Bæjarblaðið - 03.05.1984, Blaðsíða 1
7. tbl. — 3. maí 1984 — 6. árg.
Fréttablað Akurnesinga — Óháð pólitískum flokkadrætti
Fyrsti bikar ársins í höfn
ÍA vann í Litlu
bikarkeppninni
Frá brunanum á Breiðinni. Innandyra geymdi útgerð Bjarna Óiafs-
sonar AK síldarkassa og ýmiskonar pakkningar tengdar útgerð-
inni.
Slökkviliðið kallað
tvivegis út
Á annan í páskum kom upp
eldur í gömlu geymsluhúsi á
Breiðinni. Húsið var alelda þegar
slökkviliðið kom á staðinn og
brann þar allt sem brunnið gat en
slökkviliðinu tókst að koma í veg
fyrir að eldurinn breiddist út í fisk-
verkunarhús sem eru sambyggð.
Talið er að þarna hafi verið um
íkveikju að ræða og líklega hafa
þar verið börn að verki.
Þá var slökkviliðið kallað að
húsi við Skarðsbraut fyrir
skömmu en þar hafði komið upp
eldur í sportbáti sem verið var að
vinna í við hlið hússins. Miklar
skemmdir urðu á bátnum, þó svo
að greiðlega hafi tekist að slökkva
eldinn.
ÍA varð sigurvegar í Litlu
bikarkeppninni í knattspyrnu í
fyrradag er liðið vann lið
Breiðabliks í Kópavogi með einu
marki gegn engu. ÍA vann alla
sína leiki í mótinu og hlaut
þannig átta stig og markatalan
varð 10-1. Glæsileg byrjun og
það hjá íslands- og bikarmeist-
urum okkar.
Annars urðu einstök útslit
leikja hjá okkar mönnum í mót-
inu þessi: ÍA-Haukar 6-1, FH-ÍA
0-2, ÍA-ÍBK 1-0, UBK-ÍA 0-1.
Við skulum vona að þessi
sigur sé aðeins byrjunin á glæsi-
legu sumri í knattspyrnunni, þó
svo að það hljóti að kallast mikil
bjartsýni að búast við að liðið nái
eins góðum árangri og í fyrra.
Foreldrafélagið á 17. júní
Þjóðhátíðarnefnd hefur farið
þess á leit við foreldra- og kenn-
arafélag Brekkubæjarskóla að það
sjái um leiki barna á 17. júní í
sumar, gegn þóknun. í því tilefni
var 54 manna fulltrúaráðið kvatt
saman og mættu 4. Þetta áhuga-
leysi fannst stjórninni vont, sakir
þess að félagið hefur ákveðið að
kaupa tæki til skólans, og er þetta
ein fjáröflunarleið sem félagið vildi
ekki láta framhjá sér fara. Nú vill
stjórnin ekki trúa því að foreldrar
vilji almennt ekki taka þátt í starf-
semi til stuðnings börnum sínum
og annarra, og í þessu tilfelli til
skemmtunar börnum bæjarins á
þjóðhátíðardaginn. Þykjumst við
viss um að fólk hafi af óviðráðan-
legum orsökum ekki talið sér fært
að mæta og ekki heldur getað látið
okkur vita um forföll sín.
Þessvegna viljum við auglýsa
eftir viljugum foreldrum utan full-
trúaráðsins sem innan þess, og
hvetja þá til að mæta með uppá-
stungur um leiki og þrautir handa
yngstu borgurunum á laugardag-
inn 5. maí klukkan 13 í Brekku-
Aflafréttir af
vertíðarbátunum
Afli vertíðarbátanna fram að síðustu mánaðarmótum var
sem hérsegir: Kg.
Grótta 306.950
Haraldur 533.850
Reynir 148.860
Sigurborg 527.890
Skírnir 211.940
Sólfari 404.210
Tveir bátar, Skírnir og Sigur-
borg hafa nú hætt þorskveið-
um. Afli smábáta var orðinn 191
tonn um mánaðarmót og heild-
arafli því orðinn 2324 tonn, en
var á sama tíma í fyrra 3267
tonn. Þess ber að gæta að mun
fleiri bátar voru að veiðum í
fyrra, eða tíu í stað sex nú.
