Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Page 8
°
°8 Eyjafréttir / Miðvikudagur 17. apríl 2013
Björt framtíð mætti með breiðfylkingu til Eyja:
Kalla eftir meiri sátt
:: Segja að á Íslandi sé hver sáttarhöndin upp á móti annarri.
Það er með frambjóðendur í
alþingis kosningunum eins og
far fuglana, þeir flykkjast til
Vestmanna eyja þessa dagana.
Það eru líka margir um hituna
því ekki færri en 11 listar eru í
boði fyrir kjósendur í Suður -
kjördæmi. Breiðfylking Bjartrar
framtíðar fór um bæinn á
mánudaginn og heilsaði upp á
fólk þar sem Guðmundur Stein-
grímsson, Heiða Kristín Helga -
dóttir og Róbert Marshall voru í
broddi fylkingar ásamt fram -
bjóðendum flokksins í Suður -
kjördæmi þar sem Vestmanna -
eyingurinn Jóhanna Ýr Jóns -
dóttir, sagnfræðingur, er í 5. sæti.
Þau efndu til fundar í Vinaminni þar
sem voru mættir um 20 manns til að
hlýða á boðskapinn. Segja má um
Bjarta framtíð að þar sé sleginn
friðsælli tónn en oft áður í ísl enskri
pólitík. Það á reyndar við um gamla
fjórflokkinn líka þar sem fram -
setningin hefur mildast með nýju
fólki í brúnni.
Í kynningarbæklingi kallar Björt
framtíð eftir meiri sátt, segir að á
Íslandi sé hver sáttarhöndin upp á
móti annarri. Guðmundur spjallaði
við gesti þessum anda og sagði þau
ekki fara fram með stóran loforða -
lista en segja að fjölbreytt og frjálst
samfélag sé gott samfélag.
Björt framtíð vill halda áfram að
byggja upp skapandi greinar, græn -
an iðnað, tækni- og hugverkageir -
ann, ferðaþjónustu, rannsóknir og
þróun, eins og Björt framtíð hefur
haft frumkvæði að. Opna meira
fyrir fjölbreytileg rekstrar- og
þjónustuform í velferðarkerfinu og
ólíka skólastarfsemi, fá inn nýjar
hugmyndir svo fólk hafi meira val,
sem sé gott fyrir alla.
Grindvíkingur í efsta sæti
Páll Valur Björnsson, kennari í
Grindavík, skipar efsta sætið í
Suður kjördæmi og er þar á ferð
maður sem vann í fiski og var til
sjós áður en hann söðlaði um, 45
ára, og fór í nám. Hann fór yfir
sviðið og sagði hagsmuni íbúa í
Grindavík og Vestmannaeyjum fara
saman. Hann vill auðlindagjald á
sjávarútveg og það verði nýtt til
uppbyggingar á landsbyggðinni.
Björt framtíð vill líka aukna fjöl-
breytni í matvælaframleiðslu, bætt
skilyrði lítilla og meðalstórra fyrir -
tækja um land allt með hnitmið -
uðum aðgerðum. Þau fagna fjöl -
breytileika í mannlífinu, vilja að
Íslendingar standi undir nafni sem
menningar þjóð og verji mann -
réttindi.
Hvatt til minni sóunar.
„Þjóðfélag sem nýtir vel tíma sinn,
krafta, auð og auðlindir – en sóar
þessu ekki – er farsælt þjóðfélag.
Gerum það að meginverkefni að
auka framleiðni í þjóðfélaginu.
Stóreflum forvarnir og endurskipu-
leggjum heilbrigðiskerfið þannig að
fólki sé beint í úrræði sem hæfa
betur og eru þar með hag stæðari
fyrir alla. Tökum á brottfalli úr
skólum með því að auka valkosti og
sveigjanleika í skólakerfinu. Brott -
fall er sóun á hæfileikum, tíma og
fé. Förum í gegnum fjárlögin öll og
spyrjum okkur: Er þetta nauðsyn-
legt? Getum við fengið meira fyrir
peninginn?,“ segir í kynningarbæk -
l ingi.
Þá er krafa um að fá meira fé fyrir
orkuauðlindina, án þess að virkja
óhóflega. „Þannig skapast arður
sem við getum notað til þess að
auka velsæld um land allt. Frekari
uppbygg ing álvera er ekki skyn-
samleg. Verndum umhverfið. Verum
um hverfis væn. Græn í gegn.“
Krafa um meiri stöðugleika
„Stöðugt efnahagsumhverfi væri
dásamlegt. Löndum góðum samn -
ingi við ESB sem þjóðin getur eftir
upp lýsta umræðu samþykkt í
þjóðar atkvæða greiðslu. Leggjum
höfuð áherslu á að auka verðmæti
útflutn ings. Það eykur stöðugleika.
Gerum það að ófrávíkjanlegu
markmiði að hér á landi komist á
húsnæðislánamarkaður með lágum
raun vöxtum til langs tíma.
Þar til stöðugri gjaldmiðill býðst
verður að grípa til aðgerða til að
taka á lánavanda heimila, á grund-
velli nákvæmrar greiningar á
honum.
