Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Blaðsíða 1

Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Blaðsíða 1
FRÉTTIR Vestmannaeyjum 17. apríl 2013 40. árg. :: 16. tbl. Verð kr. 400 Sími 481-1300 www.eyjafrettir.isE Y JA >> 11 M yn d: Ó sk ar P ét ur F ri ðr ik ss on Óhemju fiskirí hefur verið undanfarið og er fiskur á stóru svæði á grunnslóð. Dæmi eru um að skip hafi fyllt sig á tæpum sólarhring. Hér er áhöfnin á Vestmannaey VE að taka inn stórt hol, 12 til 14 tonn sem fékkst eftir stutt tog. Ársreikningur Vestmannaeyjabæjar og stofnana fyrir árið 2012: Eigið fé í árslok nam 4,95 milljörðum króna :: Rekstrarniðurstaða jákvæð um 530,3 milljónir :: Áætlun var 73,5 milljónir Ársreikningar Vestmannaeyjabæjar og stofnana hans fyrir árið 2012 voru lagðir fram á fundi bæjarráðs á mánudag og samdægurs sam þykktir til seinni umræðu í bæjar stjórn. Rekstrartekjur á árinu námu um 4.267,6 millj. kr. samkvæmt saman- teknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 3.380,3 millj. kr. Rekstrartekjur A-hluta námu um 3.240,5 millj. kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 2.534,2 millj. kr. Álagningarhlutfall útsvars var 14,48% sem er lögbundið hámark þess. Álagningarhlutfall fast - eigna skatts nam 0,42% vegna íbúðar - húsnæðis og 1,55% vegna atvinnu - húsnæðis en lögbundið hámark þess er 0,625% og 1,65%. Þetta kom fram í máli Elliða Vignis- sonar, bæjarstjóra, þegar hann lagði reikninga fram til fyrri umræðu í bæjar stjórn á mánudaginn. Rekstr ar - niðurstaða sveitarfélagsins sam kvæmt samanteknum rekstrar reikn ingi A og B hluta var jákvæð um 530,3 milljónir króna en samkvæmt fjár hagsáætlun var gert ráð fyrir um 73,5 millj. kr. jákvæðri afkomu. Rekstrarafkoma A hluta var jákvæð að fjárhæð 456,4 millj. kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir jákvæðri afkomu um 116,5 millj. kr. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok nam 4,95 milljörðum kr. sam kvæmt efnahagsreikningi, en þar af nam eigið fé A hluta 5 milljörðum króna. Laun og launatengd gjöld sveitar- félagsins námu um 1.716,3 milljónum króna en starfsmannafjöldi var 294 stöðugildi í árslok. Íbúafjöldi í Vest- mannaeyjabæ 1. desember 2012 var 4.221 og hafði fjölgað um 27 frá fyrra ári. Svigrúm til að auka þjónustu Jórunn Einarsdóttir, oddviti V-listans í bæjarstjórn, segir reikninga bæjarins og stofnana 2012 sýna glæsilegan árangur. „Það sýnir okkur líka að það er svigrúm til að auka þjónustuna,“ sagði Jórunn sem tók fram að hún hefði ekki setið síðasta bæjarstjórnar- fund. „Til dæmis er tækifæri til að hífa okkur upp af botninum í framlögum til fræðslu- og uppeldismála sem eru okkur hjá V-listanum mjög hugleikin. Við þurfum að efla þjónustu við for - eldra yngstu barnanna. Það er líka óþolandi að á meðan bærinn er að skila þetta góðum árangri að þá þurfi stöðugt að bölsótast út í ríkisstjórnina. Það skýtur skökku við,“ sagði Jórunn Einarsdóttir. ÓMAR GARÐARSSON omar@eyjafrettir. is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.