Bæjarblaðið - 11.10.1984, Blaðsíða 7
7
Konur í frystihúsum: Látið leiðrétta
BÓNUSRÁNIÐ
Samþykkið enga þá samninga, þar sem fólki
er gert að vinna á iægri töxtum en lægsta
kaup í landinu má vera.
Samþykkið heldur ekki það sem heimilar að reikna
bónusprósentuna af lægra kaupi en
lágmarkslaunin eru.
Eins og fólki er í fersku minni
voru síöustu samningar ASÍ og
VSÍ í febr. sl. 1984 naumlega
samþykktir víöast hvar á landinu
og sumstaöar felldir þrátt fyrir
þaö, aö forustufólk verkalýös-
hreyfingarinnar berðist fyrir sam-
þykkt þeirra.
Það sem var meginágreining-
urinn þá, voru tvöföldu taxtarnir
og hvernig þeim var ætlaö aö
lækka laun þeirra sem vinna í
bónus, premíu og með einhvers-
konar álagi miöaö viö þaö sem
má vera lægsta dagvinnutíma-
kaup í landinu, auk þess lækka
eftirvinnu, næturvinnu og starfs-
aldurshækkanir féllu alveg niður.
En eftir aö samþykkt samning-
anna haföi veriö barin fram, varö
fólki verulega Ijóst hvað hafði
skeö og allan tímann síðan hefur
óánægjan veriö aö magnast og
fólk hefur fengið skilning á því aö
t.d. konurnar í bónusnum veröa
sjálfar aö borga sér af honum til
aö ná lágmarkslaunum. Fólkið
mátti í sumu tilvikum vinna á 14%
hærra kaupi í eftirvinnu í stað
40%, og á aðeins 47% hærra
kaupi í næturvinnu í staö 80%.
Bónusinn var reiknaður af 20%
lægra kaupi heldur en lágmarks-
tímakaup í landinu má vera.
Enda þótt ekki fréttist mikið af
samningaviöræöum, heyrist þaö
þó aö í samningunum sé þaö
þungamiðjan aö leiörétta þaö
sem búiö er aö færa yfir fólk með
tvöföldu töxtunum.
Nú í þessari samningalotu á
þaö líka aö vera takmarkið aö
leiörétta bónusránið, ella munu
konurnar sjálfar í fiskiönaöi taka
málið í sínar hendur og leggja
bónuskerfið niöur, þar til það
verður leiörétt.
Nú nýlega hefur formaöur
Verkamannasambands íslands
Guðmundur J. Guðmundsson
skrifaö grein meö fyrirsögninni:
Bónusrániö. Og í þessari grein
viöurkennir hann opinberlega og
þaö er vel og heföi mátt vera fyrr,
ránskapinn í bónusnum og heitir
á fólk að leiðrétta þetta nú í hönd
farandi samningum. Hafðu heill
sagt þetta Guðmundur Joð.
Nú skulum viö stuttlega huga
aö uppbyggingu bónussins eins
og hann var upphaflega saminn
og samþykktur og sem er fyrri
hluti bónusránsins en hann er á
þá lund, aö til þess að tvöfalda
sig í launum þarf að þrefalda
sig í vinnu. Þetta hefur verið
nefnt línurániö í bónusnum. Eftir-
farandi tölur sýna hvernig launin
lækka miðað viö unnið magn.
Tölurnar eru gildandi taxtar í dag.
6 ára kaup.
Taxtak. Bónus Samt.
U100pk. 68.29 12.44 80.75
U200 pk. 68.29 49.78 118.07
U300 pk. 68.29 87.11 155.40
Ef aö greitt væri jafnmikið á pk.
upp aö 300 liti dæmiö svona út.
U100 pk. 80.75
U200 pk. 161.50
U300 pk. 242.50
Þannig lítur ránið út.
En þetta er ekki nóg. Síðan hef-
Akraneskirkja
Barnasamkoma kl. 10,30 á sunnudag.
Messa kl. 14.
Sóknarprestur
AKRANESKAUPSTAÐUR
TÆKNIDEILD
Breyting á
umferðarmerkjum
Esjubraut/lnnnesvegur
- Þjóðbraut
Umferðarmerkjum á gatnamótum Esju-
brautar/lnnnesvegar og Þjóðbrautar hefur
verið breytt, þannig að biðskylda hefur verið
sett á Þjóðbraut gagnvart Esjubraut/lnn-
nesvegi.
