Ófeigur - 01.06.1944, Blaðsíða 13
ÓFEIGUR
13
vera greiðasemi. En ég vil helzt hugsa sjálfur mínar
hugsanir og búa sjálfur til mínar ræður. Þetta er sagt
til leiðbeiningar þeim, sem vilja halda áfram þessari
hjálparstarfsemi.
# * #
Nafnkenndur Framsóknarmaður hneykslaðist nýlega
á fundi yfir, að ég skyldi fá bók gefna út hjá ísafoldar-
prentsmiðju. En ræðumaðurinn er ekki hræddur við
að vera í fjármálafyrirtæki með samkeppnismönnum
og mun leggja meiri stund á fjárgróða, heldur en ég
með þingskjalaútgáfu minni. Annars mátti ræðumaður
vita, að ég hafði slæma reynslu af útgáfudugnaði sumra
af nánustu starfsmönnum hans og hafði lögleg forföll
að leggja þar ekki oftar út á djúpið.
* ■ # *
Um miðjan vetur í fyrra kom reyndur bóndi af
Vesturlandi til Reykjavíkur, gagntekinn af þeirri hug-
sjón að Framsóknarmenn ættu að ganga í sem allra
nákomnast bandalag við kommúnista, til þess að fá á
þann hátt lækkað kaupið, því að kauphæðin væri að
eyðileggja sveitabúskapinn. Síðan er liðið meira en ár.
Framsóknarflokkurinn hefur lagt sig fram, að búa vel
að bolsevikum. En vestfirski bóndinn mun hvergi sjá
þakklæti bolsanna. Nú herða þeir sem mest má kverka-
tak á framleiðslu bænda.
# * #
Valtýr Stefánsson hefur ásamt kommúnistum í höf-
uðstaðnum stöðvað kirkjubyggingu á Skólavörðuhæð,
en í þeim bæjarhluta er 12 þús. manna kirkjulaus söfn-
uður. Var því borið við, að ekki hafði verið útboð til
allra húsameistara, um kirkjuteikninguna. En í vetur
reyndi söfnuðurinn á Seltjarnarnesi um sína kirkju
samskonar útboð og Valtýr Stefánsson hafði beðið um.
Alexander Jóhannesson var formaður þeirrar dómnefnd-
ar. Söfnuðurinn var búinn að aura saman 15. þús. krón-
imv í byggingarsjóð og eyddi þeirri upphæð í þrenn
verðlaun fyrir kirkjuteikningar. Margir keptu, en allar
voru teikningarnar sorglega ófullkomnar og það svo,
að Morgunblaðið fékst ekki til að birta myndir af þeim.
Álitlegasta teikningin virðist vera af síldarverksmiðju,
en hinar voru þó enn óásjálegri. Síðan verðlaun voru
gefin, hefir mjög tekið fyrir gjafir til Neskirkju. Fólk