Bæjarblaðið - 30.08.1984, Síða 1
13. tbl. — 30. ágúst 1984 — 6. árg.
Fréttablað Akurnesinga — Óháð pólitískum flokkadrætti
„Við fjarlægjum
þau“ - segja bæjar-
starfsmenn um blómakerin
íslands- og
bikarmeistarar ÍA
Sveinn Guðbjarnason og Hannes Hjartarson vinna við að hreinsa
til eftir skemmdarverkin.
„Viðfjarlægjum þessi blómaker
sem búið er að velta núna og þau
verða ekki sett upp aftur á þessu
sumri“, sögðu þeir Hannes Hjart-
arson og Sveinn Guðbjarnason,
starfsmenn Akranesbæjar er
Bæjarblaðið ræddi við þá um dag-
inn en þá voru þeir að moka mold
og ónýtum blómum upp á vagn
ásamt því að fjarlægja tóm
blómaker.
Eins og bæjarbúar hafa tekið
eftir hafa mikil brögð verið af því
að blómakerjunum, sem sett hafa
verið upp til skrauts meðfram
helstu umferðargötum bæjarins,
hafi verið velt um koll og blómin
þannig eyðilögð.
Blómaker þessi hafa, allt frá
því að þau voru fyrst sett upp fyrir
þremur árum, lífgað upp á um-
hverfið og verið skemmtilegt
skraut á sumrin. Nú í sumar hefur
hins vegar verið mikið um það að
einhverjir undarlega hugsandi,
eða öllu heldur hugsunarlausir,
ræflar hafa séð ástæðu til að eyði-
leggja þessa skreytingu. Mest
hefur borið á þessu aðfararnætur
laugardaga en þó kom fyrir að
síðast liðinn föstudagsmorgunn
var búið að hvolfa úr öllum blóma-
kerjum á Skagabraut og stórum
hluta þeirra sem eftir voru á
Kirkjubraut, ástæðan er líklega
sú að þá um kvöldið hafði verið
unglingaball og líklega hefur ein-
hver „jakinn" þurft að sýna karl-
mennsku sína og ekki haft kjark í
annað en saklaus blóm.
Óskandi væri að bæjarbúar
hefðu augun hjá sér og létu lög-
reglu vita ef þeir verða varir við
þessi skrílslæti. Bæjarblaðið
leggur síðan til að þeir sem upp-
vísir verði að þessum skemmdar-
verkum verði flengdir opinber-
lega.
Vilia ráða starfsmann
Ferðamál hafa verið talsvert til
umræðu hér á Akranesi á liðnu
ári, eins og komið hefur marg oft
fram í Bæjarblaðinu. Hér hefur
hópur áhugasams fólks unnið
mikið verk í kynningu Akraness
sem ferðamannabæjar og í sum-
ar hefur þessi hóþur gert tilraun
með skipulagðar pakkaferðir
hingað til Akraness. Þær ferðir
voru vikulega í sumar og aðsókn-
in var allt frá engum og upp í
fimmtán ferðamenn í ferð.
( síðustu viku var haldinn hér á
hótelinu fundur þessara einstakl-
inga með formanni og fram-
kvæmdastjóra Ferðamálasam-
taka Vesturlands, fulltrúum At-
vinnumálanefndar og bæjarfull-
trúum. Á fundinum voru ræddar
hugmyndir sem komið hafa upp í
þessum málum og þá sérstak-
lega í Ijósi þeirrar reynslu sem
samstaríshópurinn hefur fengið í
sumar með pakkaferðunum.
Á fundinum kom fram hjá
áhugafólkinu að nauðsynlegt
væri að ráða hér starfsmann til að
sjá um kynningarstarf hérlendis
og erlendis og töldu menn að hér
þyrfti að vera um fullt starf að
ræða á sumrin en jafnframt þyrfti
starfsmaður þessi að vera í hluta-
starfi að vetri, þar sem mikill hluti
kynningarstarfsins þyrfti að ger-
ast með miklum fyrirvara. Þá voru
fundarmenn ekki tilbúnir að kveða
á um það hvort réttara væri að
framkvæmd ferðamála hér væri í
höndum nefndar á vegum bæjar-
félagsins eða hvort áhugafélag
um ferðamál sæi þar um.
Eins og á opnum fundi um ferð-
amál sem haldin var í vor, þá voru
nú miklar umræður og fjölmargar
hugmyndir á lofti, en öllum ætti
nú að vera Ijóst að nú er komið að
því að reyna að framkvæma ein-
hverjar þessara hugmynda.
íslandsmeistarar í mfl. kvenna
Mynd: Friðþjófur
íslandsmeistarar í 4. flokki drengja
Mynd: RAX
Bikarmeistarar í mfl. karla
Mynd: Friðþjófur