Bæjarblaðið - 25.02.1983, Síða 5

Bæjarblaðið - 25.02.1983, Síða 5
BenJorblodid 5 Hóf nám í Fjöfbrautarskólanum til að læra betur íslensku: „Dúxaði“ síðan á stúdentsprófi — Spjallað við hina þýskættuðu Úrsúlu Irene Karlsdóttur Viö brautskráningu nemenda frá Fjölbrautaskólanum á Akranesi á haustönn þann 18. desember s.l., náði langbestum námsárangri Úrsúla Irene Karlsdóttir stúdent af viðskiptabraut, en hún hlaut hæstu einkunn í öllum áföngum aðtveim- ur undanskildum. Slíkt námsafrek er afar sjaldgæft að sögn. En námsárangur Úrsúlu er einstakur vegna þess að hún er ekki borinn og barnfæddur íslendingur, heldur er hún þýsk, reyndar komin með íslenskan ríkisborgararétt nú. Hún flytur hingað til lands árið 1970 frá heimaborg sinni Suttgart í Vestur- Þýskalandi. Sest hún síðan á skólabekk í Fjölbrautarskólanum haustið 1979 eftirað hafa búið hér í aðeins tæp 9 ár, þá 35 ára gömul. Bæjarblaðið leit við hjá henni fyrir skemmstu að heimili hennar á Suðurgötu 108 hér í bæ þar sem hún býr ásamt eiginmanni sínum Braga Ingólfssyni efnaverkfræðing hjá Sementsverksmiðju ríkisins og tveimur börnum þeirra. Við inntum Úrsúlu fyrst að því hvort það hefði verið einhver sérstök ástæða fyrir því að hún setti í sig kraft og kjark og skellti sér á skólabekk. „Ástæðan hjá mér var fyrst og fremst sú að mig langaði til að læra meira í íslensku og reyndareinnig í dönsku. Ég hafði reynt að fara í námsflokkana, en fannst koma lítið útúrþví. Þannigaðþað varekkium annað að ræða hjá mér en að fara ( Fjölbrautaskólann. En það var að sjálfsögðu erfitt sem útlendingurað byrja í æðri menntastofnun sem Fjölbrautaskólinn er. En ég vil um leið nota tækifærið og leiðrétta er kom fram í síðasta blaði hjá ykkur, en þar var sagt að ég hefði verið í öldungadeild. Það var ekki rétt ég stundaði námið í dagskólanum." Voru ekki vissir erfiðleikar að fara í námið, bitnaði það ekki á fjölskyldunni? Úrsúla ásamt fjölskyldu sinni, eiginmanninum Braga Ingólfssyni og börnum þeirra Baldri Már og Helgu Báru. Sementsverksmiðjan: Kolabrennslan hefst í júní Undirbúningsvinna fyrir kola- brennslu hjá Sementverksmiðju ríkisins er nú í fullum gangi. Að sögn Guðmundar Guðmundsson- ar framkvæmdarstjóra, er áætlað að kolabrennsla hefjist í júnímán- uði. Þó sagði Guðmundur að sú áætlun væri kannski gerð af bjart- sýni, en það gæti þó allt eins stað- ist, þar sem undirbúningur hefði gengið mjög vel. Guðmundur sagði að þau tæki sem enn vantaði kæmu til landsins í næsta mánuði en sá búnaður er allur nýr. Stærstur hluti búnaðarins var þó keyptur notaður erlendis fyr- irfyrirum þrem árum. Nú stendur yfir bygging á sílói á athafnasvæði verksmiðjunnar við Faxabraut og bygging kvarnar- húss stendur yfir við Mánabraut. Guðmundur sagði, að til að byrja með yrði kolunum skipað upp á Grundartanga og þau síðan flutt hingað til Akraness á bílum og hef- ur verksmiðjan fest kaup á sér- stökum tengivagni til þeirra flutn- inga. Sá vagn er lokaður og upp- fyllir því þær kröfur sem settar voru í starfsleyfi fyrir verksmiðjuna, vegna kolaflutninga. Guðmundur sagðist reikna með Sementsverksmiðjan brennir senn kolum að ársnotkun verksmiðjunnar á kolum næmi um tuttugu þúsund tonnum og kæmu þau til landisns í fjórum til fimm skipsförmum. Kolin yrðu geymd á Grundartanga og einungis yrði um tveggja sólar- hringa byrgðir geymdar hjá Sem- entsverksmiðjunni í einu. Um sparnað að kolakyndingu sagði Guðmundur, að hann væri stöðugt að aukast í krónutölu. „Við reiknum með að spara 50% af olíukostnaði á þessu og miðað við tvö ár eru það um 60 milljónir króna“. Nú eru um tvö ár síðan Sement- verksmiðjan fékk starfsleyfi fyrir kolakyndingunni og veitir henni örugglega ekki af þeimsparnaði sem kolunum ersamfara. „Þegar það gerist eins og hjá mér að húsmóðirin ákveður að fara í nám, krefst það vissulega sam- heldni fjölskyldunnar. Því þaðgefur augaleið að heimilislífið verður ekki eins fastmótað og áöur og hver og einn verður