Fréttir - Eyjafréttir - 17.04.2013, Side 13
Eyjafréttir / Miðvikudagur 17. apríl 2013 13
°
°
hamla veðsetningu og verslun með
óveiddan afla og veiðiheimildir sem
eru verðmæti í eigu þjóðarinnar.
Tryggja verður enn betur en nú er
gert að auðlindir séu í þjóðareigu.
Um leið þarf að tryggja framtíðar -
stöðu útgerðar og þeirra sem vinna
við þessa undirstöðuatvinnugrein
okkar.
5. - Ég er afar ósáttur við þessa
þróun og hef lengi gagnrýnt þá
borgríkis myndun sem einkennir
íslenska þjóð félagsþróun. Lands-
byggðin á að njóta jafnræðis þegar
kemur að starfsemi ríkisins. Það er
ólíðandi að ríkisvaldið standi að
stórfelldum flutningi fjármagns frá
einum lands hluta til annars. Ein
leiðin til að sporna við þessu gæti
verið að kyrrsetja skatttekjur lands -
byggðar innar á landsbyggðinni.
6. - Alls ekki. Ég tel að það eigi
tafarlaust að draga umsókn okkar
um aðild til baka enda eru engar
eigin legar samningaviðræður í
gangi heldur, eins og ESB viður -
kennir, aðeins aðlögun sem smám
saman miðar að því að troða okkur
nauð ugum viljugum í ESB. Það er
mikil einföldun að halda að hér
megi klára eitthvert samningaferli -
slíkur barna skapur verður bara til
að festa okkur enn frekar í neti. Það
var illa og ólýðræðislega til um -
sóknar okkar um ESB stofnað og
löngu tímabært að þessu ferli sé
hætt. Þegar áróðurs skrifstofu ESB
hefur verið lokað og umsóknin
dregin til baka er sjálfsagt að efna
til þjóðaratkvæðagreiðslu um það
hvernig staðið skuli að fram tíðar -
stöðu okkar gagnvart ESB. Fyrsta
skrefið í því væri atkvæðagreiðsla
um EES.
7. - Vestmannaeyjar eiga mikið
undir því að harðsæknir málafylgju-
menn flytji þeirra mál á Alþingi. Ég
er tilbúinn til að vera í því liði.
Byggðin í Eyjum eins og reyndar
öll byggð á Íslandi á allt undir því
að ESB umsóknin verði dregin til
baka og við stöndum vörð um full -
veldi okkar og okkar fiskimið. Í
þeirri baráttu hefur Regnbogi okkar
Jóns Bjarnasonar og fleiri góðra
liðsmanna mikilvægt hlutverk.
X-S Samfylking Oddný
G. Harðardóttir:
Mikilvægt
að sjávar -
byggð irnar
fái hlut-
deild í
veiði -
gjöldum
1. - Nú þegar ríkisstjórn Jóhönnu
Sigurðardóttur hefur náð saman 216
milljarða fjárlagagati á kjörtímabil-
inu sem er mikið afrek, verðbólgan
er komin í 3,9% úr 18% í upphafi
kjörtímabils og stýrivextir úr 18,6%
í 6%, lánshæfismat landsins stór -
batn að og skuldatryggingarálag
lækkað úr um 1000 punktum í 100,
erum við komin í þá stöðu að geta
gert áætlun um uppbyggingu vel -
ferð arkerfisins að nýju. Þessu
ættum við öll að fagna. Samfylk -
ingin vill að heilbrigðisstofnunum
kjördæmisins verði gert kleift að
tryggja góða grunnþjónustu við
íbúa og taka við sérhæfðum verk -
efnum. Stefna ætti að því að öll
grunnþjónusta sé á sömu hendi og
því eigi að flytja þjónustu við
aldraða og heilsugæslu til sveitar-
félaga. Vestmannaeyjar eru með
sérstöðu vegna óöruggra sam-
gangna og því þarf að tryggja að
heilbrigðisstofnunin þar geti
brugðist við erfiðum aðstæðum.
Landspítalinn er nú með starfsemi
sína á 17 stöðum í Reykjavík.
Mikið óhagræði fylgir því og
óþægindi bæði fyrir sjúklinga og
starfsfólk. Ljóst er að grípa verður
til aðgerða til að bæta húsakost
spítalans og besta framtíðarlausnin
er hönnun og bygging sem miðuð
er við nútíma þarfir og þekkingu á
þessu sviði. Rekstrarkostnaður mun
þá lækka til muna og það auðveldar
niður greiðslur þeirra lána sem taka
verður til að gera nýjan Landspítala
að veruleika. Þjóðarsjúkrahúsið á
að mæta kröfum okkar um gott og
öruggt heilbrigðiskerfi.
2. - Löggæsla er grunnþjónusta á
sama hátt og heilbrigðisþjónustan.
Svig rúm það sem skapast við betri
stöðu ríkissjóðs á næstu árum
verður nýtt til að greiða niður
skuldir en einnig til forgangsverk -
efna eins og að efla heilbrigðis -
þjónustuna og löggæsluna í landinu.
