Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Blaðsíða 6
° °6 Eyjafréttir / Miðvikudagur 17. apríl 2013 Samtök sveitarfélaga á Suður- landi (SASS) héldu í síðustu viku kynn ingarfund þar sem sagt var frá starfseminni og styrkjum sem veittir eru til hinna ýmsu verk efna. Einnig var kynntur til sögunnar nýr starfsmaður SASS í Vestmanna eyjum, Finnbogi Al- freðsson, rekst rar hagfræðingur. Fundurinn, sem haldinn var hjá Einsa kalda, var um margt athyglisverður en mæting léleg og létu bæjarfulltrúar ekki sjá sig fyrr en að loknum bæjar- ráðsfundi sem haldinn var á sama tíma. Þorvarður Hjaltason, fram - kvæmda stjóri SASS, sagði að samtökunum væri ætlað að þjóna Suðurlandi öllu. Þó að Eyjamenn hefðu litla trú á að nýr samningur um Sóknaráætlun Suðurlands og álitu að hann væri sniðinn fyrir Selfoss og nágrenni, væri það hinn mesti misskilningur. Til dæmis hefðu Hornfirðingar sýnt samn - ing num mikinn áhuga. Hann hvatti Eyja menn til að kynna sér styrki sem í boði eru til eflingar atvinnu - lífs og nýsköpunar. SASS er með höfuðstöðvar á Sel - fossi og starfsmenn í Vestmanna - eyjum og á Hornafirði. Atvinnu - þróunar félag Suðurlands var lagt niður um sl. áramót og starfsemi þess yfirtekin af SASS. Þrír af fjórum starfsmönnum Atvinnu - þróunar félags ins sögðu upp sínum störfum í kjölfar þessara breytinga. Finnbogi Alfreðsson tekur við af Hrafni Í samræmi við stefnumarkandi ákvörðun stjórnar SASS, um að setja miklu meiri kraft í atvinnu- og nýsköpunarmál á starfssvæðinu, hafa verið ráðnir þrír nýir atvinnu - ráð gjafar til starfa og einnig opnað útibú SASS á Höfn í Hornafirði. Í Vestmannaeyjum starfaði Hrafn Sævaldsson á vegum Atvinnuþró - unar félagsins. Hann hætti störfum um áramótin en í hans stað er kominn Finnbogi Alfreðsson rekstrarhag fræðingur. Finnbogi hefur víðtæka reynslu sem rekstrar- og atvinnu þróunarráðgjafi og framkvæmda stjóri. Hann var meðal annars fram - kvæmda stjóri Fiskimjöls og Lýsis hf. í Grindavík frá 1990 til 1998, eða þar til það félag sameinaðist Samherja h.f. á Akureyri þar sem hann sat í fyrstu stjórn þess er það félag fór á hlutabréfamarkaðinn. Finnbogi hefur einnig reynslu úr rekstri iðnfyrirtækja, sem fram - kvæmdastjóri, eigandi og stjórnar- maður. Hann starfaði hjá Alþjóða - bankanum í Washington um tveggja ára skeið, 2009-2011, við ákveðna deild sem sinnti sjávarútvegi í þró - unarlöndum. Hann var þar fulltrúi Íslands, sem studdi sérstaklega við þá verkefna áætlun. Með víðtæka menntun Finnbogi er menntaður rekstrar - hagfræðingur frá Bandaríkjunum 1984 og hefur síðan lokið masters - námi í rekstrarhagfræði frá Edin- borgarháskóla í Skotlandi og verk efna stjórnun frá Háskóla Ís- lands. Finnbogi hefur aðsetur í Þekking - ar setrinu, Strandvegi 50. Tilgangur skrifstofu SASS hér í Eyjum, og annarsstaðar, er að vinna að atvinnu- og nýsköpunarmálum með fyrir tækjum, einstaklingum og Vest - manna eyjabæ með samstarfi og samtali á öllum sviðum framþró - unar og aukinnar verðmætasköp - unar. Að sögn Finnboga er það eindreginn ásetningur stjórnar SASS að bjóða gæðaþjónustu á sviði atvinnuþróunar á starfs svæð - inu, gera hana sýnilegri, óformlegri og miklu virkari í amstri hvers- dagsins. „Við viljum ná til fyrir - tækjanna, frumkvöðlanna, virkra og óvirkra og sveitarfélaganna og láta gott af okkur leiða í allra þágu. Það er von okkar að menn