Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Qupperneq 11
Eyjafréttir / Miðvikudagur 17. apríl 2013 11
°
°
X-A Björt Framtíð Páll
Valur Björnsson:
Nýta auð -
linda gjald
til að
styrkja
grunn stoð -
ir sam-
félagsins
1. - Björt framtíð leggur áherslu á
að öllum landsmönnum sé tryggður
aðgangur að heilbrigðisþjónustu.
Við sameiningu heilbrigðisstofnana
þarf að vera tryggt að kröfum um
aðgang að heilbrigðisþjónustu sé
mætt. Nýta þarf fjölbreyttar leiðir
til að mæta þörfum landsmanna
fyrir heilbrigðis þjónustu. Vest -
mannaeyjar þurfa að mínum dómi
að njóta sérstöðu í þessum málum
vegna staðsetningar sinnar og
tryggja þarf Heilbrigðis stofnun
Vestmannaeyja fjármuni til þess að
íbúar búi við öryggi. Vestmanna -
eyjar eru ein af stærstu verstöðum
landsins og skila ómældum fjár-
munum í þjóðarbúið og ég sé fyrir
mér að hluti af auðlindagjaldinu,
sem sjávarútvegurinn í Eyjum skilar
í ríkissjóð, verði nýttur til þess að
tryggja fullnægjandi heilbrigðis -
þjónustu í Eyjum. Björt framtíð
styður byggingu nýs Landspítala í
þeim áföngum sem gerlegir eru á
næstu árum. Endurnýjun og viðhald
á eldri byggingum eru mikilvæg
verkefni um leið og hugað er að
nýjum byggingum.
2. - Svarið er í raun það sama og
hér fyrir ofan, að nýta hluta auð -
linda gjaldsins til þess að styrkja alla
grunnþjónustu og innviði samfé -
lags ins í Eyjum. Það ástand sem nú
ríkir í Vestmannaeyjum í löggæslu -
málum er með öllu ólíðandi.
3. - Björt framtíð er opin fyrir því
að skoða þetta en lykilatriði er að
fyrir liggi samkomulag um aukin
útgjöld til reksturs ferjusiglinga en
skoða þarf þetta í samhengi.
4. - Um sjávarútveginn verður að
fara að nást sátt, núverandi ástand
og óvissa í þessum undirstöðuat -
vinnuvegi þjóð arinnar er með öllu
óþolandi. Í kosningaáherslum okkar
stendur: Sköpum varanlega sátt um
sjávar útveg á grunni fjögurra stoða:
1) Að arður renni til þjóðarinnar.
2) Að nýting fiskimiðanna sé sjálf-
bær.
3) Að greinin njóti góðra skilyrða
til að skila hagnaði.
4) Að nýir aðilar geti haslað sér völl
í sjávarútvegi.
Við viljum meina að það vanti
bara herslumuninn í þessu og það
hljóti að vera hægt, í góðu samráði
allra aðila, að komast að niðurstöðu
sem felur þetta allt í sér. Það er ljóst
að á næstu árum verður kvótinn
aukinn verulega og í því liggja
gríðarmörg sóknarfæri.
5. - Alls ekki. Við hjá Bjartri fram -
tíð viljum auka fjölbreytni og telj -
um að flytja eigi opinberar stofnanir
í meira mæli út á landsbyggðina.
6. - Löndum góðum samningi við
ESB sem þjóðin getur eftir upplýsta
umræðu samþykkt í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Þá opnast leið til gjald -
miðils samstarfs við Evrópska seðla-
bankann (ERM II), sem strax getur
aukið stöðugleika. Svo getum við
tekið upp evru þegar skilyrði skap -
ast til þess. Það er auðvitað ekki
töfra lausn en þó að öllum líkindum
sigurstranglegasta leiðin í átt að
efna hagslegum stöðugleika. Lykil -
atriði hvað þetta mál varðar er að
klára viðræður og síðan ákveður
þjóðin í þjóðaratkvæðagreiðslu
hvort hún vill inn eða ekki.
7. - Einfaldlega vegna þess að ég er
vinnu þjarkur og með hjarta úr gulli,
ég er mikill landsbyggðarmaður
sem hef alist upp við sjávarsíðuna
og nánast unnið allt mitt líf í störf -
um tengdum sjávarútvegi. Allt frá
því í gosinu í Heimaey 1973 hef ég
verið „Vestmannaeyingur“ eins og
svo margir, fylgdist með því 10 ára
gamall hvernig Eyjamenn tókust af
æðruleysi og dugnaði á við afleið -
ingar gossins. Í mínum huga eru
Eyjar útstöð Íslands, kletturinn í
hafinu sem er samnefnari fyrir það
fólk sem byggir okkar stórkostlega
land.