3. - Ferjusiglingar milli lands og
Eyja eru ákaflega mikilvægar fyrir
Vestmannaeyjar og landið í heild.
Æskilegast er að þær verði gjald -
frjálsar en fyrst og fremst að þær
verði öruggar, nýr Herjólfur komist
sem fyrst í gagnið og að Landeyja -
höfn verði heils árs höfn.
4. - Breytingar, sem ég vil fyrst og
fremst sjá, eru í átt að auknu jafn-
ræði og nýliðun í greininni, að nýjar
fisktegundir fari í leigupott, aukn-
ing á veiðiheimildum einnig og að
öll leiga á kvóta fari í gegnum
kvótaþing með eðlilegu viðskipta -
umhverfi þar sem markaðsverð geti
skapast. Ég tel líka mjög mikilvægt
að sjávarbyggð irnar fái hlutdeild í
veiðigjöldum enda er það eðlilegt
að hægt verði að byggja upp innviði
á þeim stöðum þar sem arðurinn af
nýtingu auðlindarinnar verður til.
5. - Nei ég er ekki sátt við þessa
þróun og vil leggja mitt af mörkum
til að snúa henni við.
6. - Ég vil að Ísland gangi í ESB og
taki upp evru vegna þess að ég tel
að með því batni kjör heimila og
fyrirtækja í landinu umtalsvert. Við
værum þá laus við bólur, verð -
bólguskot og verðtrygginguna sem
munu annars brenna upp eignir
landsmanna reglu lega ef við tökum
ekki upp stöðugan gjaldmiðil.
7. - Eyjamenn eiga að velja Sam-
fylkinguna vegna raunhæfrar stefnu
hennar sem leiða mun til aukins
jöfnuðar og réttlætis og til öruggara
og betra samfélags. Áherslur okkar
á velferðarmál, á að forgangsraða
menntun framar, á sterkar atvinnu-
greinar í heilbrigðu samkeppnis -
umhverfi sem undirstöðu velferðar,
á sprotafyrirtæki og nýsköpun sem
nýjar stoðir atvinnulífs og á öruggar
og góðar samgöngur sem skipta
máli fyrir lífskjörin. Eyjamenn eiga
að kjósa mig vegna þess að ég hef
reynslu, þekkingu og geðslag sem
ég mun nýta til að reynast þeim vel
og vinna að þeirra hag.
X-T Dögun Andrea J.
Ólafsdóttir:
Forgangs -
verkefni að
færa þjón -
ustuna
aftur nær
fólkinu
1. - Það verður erfitt verkefni að
snúa til baka frá þeim stóru mis-
tökum sem Sjálfstæðisflokkurinn
og Framsókn gerðu í sinni valdatíð
þar sem heilbrigðisþjónusta var
skorin niður á landsbyggðinni og
færð í meira mæli til höfuðbor-
garinnar. Við viljum snúa því til
baka, það er forgangsverkefni að
færa þjónustuna aftur nær fólkinu
og tryggja betri laun og tækjabún -
að. Meðal annars þess vegna teljum
við ekki tímabært að ráðast í bygg -
ingu Hátæknisjúkrahúss.
2. - Til að tryggja öflugt velferðar -
kerfi og þjónustu ríkisins verður að
tryggja tekjur í ríkiskassann. Við
viljum gera það m.a. með því að
endursemja um opinberar skuldir
sem eru nú á við heilt heilbrigðis -
kerfi á ári hverju. Við viljum auk
þess tryggja auknar tekjur í gegnum
auðlindagjald - því þjóðin á auð -
lind irnar. Eins viljum við endur -
heimta ríkisaðstoðina sem
bönkunum var veitt við hrunið.
Löggæslumálin hafa setið á
hakanum eins og svo margt annað
síðastliðin ár og verður verkefni
stjórnmálanna næstu árin að rétta úr
kútnum til að efla þjónustuna aftur.
3. - Já.
4. - Við nýtingu auðlindanna skal
hafa sjálfbæra þróun og almanna-
hag að leiðarljósi og hámarka verð -
mætasköpun nytjastofna. Gagnger
endurskoðun á fiskveiðistjórnunar -
kerfinu mun m.a. byggjast á:
• Að fullt jafnræði verði í aðgengi
að veiðiheimildum.
• Að greitt verði auðlindagjald fyrir
afnotin sem renni til ríkis og
sveitar félaga.
• Að framsal, framleiga og veðsetn -
ing veiðiheimilda verði óheimil.
• Að aflahlutur sjávarbyggða sé
tryggður og hluti veiðileyfa svæðis-
bundinn.
• Að öllum nýtanlegum afla sé land -
að og enginn hvati verði til brott -
kasts m.a. með því að kvótasettum
fisk tegundum verði fækkað.
• Að allur afli fari á markað og
verðmyndun sé 100% bundin fisk -
mörkuðum.
• Að veiðiráðgjöf verði endurskoð -
uð og fleiri aðilar komi að ráðgjöf -
inni - mögulega er hægt að veiða
meira en gert er í dag miðað við
reynslu Rússa og Norðmanna.
• Að handfæraveiðar verði frjálsar.
