Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Blaðsíða 10
°
°10 Eyjafréttir / Miðvikudagur 17. apríl 2013
Sjálfstæðismenn opna kosningaskrifstofu:
Þungu fargi létt af flokknum
með útspili formannsins
:: Það mátti heyra á frambjóðendum við opnunina
Það er langt síðan úrslit kosn -
inga hafa hangið í eins lausu
lofti og nú þegar tíu dagar eru til
Alþingiskosn inga. Framsókn er
á miklu skriði ef marka má
skoðanakannanir. Á meðan
hefur Sjálfstæðisflokkurinn sigið
niður á við og stjórnarflokk arnir
eru komnir í hóp þeirra litlu.
Það er ekki eins bjart yfir Bjartri
framtíð og var fyrir nokkrum vikum
en Píratar eiga vísa þingmenn
samkvæmt síðustu spám. Einlægt
viðtal við Bjarna Benediktsson á
RÚV á fimmtudagskvöldið þar sem
hann sagðist alvarlega skoða þann
möguleika að segja af sér sem for-
maður Sjálfstæðisflokksins, hleypti
nýju lífi í baráttuna. Þegar hann á
laugardagsmorguninn tilkynnti á
fjölmennum fundi í Garðabæ að
hann ætlaði ekki að hætta var eins
og þungu fargi væri létt af flokks -
mönnum. Það mátti sjá á fundi hjá
sjálfstæðismönnum í Ásgarði á
laugardags morguninn þegar kosn -
ingaskrifstofa flokksins var opnuð
formlega.
Lækkun höfuðstóls lána
Þar voru mættir frambjóðendurnir
Ragnheiður Elín Árnadóttir og
Unnur Brá Konráðsdóttir sem skipa
fyrsta og annað sæti listans og Vest-
mannaeyingarnir Geir Jón Þórisson
í fimmta sæti og Trausti Hjaltason í
því áttunda. Gestir voru um 40 og
hlýddu þeir á hvatningarræður
frambjóðendanna sem sögðu mikið
í húfi að Sjálfstæðisflokkurinn næði
vopn um sínum. Áhersla var lögð á
helstu stefnumál flokksins sem er
lækkun á höfuðstól húsnæðislána
með skatta fslætti og séreignarsparn -
aði, auð veldari leið fyrir fólk til að
komast inn á fasteignamarkaðinn og
sterkari stöðu einstaklinga gagnvart
fjármála stofnunum.
Það var góð stemmning á fund-
inum og gerður góður rómur að því
sem frambjóðendurnir sögðu, ekki
síst þegar Geir Jón steig í pontu og
sagði Bjarna Benediktsson rétta
manninn til að leiða flokkinn í
kom andi slag. Hann hefði mátt sæta
ofsóknum andstæðinganna og hann
borinn sökum sem eiga sér enga
stoð í veruleikanum.
Aðgerðir sem eiga
að gagnast öllum
Ef farið er yfir það sem Sjálfstæðis-
flokkurinn er með á stefnuskrá
sinni, segir að það séu aðgerðir sem
gagn ast öllum og forgangs verkefni
nýrrar ríkisstjórnar verði að tryggja
vel ferð heimilanna. Hafa þeir lagt
fram, að því þeir segja, markvissar
aðgerðir sem hjálpa heimilunum og
koma má í framkvæmd án tafar.
„Þú og þínir geta haft það svo
miklu betra,“ segir í stefnuskránni.
Lækka á íbúðarlán um allt að 20%
með skattaafslætti þar sem einstak-
lingar fá allt að 40.000 krónur á
mánuði í sérstakan skattaafslátt
vegna afborgana af íbúðaláni.
Skatta afslátturinn fer beint inn á
höfuðstól lánsins til lækkunar.
Öllum stendur þessi leið til boða.
Líka má nota framlag í séreignar -
sparnað til að greiða skattfrjálst
niður höfuðstól lánsins. Þannig
greiðast sem nemur 4% launa inn á
höfuðstól íbúðalánsins. Þessi leið
segja þeir að standi öllum sem það
vilja til boða.
Skattaafsláttur fyrir
þá sem spara
Sjálfstæðisflokkurinn vill veita
þeim sem eru að spara fyrir íbúð
allt að 40 þúsund króna skattaafslátt
á mánuði af þeim tekjum sem er
safnað til íbúðakaupa. Þannig geta
sem flestar fjölskyldur fengið tæki -
færi til að eignast eigið húsnæði.
Þá segir að með afnámi stimpil -
gjalda verði staða einstaklinga
gagn vart fjármálastofnunum
sterkari. Auðveldara verði að flytja
lánavið skipti á milli fjármálastofn -
ana, sem auki samkeppni og hagur
lántaka verði betri fyrir vikið.
Sjálfstæðismenn vilja gefa fólki
tækifæri til að byrja upp á nýtt.