X-B Framsóknar -
flokkurinn Sigurður Ingi
Jóhannsson:
Niður -
skurð ur
síðustu ára
gengið of
langt
1. - Við framsóknarmenn teljum að
rétt sé að endurskoða þau áform að
setja 85 milljarða í LSH. Heil-
brigðiskerfi landsmanna – hringinn
í kringum landið er að hruni komið
eftir of mikinn niðurskurð síðustu
ára. Við teljum að byggja þurfi upp
að nýju heilbrigðiskerfið þ.á.m. hér
í Eyjum með áherslu á örugga
grunn þjónustu. En jafnframt þarf að
hefja skynsamari uppbyggingu á
LSH.
2. - Við Framsóknarmenn höfum
haft frumkvæði að því á yfirstand -
andi kjörtímabili að láta skoða
hvaða löggæsluþjónustu þarf á
landinu – svokallaða löggæslu -
áætlun. Allir flokkar á þingi komu
að málinu og voru allir sammála um
að niður skurður síðustu ára hefði
gengið of langt og setja þyrfti
aukna fjármuni í löggæsluna. Einn -
ig voru menn sammála um að verst
væri ástandið á landsbyggðinni
þ.m.t. hér í Eyjum og setja þyrfti
meiri fjármuni í löggæsl una strax.
3. - Það fyrirkomulag sem nú er –
þar sem það kostar 3x meira að
sigla til Þorlákshafnar en Landeyja-
hafnar með Herjólfi og að flugsam -
göngur eru ekki niðurgreiddar –
gengur augljóslega ekki m.t.t. jafn-
ræðis. Við Framsóknarmenn leggj -
um mikla áherslu að allir lands -
menn sitji við sama borð þegar
kemur að þjónustu ríkisins. Geti
ríkisvaldið ekki einhverra hluta
vegna ekki veitt sömu þjónustu, eigi
að skoða hvort ekki sé eðlilegt að í
viðkomandi byggðarlagi sé veittur
skattaafsláttur.
4. - Við Framsóknarmenn leggjum
mikla áherslu á að um sjávarútveg-
inn, mikilvægustu atvinnugrein
landsins, ríki víðtæk sátt. Við
viljum sjá lög um stjórn fiskveiða
sem byggja á sáttanefndinni frá
hausti 2010. Þar á kerfið að byggja
á nú verandi kvótakerfi – nýtingar -
samn ingum til 20-25 ára. En við
viljum einnig lagfæra það sem er
ekki nógu gott. Það snýr m.a. að
forkaupsrétti byggðarlaga, að taka á
leigu heimilda með aukinni veiði -
skyldu. Við viljum einnig sjá að í
slíkum lögum verði aukin áhersla
lögð á nýsköpun í greininni – til að
skapa fleiri störf tengd sjávarútvegi
og aukin útflutn ingsverðmæti.
Framsóknarmenn ætla, fáum við
umboð til, að leggja af mjög
ósanngjarnan sérstakan veiðileyfa -
ofurskatt – sem leggst sérstaklega
illa á minni fjölskyldu- og einyrkja-
fyrirtæki. Við Framsóknarmenn
viljum að á sjávarútveginn, eins og
aðrar greinar sem nýta auðlindir
þjóðar, sé lagt á hóflegt auðlinda -
gjald.
5. - Á Íslandi hefur verið ein
byggða stefna í 150 ár – en hún er
að byggja Reykjavík upp sem höf -
uðborg og færa allar stofnanir
landsins þangað. Síðustu ár hafa
verið verri hvað það varðar að
niðurskurður síðustu ára hefur
bitnað meir á landsbyggðinni en
höfuðborgarsvæðinu. Við fram -
sóknarmenn teljum að kominn sé
tími á nýja byggðastefnu – þar sem
verkefnin séu unnin þar sem þau
eru - af fólki sem þar býr. Það er að
segja að flytja verkefnin þangað
sem þeirra er þörf. Við teljum að
það sé eitt mikilvægasta verkefni á
næstu árum að treysta byggð um
land allt m.a. með eðlilegri dreif -
ingu á þjónustu og starfsemi rík-
isins. Augljóstasta verk efnið er
heilbrigðiskerfið, en einnig má
nefna eftirlits- og rannsóknastörf
t.a.m. Umhverfisstofnun, Hafró og
Fiskistofu svo örfá verkefni séu
nefnd
6. - Við Framsóknarmenn teljum að
Íslandi sé betur borgið utan ESB en
innan og viljum hætta viðræðum nú
þegar. Ef þjóðin vill í framtíðinni
taka viðræðurnar upp, verði það
gert í kjölfar á þjóðaratkvæða-
greiðslu um það. Fordæmi fyrir
þessari leið eru m.a. frá Sviss sem
gerði hlé á sínum viðræðum fyrir
ca. 10-15 árum – og hefur ekki
tekið þær upp á ný. Malta sem gerði
4 ára hlé – tók viðræður upp að
nýju og gekk í ESB.