taki okkur vel og séu tilbúnir í uppbyggilegt samstarf við okkur og aðra,“ sagði Finnbogi. Vaxtarsamningur og Sóknaráætlun SASS hefur umsjón með fram - kvæmd Vaxtarsamnings og Sóknar - áætlunar Suðurlands í umboði ríkisins. Einn liður í því starfi er að veita styrki til þeirra mála og verkefna sem stuðlað geta að auknum hagvexti í landshlutanum eins og eflingu frumkvöðlastarfs, menntunar og vísindarannsókna og atvinnuþróunar og nýsköpunar. Nú er opið fyrir styrkumsóknir til úthlutunar í maí næstkomandi. Allir þeir sem telja sig hafa hug - myndir og verkefni til framþróunar geta fengið aðstoð hjá Finnboga við að meta þær og fá aðstoð við gerð styrkumsóknar. Áhugaverðir styrkir Núna auglýsir SASS eftir um- sóknum um styrkitil eflingar atvin- nulífs og nýsköpunar á Suðurlandi. Til úthlut unar eru 30 milljónir króna á fyrri hluta ársins. Þeir sem telja sig vera með verkefni sem stuðlað geta að eflingu atvinnulífs og nýsköpunar á Suðurlandi geta sótt um. Þær forsendur sem lagt er upp með eru vöruþróun og nýsköpun, einkum í matvælaiðnaði og fer- ðaþjónustu. Markaðssetning fer- ðaþjónustu utan háannar. Grænmetisframleiðsla; fram leiðslu- og vöruþróun, mark- aðs setning og sala. Markaðssókn fyrir vörur og þjónustu á nýja markaði. Fjármög- nun verkefnastjórnunar í stærri rannsóknar- og þróunarverkefnum á Suðurlandi. Klasa og uppbygging þeirra. Tíma bundin ráðning starfs- manna með sérþekkingu til að hag- nýta mögu leika fyrirtækis til vaxtar. Verkefni þar sem fyrirtæki og stof- nanir vinna saman að rannsóknum, þróun og fræðslu njóta forgangs til 2/3 hlutar ofangreinds fjármagns. Umsækj endum er því bent á að leita eftir samstarfsaðilum. Ofangreindar áherslur eða samstarf fyrirtækja eru því ekki skilyrði fyrir styrkveitingu. Mótframlag verkefnis þarf að vera að lágmarki 50%. Ekki er veittur styrkur til fjárfestinga. Horft er til þess að verkefnið leiði til varanlegs ábata fyrir samfélagið. U msækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa SASS og þiggja aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að hafa samband í síma 480-8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið sass@sass.is. SASS með kynningarfund:: Eyjamenn hvattir til að kynna sér styrki sem í boði eru :: Ætlaðir til eflingar atvinnulífs og nýsköpunar :: Nýr atvinnuráðgjafi í Eyjum Verslun Miðstöðvarinnar hefur fengið andlitslyftingu. Nú er þar að finna flott sýningarrými þar sem finna má allt í baðherbergið. „Við erum í raun og veru búin að breyta allri búðinni. Við settum upp fjóra sýningarbása við vesturvegg versl - unarinnar þar sem fólk getur séð og handleikið baðherbergisvörurnar,“ útskýrði Dagný Helga Eckard en hún og Björgvin Hallgrímsson, starfs- menn Miðstöðvarinnar, hafa unnið að breytingunum. „Við byrjuðum strax eftir áramót að vinna að þessu og höfum stækkað baðherbergis- og gólfefnadeildirnar. Við erum áfram með myndarlega málningardeild og fulla verslun af góðum vörum á góðu verði,“ bætti Björgvin við. Dagný og Björgvin fyrir framan nýju sýningarbásana sem má finna í verslun Miðstöðvarinnar við Strandveg. Miðstöðin fékk andlitslyftingu Frá fundi SASS í síðustu viku. Fjölskyldu- og tóm- stundaráð: Styrkir sumar nám - skeið Óðins Á fundi fjölskyldu- og tóm stunda - ráðs var tekin fyrir umsókn frá Ung- mennafélaginu Óðni um stuðning Vestmannaeyjabæjar vegna leikja - námskeiða