Fréttablaðið - 17.08.2019, Síða 32

Fréttablaðið - 17.08.2019, Síða 32
Í gegnum tíðina hefur Fritzges kennt mörgum hugleiðsluað-ferðir Demantsleiðarinnar og nýtur þess að sjá fólk þróa hæfni til að takast á við erfiðar aðstæður. Sjálf segist hún hafa verið villt, dramatísk ung kona áður en hún byrjaði að stunda hugleiðslu. „Ég sá aðra sem stunduðu hug- leiðslu og hélt að þeir væru í miklu betra jafnvægi en ég. Þess vegna væri þetta ekki fyrir mig. En svo heyrði ég um Demantsleiðina og að það væri hægt að nota erfiðar tilfinningar til að öðlast visku. Þá fannst mér að jafnvel ég ætti séns.“ Fritzges lærði hjá dönsku hjón- unum Hönnu og Lama Ole Nydahl sem gerðu það að lífsstarfi sínu að kenna aðferðir Demantsleiðar búddismans. Var villt og dramatísk „Ég lærði um hippafortíð þeirra og hugsaði að ef þau hefðu getað breyst og þróast svona fallega frá villtari tímum þá gæti ég kannski gert það sama. Þau kenndu mér að trúa á eigin getu til að þróast. Áður en ég byrjaði að hugleiða þá fannst mér aðstæður oft vera of þungar til að takast á við en eftir að ég byrjaði að stunda hugleiðslu varð ég hamingjusamari, rólegri og léttari í fasi. Ég varð virkari í lífinu. Í dag er ég sextug, fullhraust, vinn sem iðjuþjálfi, er með sex manns í vinnu, ferðast og held fyrirlestra. Án hugleiðslunnar gæti ég ekki gert allt þetta.“ Þegar Fritzges byrjaði að hug- leiða þurfti hún að sýna þolin- mæði gagnvart breytingum á lífi sínu. „Hugleiðslan snýst ekki um að verða fyrir einhverri svakalegri reynslu og sjá ljósið. Eftir eina hug- leiðslu þá gerist kannski ekki neitt. Þá halda kannski margir að þetta virki ekki og hætta.“ Fritzges segir að hugleiðslan sé langhlaup. Þá hjálpi að hafa fyrir- myndir sem hafa notið góðs af hugleiðslu eftir margra ára reynslu eins og hún hafði sjálf í Lama Ole og Hönnu. Hanna og Lama Ole kölluðu það að hugleiða að þjálfa hugar- vöðvana. „Þegar við stundum hugleiðslu reglulega þá verða erf- iðar aðstæður draumkenndari og óraunverulegri,“ þess vegna verður auðveldara að takast á við þær, segir Fritzges. „Maður verður með- vitaðri um sig sjálfan. Með hug- leiðslunni öðlast maður aukaþrep á milli aðstæðna og viðbragða svo maður getur valið betur hvernig maður ætlar að bregðast við.“ Ekki trúarbrögð Fritzges segir að það sé misskiln- ingur að búddismi séu trúarbrögð eins og við skiljum þau. Það væri kannski hægt að segja að búdd- ismi séu trúabrögð sem byggja á reynslu frekar en trú. „Ef maður trúir á ytri guð þarf maður að sanna að sá guð sé betri en einhver annar.“ Hugleiðsluaðferð Demants- leiðarinnar snýst því ekki um að sú leið sé betri en aðrar leiðir á borð við núvitund, innhverfa íhugun eða aðrar hugleiðsluaðferðir innan búddismans. „Það má líkja hug- leiðslu við lyf við mismunandi sjúkdómum. Fólk þarf mismun- andi lyf. Þess vegna förum við ekki í trúboð, við höldum ekki einu sinni að allir ættu að stunda þessa tegund af hugleiðslu. Hún er ekki rétta leiðin fyrir alla.“ Fritzges leggur áherslu á að þegar fólk er að byrja að hugleiða verði það að velja sér aðferð og standa við hana. „Ég hef séð fólk blanda saman mörgum aðferðum. Það er bara ruglandi. Í dag er upp- lýsingaflóð í heiminum, sem gerir það að verkum að margir klóra bara í yfirborðið á mismunandi aðferðum en þróast ekki í neinum þeirra.“ Fritzges mælir ekki með því að fólk sem á við alvarlega geðkvilla að stríða og þarfnast sálfræði- og lyfjameðferðar hætti í slíkri með- ferð og hugleiði bara í staðinn. „Slík mál hafa komið upp en hugleiðsluaðferðir búddismans byrja þar sem læknirinn stoppar. Ef maður á við alvarlegan geð- rænan vanda að stríða þá eru hugleiðsluaðferðir búddismans kannski ekki bestar fyrir mann, frekar þá núvitund og aðra leiðir til að öðlast hugarró, að sjálfsögðu samhliða sjálfri meðferðinni við geðkvillanum.