Vegfarendur eru hvattir til að sýna sérstaka
varkárni þarna.
Tæknideild Akraneskaupstaðar
ur verið fundiö upp ráö til aö ræna
meiru og þaö er gert meö því sem
kalla má taxtaránið, en þaö er gert
meö tvöföldu töxtunum og þá er
bónusinn greiddur með mikiö
lægra kaupi en lágmarkskaup í
landinu má vera.
En ef bónusinn væri greiddur
samkv. lágmarkskaupi í landinu
kr. 74.50 á tímann þá liti þaö
dæmi þannig út.
Tímak. Bónus Samt.
U100 pk. 74.50 14.90 89.40
U200 pk. 74.50 59.60 134.10
U300 pk. 74.50 104.30 178.80
Ef aö greitt væri jafnmikið á pk.
upp að 300 þá væri dæmið
svona.
U100 pk. 89.40
U200 pk. 178.80
U300 pk. 268.20
En nú er kona aö byrja aö vinna
og byrjar vitanlega á fyrsta árs
taxta kr. 60.71 á tímann. Hennar
dæmi væri bannig:
U100 pk. 60.71 12.44 73.15
U200 pk. 60.71 49.78 110.49
U300 pk. 60.71 87.11 147.82
Hún verður aö borga sjálfri sér
af bónusnum 13.79 á klst. til aö
ná lágmarkstekjutryggingunni kr.
74.50. Verður þannig sjálf meö
Eitt af frystihúsunum hér í bæ.
bónusnum aö fylla upp lágmarks-
tekjutrygginguna eins og kona sú
sem skrifar nýlega um þetta og
komst þannig skilmerkilega aö
orði: Aö viö erum látin greiða okk-
ar eigin laun, veröa sinn eigin at-
vinnurekandi. Hún verður sem
sé aö greiða sjálfri sér 13.79 á
tímann til aö ná því lægstatíma-
kaupi í dagvinnu sem nokkur má
vera meö í landinu.
Þetta geröist í síðustu samn-
ingum, auk þess sem yfirvinnu-
kaup var líka stórskert.
Þannig hafiö þið veriö leiknar
verkakonur og enginn leiöréttir
þetta nema þiö sjálfar og nú í
þessum samningum veröi tvö-
földu taxtarnir ekki lagöir niður,
eigiö þið góöan leik á boröi sem
dugar til aö lagfæra launahliö
bónussins en þaö er að leggja
bónusinn niður uns hann veröur
lagfæröurog leiðréttur.
Ef hægt er aö benda á aö fólk
fái gott kaup í bónusnum þá ber
aö athuga þaö, að það þýöir minni
launakostnaður á framleitt magn
af hendi atvinnurekanda eins og
dæmin bera meö sér.
Fellið burt tvöföldu taxtana.
Leiðréttið bónusrániö.
Ruslið fjarlægt
Rusliö sem íbúi viö Jaðarsbraut kvartaöi yfir í síðasta Bæjarblaði,
hefur nú verið fjarlægt. Þá hefur einnig veriö komiö fyrir fokgiröingum
viö Langasand og er með því reynt aö hindra sandfok, sem oft angrar
íbúa á Jaðarsbökkum.
Jazzballett
Bóru
-skóli
Líkomsrækt
Vegna mikillar eftirspurnar mun Jazzballettskóli Báru í fyrsta sinn
færa kennsluna út fyrir veggi skólans í Reykjavík.
Boðið verður upp á kennslu í jazzballett fyrir börn og unglinga og I ík-
amsrækt og megrun fyrir konur á öllum aldri.
Kennsla fer fram í Rein áfimmtudögum.
9 vikna námskeið frá 18. okt. -13. des.
Upplýsingar og innritun í síma 2520,11., 12 og 13. október.
Afhending skírteina í Rein sunnudaginn 14. októberfrá kl. 2-5.
Gjald.
kr. 1.350 jazz
kr. 1.500 líkamsrækt
Kennari: Bára Magnúsdóttir.