Bæjarblaðið - 22.11.1984, Síða 1
21. tbl. — 6. árg. — 22. nóvember 1984
Fréttablað Akurnesinga— Óháð pólitískum flokkadrætti
Sjónvarpsauglýsing Akraneskaupstaðar vekur athygli:
„Margir hafa haft samband"
— segir Ingimundur Sigurpálsson, bæjarstjóri
Auglýsingamynd Akranes-
kaupstaöar í sjónvarpinu, þar
sem vakin er athygli á Akranesi
sem heppilegum staö fyrir nýiön-
aö, hefur vakið mikla athygli bæði
meðal heimamanna og utan
Akraness. Viðhorf fólks til mynd-
arinnar virðist mjög jákvætt og
frumkvæði bæjaryfirvalda í þess-
um málum er lofað.
Ingimundur Sigurpálsson,
bæjarstjóri, sagði í samtali við
Bæjarblaðið að nú þegar hefðu
nokkuð margir aðilar haft sam-
band við sig og lýst ánægju sinni
með þetta. Þá hefðu forsvars-
menn fyrirtækja, sem hug hefðu
haft á að setja upp starfsemi utan
Akraness haft samband og hjá
þeim hefði t.d. komiðfram að þrátt
fyrir að þeir hefðu Ijósin á Akra-
nesi fyrir augunum daglega þá
hefði Arkanes aldrei komið þeim
til hugar í þessu sambandi.
„Menn hafa frekar haft Keflavík
og Selfoss í hugaog sennilegaer
vegurinn fyrir Hvalfjörð svo langur
í hugum manna að þeim hefur
þótt þetta fjarlægt. Svo þegar við
tengjum Akraborgina við þetta
núna þá kviknar Ijós hjá
mönnum," sagði Ingimundur.
Aðspurður um hvort hann væri
bjartsýnn á árangur af þessari
auglýsingu, sagði Ingimundur að
hann hefði nú aldrei reiknað með
því að þettafærði hingað fyrirtæki
bara strax, en aðal tilgangurinn
með svona auglýsingu væri að
byggja upp jákvæða ímynd,
þannig að þegar mönnum dytti
eitthvað í hug myndu þeir eftir
nafni Akraness og leiti þá hingað.
Þá sagðist Ingimundur hafa
orðið var við það á aðalfundi
Samtaka sveitarfélaga á Vestur-
landi um helgina og á fjármála-
ráðstefnu sveitarafélaga, sem
haldin var í Reykjavík á mánu-
dag, að ayglýsingin hefði vakið at-
hygli sveitarstjórnarmanna og
kannski það sem ekki væri minna
um vert að hún vekti áhuga og
bjartsýni hér heima.
Hús Hensons við Kalmansvelli. Koma fleiri fyrirtæki úr Reykjavík hingað í kjölfar auglýsingarinnar.