Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Qupperneq 12

Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Qupperneq 12
12 Eyjafréttir / Miðvikudagur 17. apríl 2013 ° ° X-D Sjálfstæðisflokkur Ragnheiður Elín Árnadóttir: Hef ætíð talið hags - munum Íslands best borg - ið utan ESB 1. - Vandi heilbrigðiskerfisins verð - ur ekki leystur nema með breyttri forgangsröðun fjármuna. Það er al- gerlega ólíðandi að niðurskurður hafi bitnað svo mikið á heilbrigðis - stofn unum á landsbyggðinni að eðlileg starfsemi þar geti vart þrifist. Heilbrigðisstofnun Vest - mannaeyja hefur ekki farið varhluta af því eins og öllum er kunnugt og er brýnt að úr verði leyst, sérstak- lega í ljósi landfræðilegrar sérstöðu Eyjanna. Eyjamenn eiga kröfu á góðri og öruggri heilbrigðisþjón - ustu.Við þurfum að forgangsraða fjármunum skattborg ar anna rétt og tryggja grunnþjón ustuna út um allt land fyrst, áður en ráðist verður í byggingu nýs sjúkra húss í Reykja - vík fyrir peninga sem við eigum ekki til og þurfum að taka að láni. 2. - Lögreglumenn í Eyjum hafa sjálfir bent á að innbrotum hefur fjölgað í kjölfar þess að sólarhrings - vakt lög reglu var afnumin. Það ligg ur því beinast við að það verður að taka upp sólarhringsvakt að nýju. Íbúar verða að geta búið við öryggi og treyst því að þjónusta lögreglu sé til staðar þegar þörf er. Sem fyrr snýst þetta um rétta forgangsröðun. 3. - Já, það er mín skoðun að ferju - sigl ingar eigi að vera hluti af þjóð - vega kerfinu og haga beri gjaldtöku í samræmi við það. Sjálfstæðisflokk - urinn hefur auk þess ályktað um slíkt á landsfundi, þannig að stefna flokksins í þessum málum er skýr. 4. - Ég er hlynnt núverandi fisk - veiði stjórnunarkerfi í meginat - riðum. Eins og með önnur mann - anna verk er það ekki gallalaust og þarf að endurskoða reglulega. Sjávarútvegurinn er einn af grunn - atvinnuvegum þjóðarinnar og því er afar mikilvægt að sú endur skoðun fari fram í sátt við hags munaaðila, sérfræðinga og sjávar byggðirnar í landinu og taka þarf tillit til þeirra sjónarmiða sem þar heyrast. Óhóf - lega gjaldtöku, sem er umfram það sem tíðkast í öðrum atvinnugrein - um þarf að endurskoða og tryggja þarf þeim sem hafa fjárfest í sjáv - arútvegi rekstrarlegt öryggi. Ég er sannfærð um að sáttin er í boði ef allir leggja sig fram og að byggja skuli m.a. á niðurstöðu sáttanefnd - arinnar svokölluðu. Mikilvægast er að eyða þeirri óvissu sem greinin hefur mátt búa við á síðustu árum sem gerir ekkert annað en að draga þrótt úr greininni. 5. - Það er mjög mikilvægt að leitað sé leiða til að efla opinbera starf- semi á landsbyggðinni. Slíkt eykur fjölbreytni atvinnulífs á lands - byggðinni og styrkir um leið byggð í landinu. Niðurskurður í grunn - þjónustu hefur auk þess orðið til þess að opinberum störfum á lands- byggðinni hefur fækkað. Ég er ekki sátt við þessa þróun og mun sem fyrr berjast fyrir því að tryggja velferð landsbyggð arinnar. 6. - Ég hef ætíð talið að hagsmun - um Íslands sé best borgið utan ESB og byggi það mat mitt ekki síst á hags munum okkar hvað sjávarút - veginn varðar. Ég vil að þjóðin fái tækifæri til þess að ákveða í þjóðar - atkvæðagreiðslu hvort haldið skuli áfram með aðildarviðræðurnar og treysti henni fullkomlega til þess að taka afstöðu til þess á þessum tíma- punkti á grundvelli þeirra upplýs - inga sem nú liggja fyrir. 