sumarið 2013. Umsóknin var tekin fyrir í ráðinu 10. mars og var samþykkt að auglýsa eftir aðilum sem áhuga hafa á því að halda sumarnámskeið fyrir börn á aldrinum 5 til 10 ára sumarið í sumar. Einungis Ungmennafélagið Óðinn sótti um styrk til Vestmanna - eyjabæjar og uppfyllir skilyrði ráðs - ins. Var samþykkt að veita félaginu fjárhagsstyrk. Verður greiðslan tví - skipt og síðari hluti hennar háður því að skýrslu sé skilað til nefndarinnar að loknu námskeiði. Ráðið fól fram - kvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðslu sviðs að afgreiða önnur atriði sem koma fram í erindi Ungmenna - félagsins Óðins s.s. útvegun á starfs- mönnum frá vinnuskólanum og afnot af sölum hjá bænum. Umhverfis- og skipu- lagsráð: Sótt um þrjár einbýlishúsa - lóðir Umhverfis- og skipulagsráð fundaði í síðustu viku þar sem lágu fyrir tíu erindi, m.a. er sótt um nokkrar bygg - ingalóðir. Stærsta framkvæmdin er fjölbýlishús sem á að rísa við Miðstræti. Sótt er um þrjár bygg - inga lóðir og aðrir ætla í minni háttar breytingar. Fyrsta mál á dagskránni var umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishús að Miðstræti 20. Það var Magnús Sigurðsson, f.h. Steina og Olla bygg - ingaverktaka ehf. sem sótti um byggingarleyfið. Ráðið samþykkti erindið þar sem uppdrættir eru í samræmi við bygg - ingarreglugerð og deiliskipulag lóðar. Brynjólfur Páll Schram sótti um tvær byggingarlóðir við Vest- mannabraut, aðra á lóðinni númer 46b og hina á lóð númer 61. Ráðið samþykkti að úthluta lóðunum til Brynjólfs og skal hann skila inn full- nægjandi teikningum fyrir 15. sept - ember nk. Sigurjón Ingvarsson, byggingaverk- taki og skipstjóri, sótti um bygg - ingarlóð að Austurvegi 3. Umsóknin var samþykkt og skal Sigurjón skila fullnægjandi teikningum fyrir 15. september. Páll Zóphóníasson, f.h. Eim- skipafélags Íslands hf., sótti um leyfi fyrir breytingum á húsnæði félagsins við Friðarhöfn sem var samþykkt. Björgvin Þór Björgvinsson sótti um leyfi fyrir svalahurð á vesturhlið hússins númer 23 við Bröttugötu sem var samþykkt. Guðmundur Hug- inn Guðmundsson, Höfðavegi 43c sótti um leyfi fyrir útlitsbreytingu á íbúðarhúsnæði, stoðveggjum og sól- palli sem var samþykkt. Jórunn Einarsdóttir, Áshamri 56 sótti um leyfi fyrir útlitsbreytingu á bíl - geymslu sem einnig var samþykkt. Viðar Elíasson sótti um endurnýjun á byggingarleyfi fyrir húsnæði fyrir - tækis síns við Eiði 2. Fyrir lágu samþykktar teikningar og var erindið samþykkt. Loks var það umsókn um tíma - bundið leyfi fyrir tjaldi á Stakka - gerðistúni þann 26. apríl nk. Það var Hlynur Ólafsson f.h. Eyverja f.u.s. í Vestmannaeyjum sem sótti um leyf - ið. Ráðið samþykkti tímabundið leyfi fyrir tjaldi á Stakkagerðistúni þann 26. apríl nk. Ráðið leggur áherslu á góða umgengni og áskilur sér rétt til að láta þrífa túnið á kostn - að umsóknaraðila ef þörf krefur. ÓMAR GARÐARSSON omar@eyjafrettir. is Þær forsendur sem lagt er upp með eru vöruþróun og ný sköp un, einkum í matvælaiðnaði og ferða - þjónustu. Markaðssetning ferðaþjónustu utan háannar. Grænmetisframleiðsla; framleiðslu- og vöruþróun, markaðs setning og sala. Markaðssókn fyrir vörur og þjón ustu á nýja markaði. Fjármögn - un verkefnastjórnunar í stærri rannsóknar- og þróunarverkefnum á Suðurlandi. Klasar og upp- bygging þeirra. ”

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.