7. - Ég hef verið þingmaður nú í
fjögur ár. Á þessum tíma hefur
verið tekist á um mörg grundvallar-
mál – hags muni sem skipta Ísland,
landsbyggð ina og þar með Vest-
mannaeyjar miklu. Við framsóknar-
menn höfum barist af mikilli einurð
og staðfestu að verja hagsmuni Ís-
lands, hvort sem er í Icesave,
grunnatvinnuvegum þjóðarinnar,
skuldamálum heimila eða uppbygg -
ingu atvinnulífsins. Ég óska eftir að
fá umboð ykkar laugar daginn 27.
apríl næstkomandi til að vinna
áfram að hagsmunum lands og
þjóðar. Með því að setja X við B
greiða Eyjamenn atkvæði með því
að taka á sanngjarnan og réttlátan
hátt á skuldamálum heimila.
Alþingiskosningar 2013:
Hvað eiga Eyjamenn að kjósa?
:: Oddvitar framboða í Suðurkjördæmi svara spurningum Eyjafrétta
Nú styttist í að gengið verði til kosninga til Alþingis en kosið verður
27. apríl næstkomandi. Óhætt er að fullyrða að sjaldan hafi
alþingiskosningar verið jafn spennandi og nú enda framboðin fjölmörg.
Ellefu listar eru í boði í Suðurkjördæmi en þeir eru:
Björt Framtíð (X-A), Framsóknarflokkurinn (X-B), Sjálfstæðisflokkurinn
(X-D), Hægri-Grænir, flokkur fólksins (X-G), Flokkur heimilanna (X-I),
Regnboginn (X-J), Samfylkingin (X-S), Dögun (X-T), Vinstri Grænir (X-V)
og Píratar (X-Þ).
Alls eru 33.641 á kjörskrá í Suðurkjördæmi samkvæmt kosningavef inn -
anríkisráðuneytisins, www.kosning.is. Langflestir eru í Reykjanesbæ,
eða rétt rúmlega tíu þúsund kjósendur og næstflestir eru í Árborg, 5.658.
Vestmannaeyjar eru í þriðja sæti varðandi fjölda kjósenda en 3.169 eru
hér á kjörskrá, eða um 9,4% kjósenda í Suðurkjördæmi.
Eyjafréttir sendu oddvitum allra ellefu framboðanna spurningalista, níu
skiluðu inn svörum en tveir sáu sér ekki fært að svara. Svör oddvitanna
má lesa hér að neðan og á næstu síðum.
1. Hvernig ætlar þú að leysa vanda heilbrigðiskerfisins, m.a. í Vestmannaeyjum? Ertu hlynnt/hlynntur nýju hátæknisjúkrahúsi? | 2. Skorið hefur verið niður í löggæslumálum
m.a. með þeim afleiðingum að innbrotum hefur fjölgað mikið í Vestmannaeyjum. Hvernig vilt þú bæta þennan vanda og hvar finnur þú fjármagn til þess? | 3. Telur þú að
ferjusiglingar eigi að vera hluti af þjóðvegakerfinu og gjaldtaka í samræmi við það? | 4. Hvernig sérð þú næstu skref fyrir þér varðandi sjávarútveg? Óbreytt kerfi eða breyt -
ing ar og þá hvaða breytingar? | 5. Undanfarin ár hefur miðjuvæðing verið áberandi á Íslandi, þar sem stofnanir og opinber störf hafa flust frá t.d. Vestmanna eyjum á höfuð -
borgarsvæðið. Ertu sátt/sáttur við þessa þróun? | 6. Viltu að Ísland gangi inn í ESB og af hverju/ekki? | 7. Af hverju eiga Eyjamenn að kjósa þig á þing?
Allt frá því í gosinu í Heimaey 1973 hef ég
verið „Vestmannaeyingur“ eins og svo marg -
ir, fylgdist með því 10 ára gamall hvernig
Eyjamenn tókust af æðruleysi og dugnaði á
við afleiðingar gossins. Í mínum huga eru
Eyjar útstöð Íslands, kletturinn í hafinu sem
er samnefnari fyrir það fólk sem byggir
okkar stórkostlega land.
- Páll Valur Björnsson
Oddviti Bjartrar Framtíðar
”
Ég hef verið þingmaður nú í fjögur ár. Á
þessum tíma hefur verið tekist á um mörg
grundvallarmál – hags muni sem skipta
Ísland, landsbyggð ina og þar með Vest -
manna eyjar miklu. Við framsóknarmenn
höfum barist af mikilli einurð og staðfestu
að verja hagsmuni Íslands, hvort sem er í
Icesave, grunnatvinnuvegum þjóðarinnar,
skuldamálum heimila eða uppbyggingu
atvinnulífsins. Ég óska eftir að fá umboð
ykkar laugar daginn 27. apríl næstkomandi
til að vinna áfram að hagsmunum lands og
þjóðar.
- Sigurður Ingi Jóhannsson
Oddviti Framsóknarflokks
”