„Þeir sem ráða ekki við greiðslur af
íbúðarhúsnæði fá nýtt tækifæri í
stað gjaldþrots. Ef skuldastaðan er
óyfir stíganleg, geturðu „skilað lykl -
unum“ að íbúðinni til viðkomandi
lánastofnunar, að uppfylltum
ákveðnum skil yrðum,“ segir í
stefnuskránni.
Lántakendur eiga að geta valið um
bæði verðtryggð og óverðtryggð lán
til langs tíma á sanngjörnum vöxt -
um að mati sjálfstæðismanna og
markmiðið er að hægt verði að veita
sambærileg óverðtryggð lán og í
nágranna löndunum. Sjálfstæðis -
flokk urinn vill stuðla að stöðugum
efnahag þar sem verðtryggingin
verður á endanum óþörf.
Efla á atvinnulífið, með því að
tryggja að fólk geti stundað arðbæra
atvinnu sé lagður grunnur að vel -
ferð heimilanna.Þess vegna sé mik-
ilvægt að marka skýra stefnu um
sterkt atvinnulíf til framtíðar.
Þá eru það stóru málin þar sem
flokkurinn vill sjá afnám gjaldeyris -
hafta, lægri skatta og gjöld á fyrir -
tæki, rækta einkaframtak og ný -
sköpun, minni ríkisafskipti og
miðstýringu og stöðugt umhverfi
þar sem atvinnulífið fær að njóta
sín, með fleiri störfum og hærri
launum
„Lægra tryggingagjald á fyrirtæki
þýðir að þau geta hækkað laun og
fjölgað starfsfólki. Með því að nýta
auðlindir og tækifæri á ábyrgan hátt
fjölgum við störfum um allt land.
Fréttakorn frá kvenfélaginu Líkn Vestmannaeyjum 2012:
Þakka bæjarbúum fyrir samstarfið
:: Gáfu rúmar tvær milljónir til ýmissa líknar- og félagsmála
Kvenfélagið Líkn var stofnað 14.
febrúar 1909. Félagið er til húsa að
Faxastíg 35. Aðalfundur félagsins
var haldinn 6. febrúar sl. Fóru þar
fram venjuleg aðalfundarstörf og
kosið var í stjórn og nefndir til næsta
árs.
Núverandi stjórn skipa:
Ágústa Hulda Árnadóttir, formaður
Ásdís Loftsdóttir, varaformaður
Edda Ólafsdóttir, gjaldkeri
Eva Káradóttir, varagjaldkeri
Margrét Kristjánsdóttir, ritari
Hrefna Valdís Guðmundsdóttir, vara -
ritari
Guðbjörg Hrönn Sigursteinsdóttir,
meðstjórnandi
Í kvenfélaginu Líkn eru skráðar 132
félagskonur. Allar þessar konur
vinna saman að hinum ýmsu störfum
félagsins, eftir bestu getu og hentug -
leikum hverrar fyrir sig. Á fundum
fáum við til okkar fyrirlesara eða
kynningar á ýmsum störfum, og
stundum höldum við námskeið til að
efla okkar konur. Einnig gerum við
okkur glaðan dag, þar má nefna
óvissuferðir og skemmtikvöld fyrir
félagskonurnar. Það gefur mikið að
vera í félagi eins og kvenfélaginu
Líkn, verkefnin eru margbreytileg og
flestar konur geta fundið eitthvað við
sitt hæfi, einnig myndast góður vin-
skapur milli félagskvenna. Viljum
við hvetja konur til að ganga til liðs
við okkur í Líkn, allar konur eru
velkomnar og tökum við vel á móti
ykkur.
Á síðasta starfsári gaf kvenfélagið
Líkn til ýmissa líknar- og félagsmála
fyrir kr. 2.199.181.-
Viljum við nota þetta tækifæri og
þakka bæjarbúum frábæran stuðning
og velvild við félagið í gegnum árin,
því án ykkar værum við litils megn -
ugar.
Ágætu bæjarbúar, okkar bestu
þakkir fyrir samvinnuna sl. ár.
Óskum ykkur alls góðs og guðs
blessunar í framtíðinni.
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrettir. is
Sjálfstæðismenn
vilja gefa fólki tæki -
færi til að byrja upp
á nýtt. „Þeir sem
ráða ekki við greiðsl -
ur af íbúðarhúsnæði
fá nýtt tækifæri í
stað gjaldþrots. Ef
skuldastaðan er
óyfirstíganleg
geturðu „skilað lykl -
unum“ að íbúðinni
til viðkomandi
lánastofn unar, að
upp fyllt um
ákveðnum skil yrð -
um,“ segir í stefnu -
skránni.
”
Líknarkaffið í byrjun desember er stærsta fjáröflun Líknar ár hvert og láta bæjarbúar sitt ekki eftir liggja
og fjölmenna í kaffið.
Frambjóðendur Eyjamanna á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, ásamt þeim Ragnheiði Elínu Árna -
dóttur og Unni Brá Konráðsdóttur. Trausti Hjaltason, Geir Jón Þórisson og Sigurhanna Friðþórsdóttir