5. - Nei, ég er ekki sátt við þessa
þróun, ég tel mikilvægt að byggðir
landsins verði efldar og atvinna og
þjónusta tryggð þeim í mun meira
mæli. En til þess þarf að snúa við
þróun sem ríkisstjórn sjálfstæðis-
og framsókn armanna fór af stað
með í mjög markvissum mæli.
6. - Þetta er eitt af þeim stóru
málum sem ég tel réttast að fari í
þjóðar atkvæðagreiðslu - þjóðin á
alltaf að hafa síðasta orðið þegar
um svo stórar ákvarðanir er að
ræða. Sjálf hef ég ekki gert upp hug
minn, ég sé bæði stórkostlega galla
vegna lýðræðishalla í ESB og líka
kosti. Ég á eftir að fara yfir það
þegar ferlinu er lokið hvort vegur
þyngra, kostirnir eða gallarnir.
Við leggjum áherslu á opið og
lýðræðislegt ferli, óháða upplýs -
inga gjöf og fræðslu og treystum
þjóðinni til að ráða niðurstöðunni.
Ef aðild arviðræðum verður ekki
lokið fyrir samþykkt nýrrar
stjórnarskrár og þjóðin ákveður að
hætta aðildar viðræðum í samræmi
við 66. grein frumvarps Stjórnlaga -
ráðs, munum við styðja þá niður -
stöðu. Að öðrum kosti verði aðild -
ar viðræður við Evrópusambandið
kláraðar og niður staðan borin undir
þjóðaratkvæði.
7. - Af því að ég er einfaldlega besti
valkosturinn með hjartað á réttum
stað, gríðarlega sterka réttlætis -
kennd og heilmikið vit í kollinum.
Ég set aðgerðir fyrir heimilin í 1.
sæti. Ég tel þjóðina vera í dauðafæri
að ná fram langþráðu réttlæti fyrir
heimilin. Þess vegna hvet ég alla
landsmenn til að nota gríðarlegt
vald sitt til algerrar endurnýjunar á
Alþingi og skoða einungis að kjósa
nýju öflin sem hafa öflugar aðgerðir
í lána málum efst á dagskrá. Kíkið á
xt.is til að kynna ykkur málefna -
skrána varðandi önnur mál en hér er
spurt um. Þar er Dögun með öflug -
ustu stefnuna í efnahagsmálum og
heildarendurskoðun lífeyrissjóða -
kerfisins.
1. Hvernig ætlar þú að leysa vanda heilbrigðiskerfisins, m.a. í Vestmannaeyjum? Ertu hlynnt/hlynntur nýju hátæknisjúkrahúsi? | 2. Skorið hefur verið niður í löggæslumálum
m.a. með þeim afleiðingum að innbrotum hefur fjölgað mikið í Vestmannaeyjum. Hvernig vilt þú bæta þennan vanda og hvar finnur þú fjármagn til þess? | 3. Telur þú að
ferjusiglingar eigi að vera hluti af þjóðvegakerfinu og gjaldtaka í samræmi við það? | 4. Hvernig sérð þú næstu skref fyrir þér varðandi sjávarútveg? Óbreytt kerfi eða breyt -
ing ar og þá hvaða breytingar? | 5. Undanfarin ár hefur miðjuvæðing verið áberandi á Íslandi, þar sem stofnanir og opinber störf hafa flust frá t.d. Vestmanna eyjum á höfuð -
borgarsvæðið. Ertu sátt/sáttur við þessa þróun? | 6. Viltu að Ísland gangi inn í ESB og af hverju/ekki? | 7. Af hverju eiga Eyjamenn að kjósa þig á þing?
Eyjamenn eiga að velja Samfylkinguna
vegna raunhæfrar stefnu hennar sem leiða
mun til aukins jöfnuðar og réttlætis og til
öruggara og betra samfélags. Áherslur
okkar á velferðarmál, á að forgangsraða
menntun framar, á sterkar atvinnugreinar í
heilbrigðu samkeppnis umhverfi sem
undirstöðu velferðar, á sprotafyrirtæki og
nýsköpun sem nýjar stoðir atvinnulífs og á
öruggar og góðar samgöngur, skipta máli
fyrir lífskjörin.
- Oddný G. Harðardóttir
Oddviti Samfylkingarinnar
”
Ég set aðgerðir fyrir heimilin í 1. sæti. Ég tel
þjóðina vera í dauðafæri að ná fram
langþráðu réttlæti fyrir heimilin. Þess vegna
hvet ég alla landsmenn til að nota gríðarlegt
vald sitt til algerrar endurnýjunar á Alþingi
og skoða einungis að kjósa nýju öflin sem
hafa öflugar aðgerðir í lána málum efst á
dagskrá. Kíkið á xt.is til að kynna ykkur
málefnaskrána varðandi önnur mál en hér
er spurt um. Þar er Dögun með öflugustu
stefnuna í efnahagsmálum og heildaren-
durskoðun lífeyrissjóðskerfisins.
- Andrea J. Ólafsdóttir
Oddviti Dögunar
”
Oddvitarnir eru allir sammála um að sjúkrahúsið hér þurfi að vera
nógu öflugt til að bregðast við erfiðum aðstæðum.