Fréttablaðið - 10.08.2019, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 10.08.2019, Blaðsíða 74
Í tilefni Hinsegin daga 2019 verður opnuð hinsegin myndlistar­sýning í Neskirkju í Reykjavík á sunnudaginn. Á sýningunni sem ber yfirskriftina „Regnbogabraut: Falin saga í 1200 ár“ verða kynnt verk eftir listamennina Logn Draum­ land, Viktoríu Guðnadóttur og Hrafnkel Sigurðsson. Skúli S. Ólafsson, sóknarprestur Nes­ kirkju, segir þema verka listamannanna byggja á regnbogaþræði sem er hinsegin leiðsögn á grunnsýningu Þjóðminja­ safnsins, „Þjóð verður til“, sem var opnuð haustið 2018. „Þar þótti skorta á sýnileika hinsegin fólks. Eini aug­ ljósi minnisvarðinn um tilvist hinsegin fólks var regnbogafáni sem að lokum var fenginn fastur samastaður á færiband­ inu sem er táknmynd þjóðarsögunnar síðustu 119 árin,“ segir Skúli. Niðurstaðan var samstarf Sjónlista­ ráðs Neskirkju og Þjóðminjasafnsins um að bjóða listafólki að vinna ný verk sem byggja á þemum í regnbogaþræð­ inum. Nýr meðlimur sjónlistaráðsins, Ynda Gestsson, átti frumkvæði að sýn­ ingunni. Tengir þjóðkirkjuna við hinsegin fólk Skúli segist afar spenntur fyrir sýn­ ingunni en þar er unnið út frá ýmsum stefjum sem tengjast baráttu hin­ segin fólks, eins og regnboganum, fordómum og þöggun. „Verkunum er ætlað að veita innsýn í reynsluheim og tilfinningar hinsegin fólks gagn­ vart valdastofnunum þjóðfélagsins ásamt því að fagna fjölbreytileika sköpunar og mannlífs,“ segir hann. Skúli segir listkynningarnar mikilvægar fyrir safnaðarstarfið. „Við getum lagt út af þeim verkum sem eru í sýningu hverju sinni. Ég er að vonast til að byggja betri tengingar þjóðkirkjunnar við hinsegin fólk,“ segir sóknarpresturinn. Hrafnkell: Myndeind frá Hubble Hrafnkell Sigurðsson sem lauk meist­ aranámi í myndlist á Englandi árið 2002 hefur sýnt verk sín bæði á Íslandi og erlendis. Verk hans eru í einka­ og opinberum söfnum víða um heim. Í verki Hrafnkels „Upplausn“ er varp­ að fram þeirri hugmynd hvort hægt sé að leysa upp veruleikann og mannlega tilveru. Hann velur myndeind úr ljós­ mynd sem tekin var með Hubble­geim­ sjónaukanum og hefur verið stækkuð upp að ystu mörkum. Þar tekur ímynd­ unaraflið við og til verður f lókinn raf­ textíll sem er vísir að stafrænu mál­ verki. Með því að horfa sífellt dýpra inn í myndina er áhorfandinn leiddur lengra en nokkur hefur komist áður: að innstu myndeindinni, að kjarna regnbogans, tákni hinseginleikans. Logn: Hinsegin feitir líkamar Logn Draumland lauk háskólanámi í myndlist á Englandi árið 2015. Hán hefur sýnt bæði á Englandi og Íslandi og eru verk háns í einkasöfnum í báðum löndunum. Einnig hefur Logn annast sýningarstjórnun hérlendis sem og á Englandi þar sem hán hefur unnið fyrir myndlistarsamvinnuhópinn „(Inspire) d Wo(me)n“ Verk Logns ber titilinn „Hinsegin feitir líkamar, staðfesting á tilvist“. Verkið segir sögu skammar í íslenskri menningu heiðni, kristni og ríkjandi hugmyndafræði hvers tíma. Í kynningu á sýningu segir: „Til að snúa dæminu við, ef la samtakamáttinn og valdef la þá valdalausu tef lir Logn fram líkömum sem tengjast órjúfanlegum böndum þegar þau geysast fram og útúr römm­ unum til að skila skömminni þangað sem hún á heima í samfélagi fordóma, of beldis og kúgunar.“ Viktoría: Þöggun Viktoría Guðnadóttir lauk meistara­ námi í myndlist í Hollandi árið 2002. Hún hefur sýnt bæði á Íslandi og í Hol­ landi og eru verk hennar í einkasöfnum í báðum löndunum. Í verkinu „Þöggun“ veltir Viktoría fyrir sér konu sem grafin er undir gleri í gólfi Þjóðminjasafnsins. Tengsl Vikt­ oríu við hina látnu konu byggjast á vangaveltum um kynhneigð hennar og samsömun kvenna á ólíkum tímum. Viktoría segir að fátt hafi veitt sam­ kynhneigðri konu skjól við upphaf Íslandsbyggðar. Söguheimildir sýna að kirkjulegum yfirvöldum hafi verið kunnugt um samkynja ástir. Í skrifta­ boðum Þorláks biskups frá 12. öld segir að það teljist synd ef „konur eigast við þangað til er þeim leysir girnd“. „Þessu flókna samspili þöggunar, kærleika og kúgunar kemur Viktoría á framfæri með djúpa samkennd að leiðarljósi án þess að ganga fram hjá sorg og sársauka,“ segir enn fremur í kynningu. Sýningin á Hinsegin myndlist í Nes­ kirkju, Reykjavík stendur frá sunnudegi 11. ágúst til loka októbermánaðar. david@frettabladid.is Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055. Viltu birta minningargrein á frettabladid.is? Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is. Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot Ég er að vonast til að byggja betri tengingar Þjóðkirkj - unnar við hinsegin fólk. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Sigurður Guðmundsson vélstjóri, Leirubakka 28, Reykjavík, lést á Droplaugarstöðum föstudaginn 2. ágúst. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 14. ágúst klukkan 13. Kristín María Westlund Herdís Dögg Sigurðardóttir Kristinn Johnsen Kristín Eva Sigurðardóttir Ingvar Pálmarsson og barnabörn. Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Magnús Sævar Magnússon, umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is Stofnað 1990 Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi Hinsegin list í Neskirkju Á sýningu sem ber yfirskriftina „Regnbogabraut: Falin saga í 1200 ár“ eru kynnt verk eftir listamennina Logn Draumland, Viktoríu Guðnadóttur og Hrafnkel Sigurðsson. Skúli S. Ólafsson, sóknarprestur Neskirkju, segir þema verkanna byggja á regnbogaþræði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 1 0 . Á G Ú S T 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 1 0 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :0 9 F B 0 9 6 s _ P 0 7 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 9 1 -0 C 8 8 2 3 9 1 -0 B 4 C 2 3 9 1 -0 A 1 0 2 3 9 1 -0 8 D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 9 6 s _ 9 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.