Skagablaðið - 03.04.1995, Blaðsíða 1
13. TBL. • 12. ARG. • 3. APRIL 1995
VERÐ KR. 220 I LAUSASOLU
Kennaraverkfalli lokið í bili:
Mikil óánægja
með samningana
meðal kennara
Grunnskólakennarar sem
Skagablaðið ræddi við fyrir
helgina eru mjög óánægðir
með samkomulag kennarafé-
laganna og ríkisins sem gert
var í síðustu viku og telja tví-
sýnt um samþykkt þess.
Verkfalli var frestað í síðustu
viku og hófst kennsla í skólum
landsins á fimmtudaginn. Fram-
Blaðaútgáfa:
Saga Skaga-
blaðsins öll
Sögu Skagablaðsins lýkur
með útgáfu þessa tölublaðs.
Blaðið var stofnað haustið
1984 og gefið út sleitulaust
til vorsins 1994. Því var
hleypt af stokkunum að nýju
í september síðast liðnum en
nú hefur síðasta tölublaðið
komið út þar eð ekki reynd-
ist nægilega traustur fjár-
hagslegur grundvöllur fyrir
rekstrinum.
Starfsfólk blaðsins kann les-
endum og öðrum velunnur-
um blaðsins bestu þakkir
fyrir samfylgdina.
Leiklist:
Með hjartað
íbuxunum
Leikflokkurinn sunnan
Skarðsheiðar frumsýndi
leikritið Með hjartað í bux-
unum síðast liðinn föstudag.
Verkið er eftir Ray Cooney
en Valgeir Skagfjörð leik-
stýrir. Með hjartað í buxun-
um verður sýnt að Hlöðum á
Hvalfjarðarströnd annað
kvöld og á fimmtudaginn.
Búnaðarbankinn:
Rúða brotin
Stór rúða var brotin í hús-
næði Búnaðarbankans aðfar-
amótt laugardagsins og fór
aðvörunarkerfi hússins í
gang vegna þess. Lögreglan
telur sig vita hver framdi
verknaðinn.
hald skólahalds er þó háð því að
kennarar samþykki samninginn.
Von er á fulltrúum kennarafé-
laganna í þessari viku til þess að
skýra efni samningsins fyrir
kennurum á Akranesi og í fram-
haldi af því verða greidd at-
kvæði um hann.
í samtölum Skagablaðsins við
kennara kom fram að mikil
óvissa ríkir um gildi samnings-
ins fyrir einstaka félagsmenn.
Einn orðaði það svo að hann
vissi ekki hvort hann fengi 6 eða
12 prósent launahækkun eða
eitthvað þar á milli.
Það ræðst ekki fyrr en eftir
páska hvort meirihluti kennara
sættir sig við samninginn við
ríkið.
Líffærðist í skóla landsins í síðustu viku en framhald skólahalds er þó háð því að meirihluti kennara
samþykki samning kennarafélaganna við ríkið. Myndin var tekin í Brekkubœjarskóla á föstudaginn.
Hitaveitusamningur væntanlega undirritaður í dag:
Gjaldskrá veitunnar á að lækka
um tíu prósent um næstu áramót
Samningsdrög við ríkisvaldið
um rekstur Hitaveitu Akraness
og Borgarfjarðar sem væntan-
lega verða undirrituð síðdegis í
dag gera ráð fyrir að gjaldskrá
hitaveitunnar lækki um 10 af
hundraði um næstu áramót og
fimm prósent árið 1998. Ríkis-
valdið leggur fram 180 milljónir
króna og eignast með því rúm-
lega fimmtung í aðveituæð
veitunnar, verði af samningum.
Gunnar Sigurðsson, formaður
bæjarráðs Akraness, segist vera
ánægður með samningsdrögin
sem gerð hafa verið við ráðu-
neyti fjármála og iðnaðar.
Bæjarstjórn Akraness stað-
festi samningsdrögin í gær en
fundir voru þá einnig fyrirhug-
aðir í bæjarstjórn Borgarbyggð-
ar og í hreppsnefnd Andakíls-
hrepps. Ekkert verður af undir-
ritun samningsdraganna nema
samþykki allra eigenda HAB
fáist.
Lokið var við gerð samnings-
draganna á laugardaginn, að
sögn Gunnars Sigurðssonar.
Þau gera sem fyrr segir ráð fyrir
að rikið kaupi hlut í aðveituæð
veitunnar fyrir 180 milljónir
króna. Aðveitan verður hins
vegar að meirihluta til í eigu
Akraneskaupstaðar. Stefnt er að
því að Rafveita Borgarness
verði seld Rafmagnsveitum rík-
isins og að stofnaðar verði bæj-
arveitur í Borgarbyggð og á
Akranesi. A Akranesi yrði þá
rekstur hitaveitu og rafveitu
sameinaður og að sögn Gunnars
kemur einnig til greina að
tengja rekstur áhaldahúss,
tæknideildar og vatnsveitu
rekstri orkufyrirtækjanna. Sam-
kvæmt samningsdrögunum er
Akumesingum gert að spara 17
milljónir króna í rekstri veitn-
anna árlega og Gunnar segir
stefnt að því að hitaveitan verði
skuldlaus að 17 árum liðnum.
- Mér finnst mjög mikilvægt
að tjármálaumsýsla aðveituæð-
arinnar verður í höndum okkar
Akurnesinga, segir Gunnar við
Skagablaðið.
Hluthafafundur í Norræna skólasetrinu:
Framkvæmdastjórinn gagnrýndur
Harðri gagnrýni var beint að
Sigurlín Sveinbjarnardóttur,
framkvæmdastjóra Norræna
skólasetursins, á hluthafa-
fundi sem haldinn var í gær.
Sigurlín segir við Skagablaðið
að fullnægjandi svör við
spurningum hluthafa verði
veitt fyrir aðalfund fyrirtækis-
ins 29. apríl næst komandi.
Sveitarfélög, fyrirtæki og ein-
staklingar á Akranesi og í
Borgarfirði eru eigendur Nor-
ræna skólasetursins. Rekstur-
inn hófst síðast liðið haust en á
nú þegar undir högg að sækja
fjárhagslega. Samkvæmt heim-
ildum Skagablaðsins hafa
rekstaráætlanir ekki staðist og
bókanir eru mun minni en von-
ir stóðu til.
Hluthafafundurinn í gær var
haldinn að beiðni Búnaðarfé-
lags Hvalfjarðarstrandarhrepps
til þess að ræða störf stjórnar
og framkvæmdastjóra. Störf
Sigurlínar Sveinbjarnardóttur
voru þar gagnrýnd harðlega en
samkvæmt heimildum Skaga-
blaðsins átti hún sér einnig for-
mælendur á fundinum.
Sigurlín sagði við Skaga-
blaðið í gærkvöldi að erfið-
leika í rekstrinum megi meðal
annars rekja til þess að stofn-
kostnaður fór 10 prósent fram
úr áætlun og aðrar ytri aðstæð-
ur hafi reynst óhagstæðar.
Kennaraverkfallið setti
stórt strik í reikninginn hjá
okkur. Ég geri mér grein fyrir
því að þessi rekstur verður ekki
léttur en ég hef mikla trú á hon-
um enda hef ég lagt aleigu
mína í þetta og vil vinna ótrauð
áfram að rekstri skólasetursins,
sagði Sigurlín.