7. - Ég hef verið þingmaður Eyja- manna sl. kjörtímabil og er afar stolt af því. Ég kem eins oft og ég mögulega get til Eyja, á þar góða vini og samstarfs menn sem halda mér vel upplýstri um þau málefni sem mest brenna á Eyjamönnum hverju sinni. Ég vil halda áfram að vinna sem best ég get til að tryggja örugga grunnþjónustu og styrkja atvinnulífið í Eyjum þannig að tryggt verði að unga fólkið okkar hafi val um spennandi atvinnu - tækifæri. Vegna þess að það er mikil vægt að við forgangsröðum rétt. Ég vil einfaldlega berjast fyrir hags munum Eyjamanna, sem og landsmanna allra, og leitast við að bæta samfélagið okkar með réttri for gangs röðun. X-G Hægri grænir Sigursveinn Þórðarson: Ferjusigl - ingar eiga að vera hluti af þjóðvega - kerfinu og gjaldtaka í samræmi við það 1. - Vandi Heilbrigðisstofnunar Vest mannaeyja er ekki nýtilkominn. Gegndarlaus niðurskurður til stofn - un arinnar hefur staðið síðan fyrir hrun. Þessu verður ekki breytt nema ný hugsun komist að. Við viljum hætta við byggingu hátækni sjúkra- húss í miðborg Reykjavíkur og efla nærþjónustu til muna, um allt land. Það er sjálfsögð krafa okkar sem búum hér í Eyjum að hafa hér heil- brigðisþjónustu sem sómi er að. Vandinn verður ekki leystur með frekari tiltekt innan stofnunarinnar, heldur verður að auka fjárframlög til hennar. Eins eigum við að gera þá kröfu að skurðstofan verði opin allt árið en ekki lokað í mánuð hvert ár. Lykillinn er ný hugsun í heilbrigðis kerfinu og að hætta þessari endalausu miðstýringu úr borginni. 2. - Aftur þurfum við að nálgast hlutina frá öðru sjónarhorni. Alltaf þegar horft er á þjónustu ríkisins í lykil málum þá er horft út frá lágmarks þjónustu, en ekki hvaða þjónusta er samfélaginu samboðin. Peningarnir koma með tiltekt hjá hinu opinbera þar sem áherslan verður á velferðar kerfið en minni yfirbyggingu á öðrum stöðum. 3. - Að sjálfsögðu eiga ferjusigling - ar að vera hluti af þjóðvegakerfinu. Við eigum að greiða sem nemur þeirri upphæð sem myndi kosta okkur að keyra sömu leið. Þetta er þjónusta þar sem vegtenging er ekki til staðar og þá á ekki að skipta máli hversu margir farþegar eru í bíl, við eigum að borga fyrir það að koma bílnum á milli staða. 4. - Kvótakerfið er ekki gallalaust en grunnkerfið eigum við að halda í. Ég hefði viljað sjá hærri veiði - skyldu útgerða svo dæmi sé tekið um breytingu sem þarf að skoða. Það á að leyfa frjálsar handfæra - veiðar á ákveðnu tímabili, tengt svæðum. 5. - Stjórnkerfi ríkisins á ekki eingöngu að byggjast upp í Reykjavík. Til að mynda tel ég mik- ilvægt að standa vörð um sýslu - mannsembættið hér í Eyjum sem og önnur störf hjá hinu opinbera á landsbyggðinni. Það þarf hins vegar að draga verulega úr rekstri ríkisins, sameina stofnanir og leggja aðrar niður. Þar sem útþensla hins opin- bera hefur eingöngu verið á höfuð - borgarsvæðinu er eðlilegt að líta fyrst þangað í þeim aðgerðum. 6. - Ég hef alltaf verið á móti inn - göngu okkar í ESB. Ég hef kynnt mér þetta nokkuð vel og sé hrein- lega ekki þann ávinning sem þarf að vera til staðar. Vandræðin í Evrópu síðustu misseri og framkoma sam- bandsins í garð minni ríkja sem þó eru margfalt stærri en við hefur sannfært mig enn frekar um að þetta sé félagsskapur sem við eigum ekki heima í. Við ein angrum okkur verulega, fríverslunar samningar sem við erum með við lönd utan ESB detta út. Við eigum að líta til beggja átta í þessum efnum. Semja við lönd á okkar forsendum, semja við NAFTA ríkin svo dæmi sé tekið. Nú hafa viðræður verið settar á ís og eðlilegt í framhaldinu að Íslendingar fái til að segja hug sinn til áframhaldandi viðræðna. 