“ Opin fyrir hugleiðslu Tilgangur búddismans er ekki að yfirtaka önnur trúarbrögð, að sögn Fritzges. „Það eru til mis- munandi trúarbrögð vegna þess að fólk getur iðkað trú eftir mis- munandi leiðum.“ Hún segist hafa fundið fyrir því að Íslendingar séu opnir fyrir því að hugleiða, en árið 2015 kom Fritzges til lands- ins og hélt fyrirlestur í Háskóla Íslands. „Fyrirlesturinn fjallaði um dauðann og endurfæðingu frá sjónarhorni búddismans. Það kom mér á óvart hversu opið fólk var fyrir þessum hugmyndum.“ Þeir sem þekkja eitthvað til hugleiðsluaðferða búddismans vita að þær snúast um að frelsa sig frá egóinu. Þannig losnar mannkynið undan hinni jarðlegu þjáningu samkvæmt kenningunni. „Hugmyndin er að það séu engar tilviljanir til. Þeir atburðir sem við verðum fyrir eru ekki eitthvað sem er skapað af ytri aðstæðum heldur erum það við sjálf sem sköpum okkar eigin veruleika.“ Þarf ekki að vera í klaustri Búdda sagði að hugurinn væri endalaus og þess vegna væru mörk milli eins hugar og annars ekki til. „Því er ást milli manna náttúru- legt ástand.“ Samkvæmt Fritzges gerir egóið það að verkum að við bregðumst við út frá tilfinningum okkar hverju sinni. „Það kemur í veg fyrir að við getum notið nátt- úru eigin huga.“ Hugleiðsluaðferð Demants- leiðarinnar lýsir sér þannig að hugleitt er á Búdda sem ljósorku. „Ekki sem eitthvað ytra, heldur sem spegil fyrir okkar eigin eigin- leika. Þessi leið gerir okkur kleift að komast í snertingu við okkar innri Búddanáttúru. Við erum öll Búdda nú þegar. Þegar við skiljum það byrjum við að horfa frekar á kosti fólks í staðinn fyrir galla, við komumst á hæsta stig heims- sýnarinnar í daglegu lífi á milli þess að við hugleiðum. Til að hug- leiða þarftu ekki að fara inn í helli eða klaustur í áratug, það eina sem maður þarf að gera er að setjast á púða í hálftíma og hugleiða á Búdda. Hágæða hamingja Flestir leita að hamingjunni í forgengilegum hlutum. Fólk er að hlaupa á eftir frægðinni, ríkidæmi, fullkomnum maka eða ferða- lögum. Á endanum kemst fólk að því að slík hamingja er kannski frábær á meðan hún endist en lífið er alltaf að breytast. Þegar við reiðum okkur á ytri aðstæður, einhvers konar nútíma- hamingju, þá öðlumst við verri gæði af hamingju en þá hamingju sem við getum fundið í eigin hugartómi. Hamingjan sem við leitum að er miklu nær okkur en við höldum. Við finnum hana í okkur sjálfum. En til að komast í snertingu við hana þarf fólk að vera opið og það þarf að hugleiða.“ Fólk sem stundar Demantsleið búddismans hér á Íslandi kemur hvaðanæva úr heiminum og hefur aðsetur í fallegu húsi í Foldahverf- inu. Lama Ole kom hingað sjálfur fyrir mörgum árum og Fritzges segir að hann hafi verið dolfallinn yfir landinu. Hann ætlar að koma aftur í heimsókn á næsta ári. Allir eru Búdda Michaela Fritzges frá Þýskalandi hefur stundað Demants- leið (Vajrayana) búddismans í 35 ár og kennir öðrum. Í dag er Fritzges 60 ára gömul, fílhraust og ferðast um allan heim. Sólrún Freyja Sen solrunfreyja@frettabladid.is Trönuhrauni 8, 220 Hafnarrrði | www.stod.is CEP hágæða íþróttasokkar með þrýstingi. • Auka blóððæði og súrefnisupptöku. • Styðja við vöðva og liðamót. • Hraða endurheimt. • Draga úr líkum á meiðslum. Henta vel í • Hjólreiðar • Hlaup • Íþróttir • Útivist Bólstrun á álagssvæðum ver fætur og eykur endingu. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 1 7 -0 8 -2 0 1 9 0 4 :4 7 F B 0 9 6 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 9 9 -E B C 8 2 3 9 9 -E A 8 C 2 3 9 9 -E 9 5 0 2 3 9 9 -E 8 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 9 6 s _ 1 6 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.