að hjálpa sér meira en áður. Þetta eru hlutir sem fjölskyldan verður að gera sér grein fyrir áður en í svona nám er farið. Hvað mig varðaði þá gekk þetta í alla staði eins og í sögu allir hjálpuðu til bæði eiginmaðurinn og börnin." Hvað veitti þér mesta ánægju í náminu og hvað var erfiðast? „Það sem veitti mér mesta ánægju í náminu var að ég skildi fá A í íslensku, sem er besta einkunn, i öllum prófum mínum gegnum námið, það gerði mig virkilega stolta. En það verð ég að segja“ sagði Úrsúla og tók um höfuðið um leið „að blessuð ættfræði Sturl- unga og Sturlungaöldin úr íslands- sögunni reyndist mér snúin í fyrstu og eitt sinn gekk það svo langt að ég tók bókina og grýtti henni út í horn í bræði minni, er ég var að læra í henni heima, en ég náði nú samt í bókina aftur um síðir og gafst ekki upp fyrr en ég náði aö læra söguna til hlítar. Reyndar þótti mér sögunámið mjög fróölegt og vildi ég ráðleggja öllum útlending- um að kynna sér sögu íslendinga sem best. Að mínu áliti er þekking á fortíð og menningararfi þjóðarinnar nauðsynleg til þess að geta orðið sannur íslendingur. Þetta er engu síður mikilvægt en að hafa sæmi- legt vald á íslensku. En hvaöskóla- nám snertir“ hélt Úrsúla áfram og sagði „þá krefst það samvisku- semi og skipulagningar og í þeim efnum tel ég mig hafa haft meiri reynslu en unglingar geta haft. Áð- ur en ég fluttist til íslands vann ég á lögmannsskrifstofu í Suttgart í mörg ár, þar sem þessir þættir voru í hávegum hafðir.“ Voru ekki mikil viðbrigði að setj- ast á skólabekk með unglingum sem voru mörgum árum yngri en þú? „Nei, það reyndist ekki erfitt, langt í frá. Krakkarnir tóku mér mjög vel strax í byrjun og fann ég aldrei til óþæginda þótt aldurs- munurinn væri nokkur á milli okkar. Vil ég þakka krökkunum góð kynni. Viltu hvetja fólk til að setjast að nýju á skólabekk, eftir að hafa tekið langt hlé frá námi? „Ég get ráðlagt öllum þeim sem áhuga hafa á að fara í framhald- andi nám að gera slíkt. Það geta allir lært en þetta er bara spurning um tíma hjá hverjum og einum. Við hérna á Ákranesi búum að ýmsu leyti betur en fólk á Reykjavíkur- Úrsúla: „Ánægjulegast að fá A í íslensku“. svæðinu, þar sem vegalengdir eru miklu meiri og talsverður tími getur farið í ferðir. Auk þess stendur nemendum í öldungadeild F.A. til boða að sækja einstakar kennslu- stundir eða eins mikið af náminu og þeim hentar í dagskólanum. En fólk verður að sjálfsögðu að gera sér grein fyrir því að árangurinn kemur ekki með því einu að sitja í kennslutímum, heldurkrefst námið verulegrar heimavinnu." Hefur þú einhvergóð ráð í poka- horninu sem aðrir gætu haft gagn af? „Nei, því miður. Það verðurhver og einn að finna sínar eigin aðferð- ir. Ég reyndi alltaf að finna eitthvað áhugavert í öllum námsgreinum, þó sérstaklega þegar mér fannst viðfangsefnið lítt aðlaðandi í upp- hafi og stefna mín var að læra að- eins fyrir sjálfa mig en ekki fyrir skólann eða einhver ákveðin próf, t.d. lærði ég aldrei sérstaklega undirprófin.“ Ert þú hætt námi að sinni? „Nei, aldeilis ekki, ég byrjaði í háskólanum núna í janúar og er í uppeldisfræði og þýsku. Þarf að sækja tíma tvo til þrá daga í viku. Námið í þessum greinum tekur 3 ár, en síðan þarf að bæta einu ári við ef menn vilja öðlast starfsrétt- indi í þessum greinum." Þetta er nú meiri dugnaðurinn hjá þér Æ, segið þið þetta nú ekki líka, það er oft og iðulega verið að segja þetta við mig, ég er orðin dauðleið á þessu. Það er eilíflega verið að tala um dugnað ef t.d. kona ákveð- ur að fara í skóla samfara heimilis störfunum, en það heitir ekki dugnaður hjá konu sem vinnur úti t.d. í frystihúsi eða einhverri annarri vinnu frá morgni til kvölds, það þyk- ir sjálfsagt. Þetta finnst mér ekki réttlátt'1 sagði Úrsúla að lokum. Akurnesingar! Munið kaffisölu Svannasveitar skátafélagsins í íþróttahúsinu á sunnudaginn. Úrvals kaffi og meðlæti. SVANNASVEITIN

x

Bæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.