7. - Það verður hver og einn auð - vitað að ákveða á sínum forsendum. Ég býð mig fram til þess að sinna okkar málefnum og fá nýja sýn og nýtt viðhorf inn á Alþingi. Ég tel að það sé nauðsynlegt að minni fram- boðin fái brautargengi í komandi kosn ingum, það verður að vera mótvægi við gömlu valdaflokkana. Hægri grænir hafa lagt fram raun- hæfar lausnir til að ná sáttum í sam- félaginu. Ég hvet fólk til þess að kynna sér þær lausnir og kjósa út frá því. X-J Regnboginn Bjarni Harðarson: Þarf að tryggja betur hag sjávar - byggð anna og koma í veg fyrir samþjöpp - un veiði- heimilda 1. -Heilbrigðiskerfið á landsbyggð - inni hefur gengið í gegnum alltof mikinn niðurskurð á undanförnum árum og þar þarf að snúa fjárveit - ingum til fyrra horfs. Til þess að mæta þeim kostnaði á meðal annars að endur skoða allar hugmyndir um hátækni sjúkrahús. Öryggissjónar - mið og almennt jafnræði lands- manna kallar á að við endurskoðum þá áherslu sem hefur verið lögð á að byggja aðeins upp eitt nútíma sjúkrahús á Íslandi. 2. - Efling löggæslu er verkefni sem þarf stöðugt að vinna að. Eitt af for- gangsverkefnum okkar til þess að bæta hér úr er að auka meðferðar - starf meðal refsifanga og endur - skoða þátttöku okkar í Shengen. Fjármuni til þessara verkefna þarf að auka smám saman eftir því sem þjóðarbúið réttir úr sér. 3. - Ég tel að ferjusiglingar, þar sem ekki er um aðrar samgöngur að ræða, sé órofa hluti af vegakerfinu og gjaldtaka eigi að vera í samræmi við það sem aksturskostnaður ann - ars væri. Ég tel líka að flýta eigi eftir megni endurnýjun Herjólfs. 4. - Það þarf að tryggja betur hag sjávar byggðanna og koma í veg fyrir samþjöppun veiðiheimilda. Í grundvallaratriðum á að styðjast við óbreytt kerfi en um leið verður að 1. Hvernig ætlar þú að leysa vanda heilbrigðiskerfisins, m.a. í Vestmannaeyjum? Ertu hlynnt/hlynntur nýju hátæknisjúkrahúsi? | 2. Skorið hefur verið niður í löggæslumálum m.a. með þeim afleiðingum að innbrotum hefur fjölgað mikið í Vestmannaeyjum. Hvernig vilt þú bæta þennan vanda og hvar finnur þú fjármagn til þess? | 3. Telur þú að ferjusiglingar eigi að vera hluti af þjóðvegakerfinu og gjaldtaka í samræmi við það? | 4. Hvernig sérð þú næstu skref fyrir þér varðandi sjávarútveg? Óbreytt kerfi eða breyt - ing ar og þá hvaða breytingar? | 5. Undanfarin ár hefur miðjuvæðing verið áberandi á Íslandi, þar sem stofnanir og opinber störf hafa flust frá t.d. Vestmanna eyjum á höfuð - borgarsvæðið. Ertu sátt/sáttur við þessa þróun? | 6. Viltu að Ísland gangi inn í ESB og af hverju/ekki? | 7. Af hverju eiga Eyjamenn að kjósa þig á þing? Ég hef verið þing- maður Eyjamanna sl. kjörtímabil og er afar stolt af því. Ég kem eins oft og ég mögulega get til Eyja, á þar góða vini og samstarfs menn sem halda mér vel upplýstri um þau málefni sem mest brenna á Eyjamönn - um hverju sinni. Ég vil halda áfram að vinna sem best ég get til að tryggja örugga grunnþjón - ustu og styrkja at - vinnulífið í Eyjum þannig að tryggt verði að unga fólkið okkar hafi val um spennandi atvinnu - tækifæri. Vegna þess að það er mikil vægt að við forgangs - röðum rétt. - Ragnheiður Elín Árnadóttir Oddviti Sjálfstæðisflokks ” Vestmannaeyjar eiga mikið undir því að harðsæknir málafylgjumenn flytji þeirra mál á Alþingi. Ég er tilbúinn til að vera í því liði. Byggðin í Eyjum eins og reyndar öll byggð á Íslandi á allt undir því að ESB umsóknin verði dregin til baka og við stöndum vörð um fullveldi okkar og okkar fiskimið. Í þeirri baráttu hefur Regnbogi okkar Jóns Bjarna- sonar og fleiri góðra liðsmanna mikilvægt hlutverk. - Bjarni Harðarsson Oddviti Regnbogans ” Ég býð mig fram til þess að sinna okkar málefnum og fá nýja sýn og nýtt viðhorf inn á Alþingi. Ég tel að það sé nauðsynlegt að minni framboðin fái brautargengi í komandi kosn ingum, það verður að vera mótvægi við gömlu valdaflokkana. Hægri grænir hafa lagt fram raunhæfar lausnir til að ná sáttum í samfélaginu. Ég hvet fólk til þess að kynna sér þær lausnir og kjósa út frá því. - Sigursveinn Þórðarson Oddviti Hægri grænna ”

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.