Happdrætíi fyrir
sölubörnin
Bæjarblaðið hefur alla tíð haft
á að skipa öflugu liði sölubarna,
sem séð hafa um að koma blað-
inu til bæjarbúa, í misjöfnum
veðrum og oft við hinar verstu
aðstæður að vetrarlagi.
Bæjarblaðið stendur í mikilli
þakkarskuld við þennan öfluga
sölubarnahóp og til að krydda
aðeins tilveruna hjá þeim, þá hóf
blaðið svokallað söluhappdrætti
fyrir skömmu. Happdrætti þetta er
þannig í framkvæmd að sölu-
börnin fá einn happdrættismiða
fyrir hver tíu blöð sem þau selja
og fær þannig sá sem mest selur
mestan möguleika á vinning.
Happdrætti þetta hefur staðið yfir
síðast liðin tvö blöð og endar með
þessu tölublaði. Síðan verður
dregið í happdrættinu að öllum
sölubörnum viðstöddum og fimm
vinningar veittir, hver þeirra er
1000 krónu úttekt í versluninni
Óðni. Þó mun hvert sölubarn ekki
hljóta meira en einn vinning og
komi upp númer hjá einhverju
sölubarni sem þegar hefur hlotið
vinning verður dregið aftur. Þetta
eru kannske undarlegar reglur,
en við bárum þetta undir sölu-
börnin þegar farið var af stað og
stað og lýstu þau eindregnum
vilja sínum um að hafa þetta
svona.
Sölubörn Bæjarblaðsins eru 20
til 25 talsins, og hafa sum þeirra
selt blaðið alveg frá því að það
kom fyrst út í september 1979.
Nú hefur Kalli Þórðar ákveðið að snúa heim frá Frakklandi. Hann
getur byrjað að leika með ÍA 6. júní. Myndin er tekin er Karl bjó í
Belgíu.
bæjarskóla, þar sem starfsemin
verður skipulögð. Þeir, sem eru
feimnastir, geta hringt með hug-
myndir itl formannsins, Sigrúnar
Harðardóttur, í síma 2813, eða
annarra stjónarmeðlima. Enn-
fremur skorar stjórnin á foreldra að
sanna ekki á sig áhugaleysi um
velferð barna sinna.
Stöndum vörð um velferð barna
okkar.
Stjórnin
Þeir stóru finnast
Það eru ekki eintómir tittir sem
fást úr sjó nú á dögum, þó svo að
vissulega séu stórþorskarnir
orðnir sjaldséðir. Skipverjar á
Haraldi Ak 10 fengu einn heljar-
mikinn stórþorsk í netin nú rétt
fyrir páska. Sá stóri mældist 145
cm langur og var 40 kg á þyngd
og verður því að teljast hin mynd-
arlegasti fiskur.
Á stærri myndinni eru það þeir
Þröstur Eðvarðsson og Stefán
Benediktsson sem halda á
þorskinum á milli sín. Á minni
myndinni er það Stefán sem
hverfur á bak við fiskinn
Myndir: hb.
Bein útsending frá messu
Á páskadag var sjónvarpað
messu frá Akraneskirju. Var þetta
í fyrsta sinn sem sjónvarpað er
beint frá Akraness og jafnframt í
fyrsta sinn sem sjónvarpað er
beint frá kirkju utan Stór-
Reykjavíkursvæðisins.
Messan í Akraneskirkju hófst
klukkan 5 síðdegis og hófst hún
með því að meðhjálpari
kirkjunnar og formaður sóknar-
nefndar, frú Ragnheiður Guð-
bjartsdóttir las bæn. Þá flutti ung
stúlka út söfnuðinum, Ásdís Halla
Bragadóttir, pistil. Sóknarprestur,
sr. Björn Jónsson, þjónaði fyrir alt-
ari og prédikaði.
Kirkjukór Akraness söng við
guðsþjónustuna undir stjórn org-
anistans, Jóns Ólafs Sigurðsson-
ar. Þá léku félagar úr strengjasveit
Tónlistarskóla Akraness með í
flutningi stólvers.