Blásum til stóraukins samráðs
milli ríkisstjórnar, Alþingis, sveitar-
félaga, atvinnulífsins, launþega,
fjármála geirans og alls konar sam-
taka í þjóðfélaginu um langtíma-
markmið og umbætur á ýmsum
sviðum. Það minnkar óvissu,“ segja
þau og boða minna vesen. Eitthvað
sem hljómar ekki illa.
Frá vinstri: Páll Valur Björnsson, Guðlaug Elísabet Finnsdóttir, Guðmundur Steingrímsson, Jóhanna Ýr
Jónsdóttir, Heiða Kristín Helgadóttir og Róbert Marshall.
Ný þjónusta í Eyjum
:: Graníthöllin í Hafnarfirði, sem sérhæfir sig í gerð
legsteina býður nú ókeypis áletrun, flutning og
uppsetningu á legsteinum í Eyjum
Graníthöllin býður upp á fjöl-
breytt úrval fallegra legsteina.
„Markmið okkar er að vera með
fallegustu legsteina landsins og
leggjum við okkur fram við að
bjóða vandaða vöru á viðráðan-
legu verði,“ segir eigandinn,
Heiðar Steinsson, sem hefur
margra ára reynslu af vinnu við
legsteina og meðhöndlun á
graníti.
„Við bjóðum upp á gríðarlega
mikið úrval og erum með yfir
hundrað gerðir og liti í versluninni
auk þess sem hægt er að sérpanta
steina ef þess er óskað. Við erum
bæði með einfalda og klassíska
steina og einnig steina með miklum
útskurði. Það ættu því allir að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.“
Steinarnir eru allir úr hágæða
granít steini sem Heiðar segir þola
íslenska veðráttu mjög vel. Hann
segir að í vöxt hafi færst að fólk
vilji hafa alls kyns fylgihluti við
legstein inn eins og luktir og blóma -
vasa. Graníthöllin býður upp á
gömlu koparluktirnar sem hafa
notið vinsælda undanfarna áratugi
en einnig granítluktir og vasa í stíl
við legstein inn sem er nýjung hér á
landi. „Fólki hefur líkað þessi
nýjung vel, enda eru þetta stíl -
hreinir og fallegir hlutir. Kosturinn
er að luktirnar eru afar sterkbyggðar
og það sér ekkert á þeim með
árunum ólíkt koparnum,“ segir
Heiðar.
Þá tekur Graníthöllin að sér við -
gerðir og viðhald á legsteinum.
„Það borgar sig að gera við hættu -
lega legsteina sem eru við það að
falla á hliðina en það hafa orðið
mörg slys víðs vegar um heiminn af
þeirra völdum,“ segir Heiðar. „Ef
börn príla utan í slíkum steinum og
þeir falla á hliðina getur það haft
slæmar afleið ingar. Við viljum
koma í veg fyrir slíkt og bendum
fólki á að hafa samband ef leg-
steinar eru farnir að hallast en við
lögum það fyrir sanngjarnt verð. Þá
bjóðum við upp á þá þjónustu að
bæta við nöfnum á legsteina,
hreinsa og endurmála stafi.“
Legsteinar frá Graníthöllinni eru úr hágæða granítsteini.
Tónleikar í Landakirkju
á sunnudaginn:
Orgel, fiðla og
þverflauta
Klukkan þrjú á sunnudaginn verða
tónleikar í Landakirkju þar sem
Guðmundur H. Guðjónsson leikur á
orgelið, Magdalena Dubik á fiðlu
og Védís Guðmundsdóttir á þver-
flautu. Þar verða flutt nokkur verk
gömlu meistaranna og verður Jo-
hann Sebastian Bach í öndvegi.
Feðginin Guðmund og Védísi þarf
ekki að kynna fyrir Eyjamönnum en
Magdalena er enginn nýgræðingur
á fiðluna. Hún hefur æft á fiðlu frá
sjö ára aldri. Lærði í Þýskalandi og
er afleysingaspilari hjá Sinfóníu -
hljóm sveitinni. Einnig kemur hún
fram við hin ýmsu tækifæri og
hefur spilað með fjölmörgum ís -
lenskum lista mönnum.
Guðmundur lét af störfum sem
organisti í Landakirkju fyrir
tveimur árum og í eitt ár snerti hann
ekki hljóðfæri en síðustu mánuði
hefur hann verið að endurnýja
kynnin. Æfir hann reglulega á
orgelið í Landakirkju og hefur
örugglega engu gleymt.
„Pabbi var byrjaður að æfa sig
fyrir tónleikana þar sem hann mun
flytja sólóstykki,“ sagði Védís í
spjalli við Eyjafréttir.
„Svo kom það til að ég yrði með
honum og þá datt okkur í hug að
bæta Magdalenu inn í þar sem hún
er besta vinkona mín. Við höfum
lengi viljað gera eitthvað klassískt
saman. En við höfum oft komið
fram og spilað popp og danstónlist.
Þannig að þetta verður bara
skemmtilegt fyrir okkur og vonandi
þá sem mæta.“
Magdalena Dubik kemur fram
með Védísi Guðmundsdóttur á
tónleikum í Landakirkju á
sunnudag.
GÍSLI VALTÝSSON
gisli@eyjafrettir. is
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrettir. is