Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Síða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Síða 4
° °4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 17. apríl 2013 Kirkjur bæjarins: Landakirkja Fimmtudagur 18. apríl: Kl. 10. Mömmumorgun í Safnaðar - heimilinu. Kl. 11-12. Viðtalstímar presta alla virka daga. Vaktsími 488 1508. Kl. 20. Æfing Kórs Landakirkju. Kitty Kovács. Kl. 20. Opið hús í KFUM&K heim- ilinu hjá Æskulýðsfélagi Landa - kirkju. Gísli Stefánsson. Föstudagur 19. apríl: Kl. 13.30. Æfing Litlir lærisveinar. Kitty. Kl. 17. Æfing fyrir ferminguna 20. apríl. Kl. 18. Æfing fyrir ferminguna 21. apríl. Laugardagur 20. apríl: Kl. 11. Fermingarmessa. Nöfn fermingarbarna eru á landakirkja.is, undir Fermingarfræðsla. Kór Landa kirkju. Organisti Kitty Kovács. Prestar sr. Guðmundur Örn Jónsson og sr. Kristján Björnsson. Kl. 15. Útför. Ingunn Sigríður Júlíusdóttir. Kl. 20. Tónleikar Barnakórs Selja - kirkju og Unglingakórs Hafnar - fjarðarkirkju, auk Litlu lærisvein - anna. Stjórnendur og undirleikarar eru Helga Loftsdóttir, Rósalind Gísladóttir, Anna Magnúsdóttir og Kitty Kovács. Sunnudagur 21. apríl: Kl. 11. Fermingarmessa. Allir velkomnir. Nöfn fermingarbarna eru á landakirkja.is, undir Ferm - ingarfræðsla. Kór Landakirkju. Organisti Kitty Kovács. Prestar sr. Kristján Björnsson og sr. Guð- mundur Örn Jónsson. Kl. 11. Barnasamvera í Safnaðar - heimilinu á sama tíma og ferm - ingarmessan. Söngur, föndur og leikur. Barna - fræðararnir. Kl. 14. Guðsþjónusta á Hraun- búðum. Kór Landakirkju, Kitty Kovács og sr. Kristján Björnsson. Allir velkomnir. Kl. 20. Fundur í Æskulýðsfélagi Landakirkju. Gísli Stefánsson. Mánudagur 22. apríl: Kl. 17. Kirkjustarf fatlaðra. Æfing fyrir Vorhátíðina 28. apríl. Kl. 19.30. Tólf spora andlegt ferðalag. Vinir í bata. Þriðjudagur 23. apríl: Kl. 14.30. ETT kirkjust. 11-12 ára. Kl. 20. Kristið líf og vitnisburður. Miðvikudagur 24. apríl, síðasti vetrardagur: Kl. 14.30. NTT kirkjustarf 9-10 ára. Kl. 15.30. STÁ kirkjustarf 6-8 ára. Kl. 20. Lúðrasveitartónleikar í Safnaðarheimilinu. Aðvent- kirkjan Laugardagur 20. apríl 2013 Drottinn segir: Óttast þú eigi, ég hjálpa þér. Kvennamót á Hlíðardalsskóla um helgina. Ég vil byrja á því að þakka honum Jens fyrir skemmtilega áskorun. Ég er hérna með alveg rosalega gómsætan kjúklingarétt til þess að deila með ykkur. Hráefni: 3 kjúklingabringur 2 msk. olía af sólþurrkuðum tómötum Sítrónupipar og salt Hráefni: Gums: 1 saxaður laukur 6-8 sneiddir sveppir 2 sneiddar gulrætur 4-6 sólþurrkaðir tómatar eða eftir smekk 1 stór teningur kjötkraftur (varist MSG) 1 dós rjómaostur m/sólþurrkuðum tómötum 1/2 peli rjómi Timian (ferskt eða þurrkrydd) Aðferð: Kjúklingabringurnar eru kryddaðar með salti og sítrónupipar og því næst steiktar í olíunni af sólþurrk - uðu tómötunum. Bringurnar eru að því loknu settar í eldfast mót. Aðferð: Gumsið: Gumsið er látið krauma aðeins á pönnu og hellt yfir kjúklinginn og sett í ofn í ca. 30 mínútur við 200°C. Hafið álpappír yfir. Ég ætla að skora á hann Benoný Þórisson sem matgæðing næstu viku, hann er alltaf að segja manni frá frábærum réttum sem hann hefur verið að búa til og svoleiðis. Eyjamenn gætu virki- lega lært mikið af þessum mikla matgæðingi. Matgæðingur vikunnar er Hafliði Sigurðarson Matgæðingur vikunnar: Gómsætur kjúklingaréttur Páll Pálmason gerði sér lítið fyrir og varð Íslandsmeistari í snóker í flokki 67 ára og eldri á dögunum. Páll varð þar með fyrsti Eyja- maðurinn til að verða Íslands - meistari í þessari ágætu íþrótt sem hann hefur stundað í nærri hálfa öld. Páll er því vel að því kominn að vera Eyjamaður vik - unnar að þessu sinni. Nafn: Páll Pálmason. Fæðingardagur: 11. ágúst 1945. Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar. Fjölskylda: Eiginkonan er Guðrún K. Guðjónsdóttir og við eigum saman þrjú börn, Hörð, Grétar og Stefaníu. Draumabíllinn: Ford Escape sem ég á í dag. Það er besti bíll sem ég hef átt og hef átt þá nokkra ameríska en þessi er toppurinn. Uppáhaldsmatur: Mér finnst gamla lambalærið best. Það klikkar aldrei. Versti matur: Ég er svo agalega lystugur maður en hef aldrei getað vanist því að borða siginn fisk. Uppáhalds vefsíða: Íþróttasíðurnar eins og þær leggja sig. Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Ég er alæta á tónlist. Segjum bara Bítlarnir, þeir voru og eru í toppsætinu hjá mér. Aðaláhugamál: Íþróttir á öllum sviðum. Alveg saman hvar er drepið niður í þeim efnum. Hvaða mann/konu myndir þú vilja hitta úr mannkynssögunni: Ég hitti Gordon Banks á sínum tíma og það væri gaman að bæta við Lev Yashin, rússneska markverðinum. Fallegasti staður sem þú hefur komið á: Það er víða fallegt. Ég hef farið víða um heiminn en það er ekkert sem toppar Vestmannaeyjar. Uppáhalds íþróttamaður og íþróttafélag: Liverpool og Kenny Dalglish. Ertu hjátrúarfullur: Ekki mikið en eru ekki allir íþróttamenn hjátrúarfullir upp að vissu marki þótt sumir eigi það til að missa sig í því? Stundar þú einhverja hreyfingu: Ég labba reglulega, fer á morgnana inn í Eimskipshöll. Uppáhaldssjónvarpsefni: Íþróttir. Hvað ertu búinn að spila snóker lengi: Ég byrjaði á Mjólkurbarnum en er ekki klár á því hvaða ár það var, líklega um 1964 eða 65. Þar var eitt borð og svo annað í Vosbúð en þar var gaskynding sem þurfti að kveikja á, áður en byrjað var að spila. Það hefur varla farið vel með snókerborðið að vera þar inni í frostinu yfir vetrartímann. Hefurðu spilað mikið á mótum í Reykjavík: Ekki neitt, ekki fyrr en núna í vetur. Fór reyndar einu sinni með feðgunum Eðvarði og Matt - híasi í bæjakeppni gegn Keflavík fyrir nokkrum árum sem við unnum eftir jafna keppni. Ég spilaði líka í Kiwanismóti einu sinni í Reykjavík en svo er ég alltaf á leiðinni á Heimsmeistaramótið í Sheffield. Hvað þarf til að vera góður í snóker: Ég held að það sé hugar- farið. Það er stærsti þátturinn í þessu. Menn þurfa að vera í jafn- vægi og það í langan tíma. Ætlarðu að verja titilinn á næsta ári: Það veit maður aldrei. Jú, jú alveg eins. Eitthvað að lokum: Ég hefði vilj - að fá fleiri unga menn í snókerinn. Mér finnst allt of fáir vera að taka við enda erum við öldungarnir í efstu sætunum í þessum mótum. En auðvitað spilar það inn í að nú er engin opin snókerstofa í bænum og því vantar aðstöðu fyrir þá sem eru ekki í klúbbunum sem eiga sín eigin borð. Matgæðingur vikunnar er Páll Pálmason Eyjamaður vikunnar: Vill fá fleiri unga menn í snókerinn Mest lesið á eyjafrettir.is í síðustu viku 09.04.2013 kl.10:38 Jóhann og Guðný hætta í stjórn ÍBV 10.04.2013 kl.13:51 Sérstök framsetning hjá Páli og Stefáni 09.04.2013 kl.15:29 Ágreiningur um þjóðhátíð en ekki deildir 09.04.2013 kl.16:30 David James reynir að sannfæra Phil Neville um að koma í ÍBV  EYJAFRÉTTIR.IS - v e r t u m e ð á n ó t u n u m ! Börn og brúðhjón Fréttir vilja eindregið hvetja brúð hjón til að senda inn mynd til birtingar og eins for eldra nýrra Eyjamanna. Myndir og upplýsingar sendist á frettir@eyjafrettir.is Ný gift Ingi Þór Arnarsson og Kristín Tryggvadóttir giftu sig 28. mars 2013 í Landakirkju. Þau langar að þakka öllum sem gerðu daginn þeirra full - kominn í alla staði :) Lóan er komin Jóhann Guðjónsson, fyrrum skip- stjóri og útgerðarmaður á Þristi VE og starfsmaður á grafskipinu Vest- mannaey í nokkur ár, er mikill nátt - úrunnandi og eru það ekki síst fuglar sem eru honum hugleiknir. Hann snaraðist inn á ritstjórn Eyjafrétta í gær og sagði að lóan væri komin. Hann hefði séð til hennar suður á Breiðabakka. „Ég veit að mörgum þykir vænt um lóuna og þeir gleðjast þegar hún kemur á vorin. Hún er á réttum tíma eins og tjaldurinn sem kom 13. mars,“ sagði Jóhann. Eykyndill gefur til Hraunbúða Á undanförnum árum hefur Slysavarnafélagið Eykyndill fært dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum alls 12 rafmagnsrúm með dýnum og tilheyrandi að verð - mæti 5 milljónir króna. Fjölskyldu- og tómstundaráð færir félaginu kærar þakkir fyrir sýndan hlýhug til Hraunbúða.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.