Bæjarblaðið - 28.06.1984, Blaðsíða 1
Langþráð framkvæmd í sjónmáli:
Ákveðið að hefja
framkvæmdir við
sundlaug.
Nú hillir loks undir að fram-
kvæmdir við nýja sundlaug hefjist
hér á Akranesi. Bæjarstjórn sam-
þykkti á fundi sínum sl. mánudag
að fela Verkfræði- og teiknistof-
unni að vinna bygginganefndar-
teikningar af laugarkeri og bún-
ingsaðstöðu á grundvelli teikn-
inga frá 15. mars sl. með þeim
breytingum að hitapottur verði
færður vestar og kjallararými
verði stækkað. Jafnframt sam-
þykkti bæjarstjórn að fela tækni-
deild bæjarins að láta vinna út-
boðsgögn fyrir grunn búningsað-
stöðu og laugarker.
í máli flestra bæjarfulltrúa sem
töluðu á fundinum kom fram að
þeir væru ekki alveg sáttir við þær
teikningar er lægju fyrir en samt
sem áður myndu þeir ekki standa
í vegi fyrir að hafist yrði handa nú.
En eins og áður hefur komið fram
í Bæjarblaðinu hafa bæjarfulltúar
lýst því yfir að þeir væru orðnir
langþreyttir á aðgerðaleysinu í
sundlaugarmálinu og því myndu
þeir jafnvel samþykkja eitthvað
sem menn væru ekki alveg sáttir.
Á með fylgjandi afstöðumynd
sést afstaða væntanlegra íþrótta-
mannvirkja við íþróttavöllinn. Nú-
verandi vallarhús og búningsað-
staða verður stækkað og íþrótta-
hús íþróttabandalags Akraness
tengist því.
Kaupir HB & Co raðsmíðaskipið hjá Þorgeir og Ellert?
„Höfum áhuga á að
eignast skipið“
segir Haraldur Sturlaugsson, framkvæmdastjóri
„Já við höfum áhuga á að eign-
ast þetta skip, en það þarf nú að-
eins meira til en áhuga nú á
dögurn," sagði Haraldur Stur-
laugsson, framkvæmdastjóri HB
& Co, er Bæjarblaðið spurði hann
hvort fyrirtækið hefði hug á að
kaupa raðsmíðaskipið sem
Þorgeir og Ellert hf. eru með í
smíðum.
Haraldur sagði að fyrirtækið
hefði nú auglýst elsta bát sinn,
Harald Ak 10 til sölu. Hann sagði
marga hafa spurst fyrir um bátinn
og nokkrir skoðað en engin alvara
hefði enn verið í því máli. Varð-
andi skipið hjá Þ & E sagði Har-
aldur að það vissu allir að útgerð-
ardæmi nýs skips væri glórulaust.
„En það er Ijóst að skipið fer áflot
og ef það á að gera það út til fisk-
veiða, þá erum við Akurnesingar
ekkert verri menn en aðrir til að
reka það. Þannig standa málin í
mínum huga. í dag heitir það að
vera óábyrgur, ef maður leyfir sér
að horfa eitthvað fram á við,“
sagði Haraldur.
„Yngsta skipið okkar er Harald-
ur Böðvarsson Ak 12 og það er að
verða 10 ára gamalt skip. Harald-
ur Ak 10 er hins vegar orðinn 24
ára gamall. að vísu mikið endur-
bættur. Ef við ætlum að gera út
héðan áfram þá þýðir ekkert ann-
að en að endurnýja. Öll tekju-
viðmiðun hér hjá sjómönnum er
á stóriðjutaxta og það er komið í
Ijós að allir þessir dæmigerðu
vertíðarbátar skila okkar sjó-
1 *, r* ,...
mönnum ekki þeim tekjum sem
þarf. Ef ekki kemur eitthvað
óvænt uppá má búast við að bátar
eins og Haraldur, Grótta, Sólfari,
Siguborg o.fl. hverfi úr höfninni
vegna þess að það fást ekki
menn á þá.“
Þá sagði Haraldur að það væri
erfitt í dag að vilja endurnýja
tækin, en ef það yrði ekki gert
staðnaði allt á mjög skömmum
tíma. „HB & Co hefur verið byggt
upp af frábæru fólki til lands og
sjávar og það fólk vill sjá hreyfingu
og þess vegna er það nauðsyn-
legt hverju fyrirtæki, sem vill halda
góðu starfsfólki að missa ekki
framtíðarsýnina. Við verðum öll
að átta okkur á því að tækin í sjáv-
arútvegi úreldast á ótrúlega
skömmum tíma. Það þekkja þeir
sem vinna að sjávarútvegi," sagði
Haraldur Sturlaugsson að lokum.
Sambýli fyrir fjölfatlaða:
Tekið í notkun á sunnudag
Hið nýja hús sambýíis fyrir fjölfatlaða við Vesturgötu verður tekið í
notkun á næstkomandi sunnudag 1. júlí.
Fyrst um sinn munu tveir heimilismenn búa á sambýlinu. Forstöðu-
kona hefur verið ráðin Málfríður Þorkelsdóttir.
Viðbygging Brekkubæjarskóla
Fyrir skömmu voru opnuð til-
boð í framkvæmdir við jarðvegs-
Haraldur AK10
Akranes í landkynn-
ingarmynd
Allar líkur eru á að fyrirtæki
og bæjarfélagið hér verði þátt-
takendur í landkynningar-
mynd sem fyrirtækið ísmynd
mun fljótlega hefja vinnslu á.
Samningaviðræður um þátt-
töku Akurnesinga í myndinni
standa nú yfir og samkvæmt
heimildum Bæjarblaðsins eru
menn hér áhugasamir fyrir
þessu, en talsverður áhugi
hefur nú vaknað hér í bæ að
kynna það sem hér er upp á að
bjóða.
Ef af verður munu tökur hér
byrja í júlímánuði.
skipti og grunn viðbyggingar
Brekkubæjarskóla. Kostnaðar-
áætlun Verkfræði- og teiknistof-
unnar sf. fyrir þetta verk var
3.34.020 kr. Tilboð bárust frá fjór-
um aðilum og voru þau svohljóð-
andi:
Kr. % af
kostn.
áætl.
Vísirhf. 3.215.595,26 93,7
Þ&Ehf. 2.910.889,00 84,8
Guðm.Magn. 2.199.716,00 64,1
GrímarTeits. 2.698.216,00 78,6
Bæjarráð samþykkti á fundi
sínum fyrir skömmu að ganga til
samninga við Guðmund Magnús-
son, á grundvelli útboðsgagna.