistöðu leikaranna, ekki
síst höfundarins sjálfs.
„Nýtt verk Jónasar sætir
alltaf tíðindum og Kvásarvals-
inn bregst ekki væntingum
áhorfenda, hann er einfaldur að
byggingu, auðskilinn, spaugi-
legur og með söng,“ segir
Ólafur í umfjöllun sinni.
Sjá bls. 5
Skýrsla endurskoðenda vegna reikninga húsnæðisnefndarinnar:
Greiðslur voru ekki taldar fram
Verktakagreiðslur, dagpening-
ar, húsaleigugreiðslur og húsa-
leigustyrkir fyrir árin 1988-1992
voru ekki taldar fram til skatts
eins og lög kveða á um. Virðis-
aukaskattur var ofkrafinn.
Fylgiskjöl vantaði, gögn voru
ófullnægjandi og misvísandi,
rangfærslur voru í bókhaldi og
Dalbraut:
Skóflan hf.
átti lægsta
tilboðið
Skóflan hf. átti lægsta til-
boðið í jarðvegsskipti Dal-
brautar vegna fyrirhugaðrar
lagningar á bundnu slitlagi.
Bæjarráð hefur samþykkt að
taka tilboði Skóflunnar en
fjögur önnur fyrirtæki buðu í
verkið.
Tilboð Skóflunnar hf. var
uppá 1.657 þúsund krónur
en kostnaðaráætlun bæjarins
nam rúmlega þremur millj-
ónum króna.
upplýsingar vantaði. Bókhald
var ekki fært reglulega.
Þetta eru brot úr lýsingu endur-
skoðenda á því hvernig staðið
var að bókhaldi húsnæðisnefnd-
ar bæjarins á árunum 1988-
1992. Bæjarstjórn samþykkti
nýlega endurskoðaða reikninga
nefndarinnar fyrir árin 1988-
1994. Bæjarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins treystu sér þó ekki
til þess að standa að samþykkt
reikninganna og sendu frá sér
bókun þar sem yfirstjórn bæjar-
ins var gagnrýnd harðlega
vegna þess hvernig staðið var
að bókhaldi nefndarinnar.
Unnið var að úrvinnslu á bók-
haldi nefndarinnar með hléum
allt frá árinu 1993 en sú vinna
varð mjög tímafrek vegna fjöl-
margra ágalla á bókhaldinu og
fylgiskjölum.
I skýrslu endurskoðenda frá í
janúar síðast liðnum segir að
bókhald nefndarinnar hafi ekki
verið fært reglulega. Starfsmað-
ur nefndarinnar, Jón Pálmi Páls-
son bæjarritari, færði ekki sjóð-
bók, viðskiptamannabók eða
aðrar undirbækur vegna við-
skipta nefndarinnar við kaup-
endur, seljendur, Húsnæðis-
stofnun ríkisins og verktaka.
Fjárhagsáætlanir voru ekki
gerðar en að mati endurskoð-
enda hefði þurft að gera fjár-
hagsáætlanir fyrir nefndina eins
og aðrar stofnanir bæjarins.
Viðskiptamenn nefndarinnar
voru krafðir um virðisaukaskatt
sem síðan þurfti að endurgreiða.
Sem fyrr segir voru verktaka-
greiðslur, dagpeningar, húsa-
leigugreiðslur og húsaleigu-
styrkir fyrir árin 1988-1992
ekki taldar fram til skatts eins
og lög kveða á um. Endurskoð-
endur telja að starfsmaður
nefndarinnar hefði átt að sjá til
þess að þessar greiðslur færu á
launamiða til skattayfirvalda á
tilsettum tíma.
Endurskoðendur gera fjöl-
margar athugasemdir við önnur
atriði í fjárreiðum húsnæðis-
nefndar og segja í lokaorðum
sínum í skýrslunni að mörg at-
riði hafi farið úrskeiðis varðandi
fjárreiður og bókhald húsnæðis-
nefndar. Þeir telja að dagleg
gjaldkerastörf fyrir nefndina
ættu að vera hluti af störfum að-
alféhirðis bæjarins.
Hitaveitan:
Gengið til
viðræðna
við ríkið
Bæjarráð samþykkti á fundi
sínum á fimmtudaginn að
fela Gunnari Sigurðssyni
formanni bæjarráðs og bæj-
arstjóra að ganga til við-
ræðna við fjármálaráðuneyt-
ið um lausn á vanda Hita-
veitu Akraness og Borgar-
fjarðar. Stefnt er að því að
samkomulag náist fyrir
kosningar en talið er að
málið geti tafist um ófyrir-
sjáanlegan tíma takist ekki
að ná samkomulagi við rík-
ið um niðurfellingu skulda
fyrir kosningar.
íslenska járnblendifélagiö hf.:
Hagnaðist um 280 milljónir
Rekstur íslenska járnblendifé-
lagsins hf. á Grundartanga
skilaði 280 milljóna króna
hagnaði á síðasta ári. Að sögn
Stefáns Ólafssonar, stjórnar-
formanns félagsins, eru að-
stæður félaginu hagstæðar um
þessar mundir og væntir hann
verðlagshækkana á þessu ári.
Þetta kom fram á aðalfundi ís-
lenska járnblendifélagsins sem
haldinn var í síðustu viku. í
fréttatilkynningu frá félaginu
segir að stjórn þess telji það höf-
uðverkefni að styrkja fjárhags-
stöðu þess með niðurgreiðslu
skulda og því var ekki lagt til að
arður yrði greiddur. Rætist von-
ir um verðhækkanir á kísiljárni
á þessu ári eiga þær að nægja til
þess að félagið greiði Lands-
virkjun fullt samningsverð fyrir
orku á þessu ári.
Heildarskuldir fyrirtækisins
voru rúmir tveir milljarðar
króna í lok síðasta árs og höfðu
lækkað um 83 milljónir á árinu.